Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 27
Kennaraháskólann í Kaupmanna- höfn. Birgir hóf tónlistarnám sitt og trompetleik á Norðfirði hjá Haraldi Guðmundssyni, og síðan í Vest- mannaeyjum hjá Oddgeiri Krist- jánssyni og í Reykjavík hjá þeim Jóni Sigurðssyni og Birni Guðjóns- syni, en þeir voru á þessum árum trompetleikarar Sinfóníunnar. Í Reykjavík sótti hann einnig nám- skeið fyrir stjórnendur lúðrasveita. Birgir lék um árabil með Lúðra- sveit Neskaupstaðar, Lúðrasveit Vestmannaeyja, Lúðrasveit Verka- lýðsins og Lúðrasveit Keflavíkur. Starfsferillinn sem kennari hófst í Brúarlandsskóla í Mosfellssveit árið 1960, en hann fékkst við kennslu og skólastjórn í grunnskólanum þar til ársins 2000. Birgir hóf kennslu á blásturs- hljóðfæri 1963 sem leiddi m.a. til þess að stofnaður var tónlistarskóli í Mosfellssveit. Hann stýrði og stjórn- aði Skólahljómsveit Mosfellsbæjar í 40 ár. „Á sumrin var ég um árabil verk- stjóri í unglingavinnu bæði hjá Mos- fellshreppi og í Reykjalundi. Í 10 sumur starfaði ég sem fararstjóri hjá Ferðaskrifstofunni Útsýn á Lignano á Ítalíu.“ Birgir hefur setið í ýmsum nefnd- um fyrir Mosfellshrepp og síðar Mosfellsbæ, einkum tengdum menn- ingarmálum. Um 20 ára skeið var hann formaður SÍSL sem eru sam- tök skólalúðrasveita á Íslandi. Á nýársdag 2005 var Birgir sæmdur riddarakrossi hinnar ís- lensku fálkaorðu fyrir störf í þágu tónlistar. Árið 2008 fékk hann Melv- in Jones-viðurkenningu frá Lions- klúbbi Mosfellsbæjar fyrir störf í þágu barna og unglinga í sveitar- félaginu. „Þá á ég skemmtilegt við- urkenningarskjal frá Ítalíuferðum skólahljómsveitarinnar til Lignano í Friulihéraðinu þar sem ferðamála- yfirvöld þakka alls sex heimsóknir og fjölda tónleika á svæðinu.“ Ferðalög bæði utanlands og innan skipa stóran sess hjá Birgi og Jór- unni, eiginkonu hans. „Síðustu árin höfum við heillast af því að ferðast á Íslandi með hjólhýsið aftan í bílnum um landið þvert og endilangt. Frá æskuárum hafa íþróttir skipað stór- an sess og enn stunda ég blakíþrótt- ina með frábærum félögum auk leik- fimitíma í Reykjalundi.“ Fjölskylda Eiginkona Birgis er Jórunn Helga Árnadóttir, f. 31.3. 1941, hár- greiðsludama og vann einnig við að- stoð við sjúkraþjálfun: Foreldrar hennar voru hjónin Magdalena Ólafsdóttir, f. 9.5. 1914, d. 3.3. 1999, húsmóðir og Árni Hinrik Jónsson, f. 19.11. 1909, d. 22.10. 2005, af- greiðslumaður í Keflavík. Börn Birgis og Jórunnar eru: 1) Sveinn Þórður, f. 17.6. 1959, tónlist- armaður og kennari, bús. í Mos- fellsbæ. Maki: Svanhildur Einars- dóttir, f. 6.6. 1962, starfsmaður á Hagstofu Íslands. Börn: Birgir Dag- bjartur, f. 14.3. 1978, hans börn eru Sunneva Björk og Kolbrún Helga; Lárus, f. 12.3. 1985, hans börn eru Lilja Dís og Anna María; Íris Þöll, f. 28.12. 1982, börn hennar eru Helena og Nóa Filippa; Agla Ösp, f. 19.1. 1990, dóttir hennar er Dagbjört Rún; Einar Sveinn, f. 5.8. 1999; 2) Arna Björk, f. 22.6. 1961, d. 12.3. 1964; 3) Arna Björk, f. 20.2. 1965, myndlistarkona og kennari, bús. í Mosfellsbæ. Maki: Þórður Ólason, f. 19.1. 1965. Börn: Andri Freyr, f. 13.5. 1989, Óli Hörður, f. 27.4. 1992, Hildur Ýr, f. 23.7. 1996; 4) Harpa, f. 18.11. 1969, námsráðgjafi í Hróars- keldu. Maki: Eiríkur G. Eyvindsson, f. 31.10. 1961. Börn: Sóley Freyja, f. 16.6. 1994, Steinar Freyr, f. 27.7. 