Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 ✝ Svanhvít Elsa Jó-hannesdóttir fæddist 24. nóvember 1934. Hún lést 21. mars 2019 á Hjúkrunarheimilinu Nesvöllum, Hrafnistu í Reykjanesbæ. Svanhvít var dótt- ir hjónanna Jóhann- esar B. Hannessonar, f. 8. september 1893, d. 29. maí 1959, og Jóhönnu Þorleifsdóttur, f. 24. desember 1890, d. 2. mars 1947. Systkini Svanhvítar: Ásgeir Eiríkur, f. 12. ágúst 1920, d. 25. júlí 1947, Sigurður Valdal, f. 8. mars 1961, eiginmaður hennar er Jón Guðmar Jónsson, f. 2. apríl 1950, dætur þeirra eru Svanhvít Ásta, f. 6. nóvember 1996, og Guð- rún Sunna, f. 18. júní 1999. Svanhvít var lengst af hús- móðir og vann auk þess ýmis al- menn störf. Þau hjónin hófu bygg- ingu húss um miðjan sjöunda áratuginn á Faxabraut 63 í Kefla- vík sem þau fluttu í upp úr 1970 og áttu það hús alla tíð en þau bjuggu yfir 30 ár í Ósló. Svanhvít hafði ekki langa skólagöngu að baki á Íslandi en þegar hún bjó í Noregi tók hún marga kúrsa í framhaldsskóla þar. Lengst af í Noregi starfaði Svanhvít í og hafði umsjón með þvottahúsi spítala/hjúkrunar- heimilis í Ósló. Útför Svanhvítar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 5. apríl 2019, klukkan 13. nóvember 1921, d. 28. janúar 2008, Sig- urvin Björgvin, f. 26. júlí 1923, d. 3. desem- ber 1996, Margrét, f. 19. desember 1925, d. 27. júní 1927, Mar- grét Sigurbjörg, f. 1. desember 1927, og Ólafur, f. 18. janúar 1931, d. 24. mars 2015. Svanhvít giftist 31. desember 1964 Erlingi Jónssyni, f. 30. mars 1930. Börn þeirra eru: 1) Ásgeir, f. 1. júní 1959, kona hans er María Kristín Jónsdóttir, f. 19. mars 1963. 2) Jóhanna, f. 13. Svana, eins og hún var alltaf kölluð, tengdamóðir mín, er látin eftir erfið veikindi. Hún var ekki allra. Í ófáum gamanmyndaklisj- um frá Hollywood þar sem sýnd eru samskipti tengdaforeldra og tengdabarna snúast þau um að allt er strax komið í háaloft og hjónabönd í hættu. Þetta átti ekki við um okkur Svönu. Við áttum mjög gott skap saman, sem sést best á því að hún dvaldi hjá okkur lengi á hverju ári á sumrin og um jól og áramót í um þrjátíu ár eftir að hún sjálf hafði flutt til Noregs. Það er oft sagt að til að búa við lífsánægju þurfi maður að geta notið hversdagsins. Eftirminni- legustu stundir mínar með Svönu eru samræður okkar og vanga- veltur í gegnum tíðina við morg- unverðarborðið þegar hún dvaldi hjá okkur. Hún hafði áhuga á mörgu, þjóðmálum, trúarbrögð- um, fólki, lífinu og tilverunni svona yfirleitt. Hlustaði og fylgd- ist vel með. Sjálf var hún mjög dul um eigin hagi, svona prívat- persóna. Svana var mikið náttúrubarn, þurfti að finna fyrir þessari frelsistilfinningu að geta staðið upp hvar sem hún var og hvenær sem henni datt í hug, vildi ekki láta binda sig, og látið sig hverfa eins og fuglinn fljúgandi. Þá var farið í bílinn og farið á flakk eins og hún sagði stundum, en hún var mikil bílaáhugamanneskja og átti líka alltaf bíl hér á landi, sem beið hennar þegar hún mætti á svæðið. Ef Svana hefði verið ung kona í dag hefði hún ábyggilega farið í bifvélavirkjun eða annað vélfræði- nám. Svana var ættuð úr Arnardal við Skutulsfjörð. Strax eftir seinni heimsstyrjöld flutti fjölskyldan, eins og svo margir aðrir Vestfirð- ingar, á suðvesturhornið í leit að bættum lífskjörum. Fluttu margir til kaupstaðanna og þorpanna á Suðurnesjum. Fjölskyldan flutti til Grindavíkur. Móðir hennar, sem hún var mjög náin, lést þegar Svana var 12 ára. Móðurmissirinn var mikið áfall. Tengdamóðir mín mátti ekkert aumt sjá. Þá var hún mikill dýra- vinur og var alltaf með dýr á sínu heimili, svo öðrum fjölskyldumeð- limum þótti jafnvel nóg um. Í september 2016 fór Svana í síðasta sinn til Noregs til að ganga frá sínum málum þar áður en hún flytti alkomin heim. Hinn 29. október sama ár, tveimur dög- um áður en hún átti bókað flug til Íslands, veiktist hún alvarlega. Var henni vart hugað líf. Eftir ótrúlegan bata gat hún síðasta sumar gengið um ein og óstudd. Markmið Svönu síðasta árið var að flytja heim. Síðasta sumar var því hafist handa við fram- kvæmdir við að gera „Húsið“ á Faxabrautinni þannig að hún gæti flutt þangað og notið heimahjúkr- unar. Viku fyrir jól þegar fram- kvæmdum var að ljúka fórum við hjónin að sækja hana til Noregs. Hafði heilsu hennar þá hrakað mjög. Stuttan tíma dvaldi hún í „Húsinu“ áður en hún var flutt á spítala. Rúmum mánuði áður en hún lést flutti hún á hjúkrunar- heimilið á Nesvöllum, Hrafnistu í Reykjanesbæ. Farin að kröftum en hugurinn að mestu heill gerði það erfitt að horfa upp á lokin hjá þessum frelsisfugli. En hún er nú komin „heim“. Tengdamóðir mín var hvíldinni fegin. Jón Guðmar Jónsson. Amma var ákveðin kona og góð. Hún var með gott skopskyn og átti auðvelt með að sjá það spaugilega í tilverunni. Amma var jákvæð og kenndi okkur að koma vel fram við fólk. Hún kom hreint fram og var trú sjálfri sér. Það var gaman að sjá litlu kanínuna henn- ar. Það var sannarlega vel hugsað um þá kanínu því amma var mikill dýravinur og mátti ekkert aumt sjá. Amma hafði ákveðnar skoðanir á fötum og skartgripum. Hún var helst í hvítum flottum fötum. Hún hélt sínu striki hvað það varðaði og var alltaf með sitt síða hár vandlega greitt. Það var gott þeg- ar amma var hjá okkur og við átt- um saman margar ánægjulegar stundir. Við gátum rætt um hvað sem var; allt frá heilsu smádýra til andlegra eða heimspekilegra mál- efna. Hún vildi vera á ferðinni og með því skemmtilegra sem hún gerði var að ferðast um keyrandi. Við systur minnumst elsku Svönu ömmu okkar með þakklæti og vit- um að hún verður alltaf hjá okkur. Svanhvít Ásta og Guðrún Sunna. Svanhvít Elsa Jóhannesdóttir eins ólíkar og við erum, tókumst á við verkefnið á ólíkan hátt. Anna Katrín lærði nóturnar sam- viskusamlega, æfði sig heima og spilaði allt sem amma setti fyrir. Erla Steina lærði lögin utanbók- ar, var ekki mikið fyrir nótnalest- ur eða heimaæfingar. En snögg var hún að læra og spilaði sín lög án nótna og dreif sig síðan fram að spila ólsen-ólsen við afa. Alltaf varst þú amma okkar jafn stolt og himinlifandi að fá okkur í tíma. Síðan voru auðvitað haldnir jóla- tónleikar fyrir fjölskylduna þar sem við vorum stjörnurnar þínar. Þú varst ávallt með puttann á púlsinum og lést ekkert fram hjá þér fara, hvort sem það voru samfélagsmál, tískustraumar eða nýjustu veitingastaðir bæjarins. Þið afi tókuð tækniframförum fagnandi og lögðuð ykkur öll fram við að læra á nýjustu tæknina, til að mynda tölvupóst og Facebook. Þú varst mikil tískudrottning og skvísa og gátum við auðveld- lega fengið lánuð föt hjá þér þrátt fyrir aldursmun. Eitt sinn rák- umst við á þig, þá frekar ný- komna af spítala, í Kringlunni að kaupa þér kápu í Gallerí 17 svo við tölum nú ekki um bleika Prada-veskið. Þú varst jákvæðasta mann- eskja sem við höfum þekkt og sást alltaf það góða í öllu. Þú gast snúið ótrúlegustu aðstæðum og erfiðleikum í jákvæðni. Á síðustu árum mættirðu ýmsu mótlæti en alltaf tókst þú á við verkefnin af eindæma bjartsýni og seiglu, sannkölluð