1999. Systkini Birgis: Lárus Sveinsson, f. 7.2. 1941, d. 18.1. 2000, trompet- leikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands; Leó Sigurjón Sveinsson, f. 22.8. 1942, vélstjóri, bús. á Stokkseyri; Elsa Helga Sveinsdóttir, f. 1.8. 1948, bankastarfsmaður, bús. í Mosfells- bæ. Foreldrar Birgis voru hjónin Sveinn Sigurjónsson, f. 30.4. 1911, d. 28.7. 1949, vélstjóri í Neskaupstað, og Þórunn Lárusdóttir, f. 6.9. 1914, 27.5. 2002, húsmóðir í Neskaupstað. Birgir Dagbjartur Sveinsson Sólveig Gísladottir húsfreyja á Krossi og í Neskaupstað Sigurður Þorsteinsson bóndi á Krossi í Mjóafirði, síðan í Neskaupstað Dagbjört Sigurðardóttir húsfreyja í Neskaupstað Þórunn Lárusdóttir húsfreyja í Neskaupstað Lárus Ásmundsson útvegsbóndi í Neskaupstað Þórunn Halldórsdóttir húsfreyja á Karlsstöðum og Vindheimum Ásmundur Jónsson útvegsbóndi á Karlsstöðum í Vöðlavík og síðast á Vindheimum í Norðfirði Lárus Sveinsson trompet- leikar í Sinfóníu- hljómsveit Ísl. Ingibjörg Lárusdóttir lögfr. hjá Landspítalanum Þórunn Lárusdóttir leikkona og leikstjóri Dísella Lárusdóttir söngkona við Metropolitan óperuna Svavar Lárusson tónlistarmaður og kennari Sigurður Lárusson útgerðarmaður á Höfn í Hornafirði Hilmar Sigurðsson viðskiptafr. og endurskoðandi Stefán Hilmarsson söngvari Anna Guðnadóttir húsfreyja í Krossavík Sveinn Valdimarsson bóndi í Krossavík í Vopnafirði Birgitta Ólöf Sveinsdóttir húsfreyja á Skálum Sigurjón Gunnlaugsson bóndi á Skálum í Vopnafirði Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja á Efri-Bláfeldi Gunnlaugur Þorkelsson bóndi á Efri-Bláfeldi í Staðarsveit, Snæf. Úr frændgarði Birgis D. Sveinssonar Sveinn Sigurjónsson vélstjóri í Neskaupstað ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is ELECTROLUX ÞVOTTADAGAR Frá18. mars - 18. apríl verður 25% afsláttur af öllum Electrolux iðnaðarþvottavélum, þurrkurum og strauvélum Ryksuga fylgir með öllum pöntunum sem gerðar eru á iðnaðarþvottavélum, þurrkurum og strauvélum frá 18. mars til 18. apríl. Ryksugan er „tvær í einni“ frá Electrolux KAUP- AUKI! Hákon Ólafur Franz Loftssonfæddist í Reykjavík 5. apríl1919. Foreldrar hans voru Loftur Guðmundsson, f. 1892, d. 1952, ljósmyndari og fyrri kona hans, Stefanía Grímsdóttir, f. 1898, d. 1940, húsfreyja. Hákon stundaði nám í Skotlandi 1935-36 og komst þar í kynni við kaþólskt fólk. Leiddi það til, ásamt öðru, að hann tók kaþólska trú 1937. Hákon varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri 1940 og nam norrænu við Háskóla Íslands 1940- 41 en ákvað þá að gerast kaþólskur prestur á Íslandi og fór þess vegna út í nám í prestaskóla í Bandaríkj- unum. Hann stundaði nám í guð- fræði, heimspeki og sálarfræði við St. Mary’s Seminary and University í Baltimore og lauk þaðan BA-prófi 1943 í kirkjusögu Íslands 1000-1500. Hann tók djáknavígslu þar 1946 og var brautskráður til prestvígslu 1947. Séra Hákon vígðist til prests í Kristskirkju, Landakoti árið 1947 og var það fyrsta kaþólska prestvígslan sem fór fram hér á landi eftir siða- skiptin. Í Landakoti starfaði Hákon sem prestur til ársins 1952 þegar hann fluttist til Akureyrar og gerðist prestur kaþólskra manna á Norður- landi. Hann var enn fremur stunda- kennari við Menntaskólann á Akur- eyri. Hann fluttist síðan til Reykja- víkur og var einkaritari biskups kaþólsku kirkjunnar