Pollýanna. Vandfundinn var meiri húmor- isti en þú. Þú hafðir einstakan húmor fyrir sjálfri þér og hlógum við endalaust saman. Það var aldrei leiðinleg stund með þér og leið okkur aldrei eins og þú værir gömul. Þú varst yndislegur og litríkur karakter. Okkur leið alltaf svo vel hjá þér því þú elskaðir skilyrð- islaust og fagnaðir fjölbreytileik- anum. Þú hafðir innilegan áhuga á öllu sem við tókum okkur fyrir hendur og varst alltaf jafn stolt. Þú hrósaðir okkur í tíma og ótíma fyrir allt sem við gerðum. Þú varst með hjarta úr gulli og snertir við öllum sem urðu á vegi þínum. Síðustu mánuði eyddum við miklum tíma með þér og afa. Við erum þakklátar fyrir þessar gæðastundir, það var gott að geta hjálpað ykkur þegar þið þurftuð á því að halda, eftir allt sem þið hafið gert fyrir okkur. Þið voruð alltaf svo þakklát. Elsku yndislega amma Erla. Við munum sakna þín að eilífu og minning þín mun lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Kysstu afa Steina frá okkur, við vitum að hann mun taka vel á móti þér í nýja fína húsinu. Elskum þig endalaust. Þínar ömmustelpur og holta- sóleyjar, Erla Steina og Anna Katrín. Það er óraunverulegt að kveðja ömmu svona stuttu eftir að við kvöddum afa. Við getum þó huggað okkur við það að núna eru þau saman. Það var kannski ekki við því að búast að þau gætu verið lengi hvort án annars. Þau voru alveg ótrúlega samrýnd hjón, gerðu allt saman og höfðu alltaf nóg fyr- ir stafni. Þau voru saman í næst- um sjö áratugi og upphafið að þeirra sambandi var alveg í þeirra anda. Amma lenti í hremmingum og afi kom henni til bjargar. Það má segja að það hafi gefið tóninn fyrir þeirra líf saman; í gegnum árin hugsaði afi ótrúlega vel um ömmu og hennar missir var mikill þegar hann kvaddi. Hún var alla tíð prinsessan hans sem hann snerist í kringum og honum þótti það ekki leiðinlegt. Að sumu leyti má segja að amma hafi aldrei orðið neitt göm- ul. Hún var alltaf fín og vel tilhöfð og hún kunni líka að meta það að vera slegnir gullhamrar. Hún bar sig vel allt fram til hins síðasta og það er hreinlega ótrúlegt hversu oft hún reis aftur á fætur eftir áföll og heilsubrest síðustu ára. Æskuminningarnar af Lambó eru margar og það var alltaf gaman að koma til ömmu og afa. Amma elskaði að láta greiða á sér hárið, hafði gaman af að kenna okkur ný spil og náði einhvern veginn alltaf að plata mann til að pússa silfrið. Þegar við vorum orðin eldri breyttust samveru- stundirnar í kaffi í eldhúsinu og á Lambó var alltaf bakkelsi á boð- stólum, bæði fyrr og síðar, það eina sem breyttist var að við fór- um að taka þátt í fullorðinsum- ræðum. Móttökurnar voru alltaf góðar, okkur var tekið með kossum og knúsi. Amma og afi voru heppin, þau fengu að vera hraust, ferðast, fara á tónleika og njóta lífsins saman fram á gamals aldur. Hann var duglegi riddarinn sem í upphafi bjargaði henni og hún var sólin hans sem aldrei dró fyr- ir. Við minnumst ömmu með hlý- hug og þakklæti fyrir allt. Hilmar og Hildigunnur. Elsku Erla systir mín er látin og minningar um liðna tíð streyma fram. Þessar minningar eru bara fallegar. Ég sakna hennar mjög mikið. Erla var fædd og uppalin í Vesturbæ Reykjavíkur og gekk í Landakotsskóla. Hún var einka- barn þar til ég kom í heiminn en þá voru foreldrar okkar orðnir nokkuð fullorðnir og mamma oft veik. Erla var þá 18 ára og það varð hennar hlutskipti að vera mikið með mig. Henni þótti afar vænt um mig og kallaði mig alltaf „Margrét mín“. Á hverjum morgni þegar hún