í Landakoti um skeið. Hann var síðan prestur í Stykkishólmi frá 1972 til æviloka. Hákon skrifaði margt og þýddi fyrir kaþólsku kirkjuna. Hann samdi messutónlist, byggða á gregorískri og íslenskri tónlistarhefð, og voru þau lög sungin við hámessur í kap- ellu systranna í Stykkishólmi. Hann leitaðist við í störfum sínum að sam- tvinna kaþólska trú og íslenska menningararfleifð. Hákon lést 30. maí 1977 í New York á leiðinni til Baltimore þar sem hann ætlaði að heimsækja háskólann sinn í tilefni af 30 ára afmæli prest- vígslu sinnar. Merkir Íslendingar Hákon Loftsson 90 ára Torfi Leósson 85 ára Auðbjörg Helgadóttir Björn Gunnarsson Kristinn Ketilsson Sigurveig Haraldsdóttir 80 ára Birgir Dagbjartur Sveinsson Elísabet Jónsdóttir Guðmundur Hjálmarsson Sigríður Sigurðardóttir Unnur Alexandra Jónsdóttir 75 ára Árni Njálsson Emilía Jónsdóttir Sigurður Thorarensen Svavar Sölvason 70 ára Anna Sigríður Indriðadóttir Felix Eyjólfsson Hannes Ragnar Óskarsson Ísleifur Ingimarsson Ólöf S. Wessman Pavao Borojevic Sigurlaug Viborg Tryggvi Sæberg Einarsson Unnar Már Magnússon 60 ára Ásthildur Geirsdóttir Bryndís Benjamínsdóttir Francisca da Cruz Alicedóttir Guðmundur R. Björgvinss. Guðmundur R. Guðmundsson Hilmar Grétar Bjarnason Jennifer Eleanor E. Einarsson Morten Geir Ottesen 50 ára Arnheiður Árnadóttir Edda Linda Gunnlaugsd. Guðrún Birgitta Jónsdóttir Hannes G. Hilmarsson Hilmar Páll Marinósson Hugrún Sigurðardóttir Magnea Rán Guðlaugsd. Marjón Pétur Sigmundsson Svanur Valgeirsson Tómas Stanislavsson 40 ára Anna Irena Jaroc Dariusz Duda Erla Sigurrós Helgadóttir Halldór B. Þorbergsson Katarzyna Jasinska Ólafur Eiríksson Óli Jón Kristinsson Pálmi Jónsson Przemyslaw Pietrzyk Ragnhildur Bergþórsdóttir Rut Þórarinsdóttir Sandra Ósk Sigurðardóttir Shernu Amadou Daillo Silja Edvardsdóttir Skúli Sigurðsson Teitur Arason Tomasz Rafal Zamarek Vigfús Morthens Þóra Þorgeirsdóttir 30 ára Alma Lóa Lúthersdóttir Anna Karolina Gil Ágúst Ingi Halldórsson Ásgerður Sverrisdóttir Bára Dís Guðjónsdóttir Einar Smárason Elvar Örn Rúnarsson Kristján Gunnar Óskarsson Leifur Þorbergsson Maciej Kacper Domanski Magnús B. Sigurðsson Salóme Rut Harðardóttir Vilborg Jóna Gunnarsdóttir 40 ára Sandra er Reyk- víkingur, viðskiptafræð- ingur og vefstjóri hjá Wow air. Maki: Skafti Rúnar Þor- steinsson, f. 1980, smiður hjá Aðalvík. Börn: Þorsteinn, f. 2007, Helena Hulda, f. 2008, og Tindur, f. 2013. Foreldrar: Sigurður Óm- ar Sigurðsson, f. 1957, tölvunarfræðingur, og Ágústa Hreinsdóttir, f. 1957, hárgreiðslumeistari. Sandra Ósk Sigurðardóttir 40 ára Silja er Hornfirð- ingur en býr í Reykjavík. Hún er dýralæknir hjá Dýralæknastofu Reykja- víkur. Maki: Benjamin Mokry, f. 1979, framkvæmdastjóri Klifurhúss Reykjavíkur. Sonur: Leó, f. 2012. Foreldrar: Edvard Sig- urður Ragnarsson, f. 1943, fv. útibússtjóri, og Helga Jóhanna Magnús- dóttir, f. 1953, skólastjóri Lágafellsskóla. Silja Edvardsdóttir 30 ára Magnús er Reyk- víkingur, er meistaranemi í hagnýtri tölfræði við HÍ. Maki: Nichole Katrín Fali- mas, f. 1995, hjúkrunar- fræðinemi. Bróðir: Einar Ben, f. 1982. Foreldrar: Sigurður Ein- arsson, f. 1957, verkfræð- ingur, og Valgerður Mar- grét Magnúsdóttir, f. 1960, hjúkrunarfræð- ingur. og þerapisti. Magnús Bene- dikt Sigurðsson Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.