fór til vinnu fór hún með mig í leikskólann Tjarnarborg en hún vann þá á endurskoðunarskrif- stofu í Hafnarstræti. Erla var mjög vel gerð og gef- in kona. Hún var mikill tónlistar- unnandi og útskrifaðist úr Tón- listarskólanum í Reykjavík sem píanókennari og kenndi í nokkur ár. Í tónlistarskólanum kynntist hún nokkrum vinkonum sínum sem ég fékk stundum að fara með henni að hitta. Hún kynntist svo eiginmanni sínum Þorsteini um 1950 og voru þau alla tíð einstak- lega samrýnd hjón. Eftir að þau giftu sig byggði Þorsteinn við hús foreldra okkar á Fálkagötu. En fjölskylda þeirra stækkaði fljótt og nokkrum árum síðar byggði hann hús á Lambastekk 1, þar sem þau bjuggu með börn- unum sínum fjórum. Þar var ég, og mín fjölskylda, alltaf velkomin á hvaða tíma sólarhrings sem var. Þar voru líka stór afmælis- og jólaboð alla tíð þar sem öll fjöl- skyldan kom saman. Erla var mikil fjölskyldu- manneskja og var sérlega annt um „að allir væru“. Foreldrar okkar áttu lítinn sumarbústað fyrir innan Laugar- vatn og það var ósjaldan sem við vorum saman þar á sumrin. Einnig fórum við hjónin oft sam- an í ferðir til Evrópu og það var alltaf jafn indælt að ferðast með þeim. Ég er systur minni ævinlega þakklát fyrir að hafa verið mér svona góð. Ég á aldrei eftir að gleyma síðasta deginum sem hún lifði, sárlasin. Ég beygði mig niður að henni og hún ljómaði öll og sagði „ertu komin Margrét mín?“ Þau hjónin voru ekki aðskilin í nema rétt rúma tvo mánuði því Þorsteinn andaðist 12. janúar á þessu ári. Takk elsku Erla mín. Þú varst alltaf svo blíð og góð og til staðar fyrir mig. Guð geymi þig. Þín systir, Margrét. ✝ Helga Sigur-björg Júlíus- dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 26. júní 1923. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Eir 29. mars 2019. Foreldrar henn- ar voru Júlíus Jóns- son, f. 31. júlí 1895, d. 4. september 1978, og Sigurveig Björnsdóttir, f. 22. september 1891, d. 27. september 1934. Systkini Helgu voru Björn, Sig- ríður Ragna, Jóna Margrét, Haf- steinn, Garðar og Sigurveig, sem ein er eftirlifandi systkina hennar. Helga giftist 27. júní 1944 Gústaf Finnbogasyni, f. 28. febr- úar 1922, d. 13. apríl 2011. Börn þeirra eru: 1) Finnbogi Már, f. 22.8. 1952, maki Edda Hlín Hallsdóttir. Þeirra börn eru Elma, Agnes Ösp, gift Oddi Grétarssyni, og Gústaf Jökull, í sambúð með Sól- veigu Valdemars- dóttir. Fyrir átti Finnbogi dæturnar Helgu og Írisi. Edda átti fyrir Höllu. Barnabörn þeirra eru átta. 2) Lena María, f. 24.6. 1961, maki Guð- mundur Guðfinns- son. Þeirra börn eru Ingibjörg, í sambúð með Óskari Erni Stein- dórssyni. Þeirra börn eru Anton Breki, María Lena og Hrafndís Karen. Helga María, dóttir hennar er Emilía. Unnusti henn- ar er Haukur Daníel Hrafnsson. Bryndís, í sambúð með Kjartani Smára Jóhannssyni, þeirra son- ur er Guðmundur Logi. Útför Helgu fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 5.apríl 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Helga átti góða barnæsku en lenti svo í því áfalli að missa móð- ur sína 11 ára gömul. Hún tók þá að sér það hlutverk að hugsa um heimilið og yngri systkini, verja þau og vernda og fór pabbi henn- ar að líta á hana sem fullorðna frá þeirri stundu. Þetta hafði eðlilega mótandi áhrif á hana enda fylgdi það henni alla ævi að vilja standa með þeim sem minna máttu sín. Það var lífsfylling fyrir Helgu þegar hún fimmtug fór svo í sjúkraliðanám enda naut hún sín sérstaklega vel í starfi sem sjúkraliði fyrst á Kópavogshæli og síðan geðdeild Borgarspítala við að hugsa um þá sem hjálpar þurftu við. Helga talaði stundum um að hún væri af harðjaxlaætt enda þoldi hún ekki óréttlæti gagnvart sér og sínum. Það var samt alltaf stutt í viðkvæmnina og tók hún mjög nærri sér ósætti innan fjölskyldunnar. Hannyrðir voru áhugamál hennar og sýndi hún mikið listfengi í því sem hún gerði. Þær eru ófáar lopapeysurn- ar og sokkarnir frá henni sem hafa haldið á manni hita gegnum árin og munu gera áfram. Ég er alltaf þakklátur fyrir það hvað Helga tók vel á móti mér þegar við Lena vorum ung að hefja okk- ar vegferð og aldrei fékk ég að kynnast annarri hlið frá henni en væntumþykju. Guðmundur Guðfinnsson. Elsku amma mín, ég verð ævinlega þakklát fyrir þá um- hyggju og hlýju sem þú sýndir mér í gegnum árin. Það sem stendur upp úr er auðvitað sá tími sem ég eyddi á Skjólbrautinni í æsku en þið afi tókuð mér opnum örmum í hvert skipti sem ég kom í pössun. Ég þurfti auðvitað alltaf að skoða fallegu prjónafötin sem fylltu heilan fataskáp í gestaher- berginu og þú lofaðir mér einu bleiku og öðru bláu prjónasetti fyrir komandi börnin mín þótt ég væri aðeins átta ára gömul. Á kvöldin fórum við afi út í búð að kaupa lottómiða og lítra af ís og síðan horfðum við öll saman á boxið fram eftir nóttu. Þú bauðst mér alltaf upp í þitt rúm og last fyrir mig Dísu ljósálf enda hraut afi svo hátt að hann varð að sofa í gestaherberginu. Þessu hlógum við mikið að. Ég mun ekki gleyma þeim tíma sem við áttum í seinni tíð, sögunum sem þú hafðir að segja um gömlu dagana og stund- unum sem þú áttir með Guðmundi Loga. Hann endaði að sjálfsögðu á að fá fallegu bláu prjónafötin frá Helgu langömmu. Þín verður saknað en mikið veit ég hvað þú ert ánægð að vera loksins hjá elsku besta afa. Bryndís Guðmundsdóttir. Elsku amma mín. Hún amma var á 96. aldursári og þrátt fyrir að söknuðurinn sé til staðar er ég ekki sorgmædd. Eins og aldurinn gefur til kynna átti amma langa og viðburðaríka ævi. Amma var 18 ára þegar seinni heimsstyrj- öldin hófst og var 24 ára þegar herinn fór frá Keflavík en hún tók þó ekki þátt í bransanum eins og hún kallaði það. Amma giftist afa mínum árið 1944 og náðu þau að fagna króndemantsbrúðkaupi áð- ur en hann dó. Hún var 21 árs þegar Ísland varð lýðveldi og hefur lifað valda- tíð allra okkar forseta frá upphafi. Amma drakk ekki, reykti ekki og tók meira að segja aldrei bílpróf en hún var uppátækjasöm og tók gjarnan úr sér fölsku tennurnar til að skemmta okkur systrunum. Amma mín var listamaður í hönd- unum og prjónaði peysur líkt og hún væri færiband, hún prjónaði einnig sokka á alla í bænum og jafnvel vini þeirra líka og hún var enn að prjóna á níræðisaldri. Amma var mikil garðyrkju- kona og var með margs konar blóm í garðinum en einnig rækt- aði hún kartöflur og þá að sjálf- sögðu Helgur fyrir okkur. Hún amma var trúuð kona og fór alltaf með bænir fyrir svefninn, ég mun halda áfram að fara með bænina okkar en hún amma er nú farin annað og tekur hún lykla með sér til að allar dyr standi henni opnar. Helga María Guðmundsdóttir. Helga Sigurbjörg Júlíusdóttir Innilegar þakkir fyrir veitta samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRUNNAR SIGURÐARDÓTTUR. Erna Einarsdóttir Sigurður Einarsson Arndís Björnsdóttir Einar Þór Daníelsson Hildigunnur Daníelsdóttir Árni Garðarsson Þóra Jensdóttir Helga Þórunn Óttarsdóttir Gústav Arnar Davíðsson Þórunn Sigurðardóttir Björn Sigurðsson og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.