Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 1
DREKKUR BÆÐI KÓK OGMJÓLKÞARFAÐTAKAÁKVÖRÐUN
ndýr LouisVuitton-ferðataska úr hátækni-tauefni 4
Unnið í
Félag kvenna í atvinnulífinu vill að
hlutfall á milli kynja í framkvæmda–
stjórnum fyrirtækja verði 40/60. 6
VIÐSKIPTA
Formaður Lánasjóðs íslenskra sveitarfélaga fékk góð
ráð frá Guðlaugi Bergmann í upphafi bæjarstjóraferils
síns. Honum finnst gaman að syngj 4a.
Rá
samvinnu við
MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta
Seldu kvóta fyrir 400 milljónir
Flugfélagið WOW air seldi frá sér
umtalsverðan hluta þeirra los-
unarheimilda sem því hafði verið út-
hlutað fyrir árið 2019 áður en félagið
fór í þrot í lok marsmánaðar. Heim-
ildir ViðskiptaMoggans herma að
fyrir heimildirnar hafi félagið fengið
um 400 milljónir króna.
Salan átti sér stað, samkvæmt
sömu heimildum, til þess að bæta
gríðarlega þrönga lausafjárstöðu fé-
lagsins. Hins vegar hafi verið ljóst
þegar gengið var frá sölunni að fé-
lagið þyrfti að kaupa heimildirnar til
baka síðar á árinu, til þess að jafna
út koltvísýringslosun af starfsemi
sinni á árinu. Því var salan hugsuð
sem skammtímaaðgerð til þess að
fleyta félaginu yfir erfiðasta hjall-
ann.
En allt kom fyrir ekki. Viðskiptin
voru gerð á grundvelli þess að and-
virði sölunnar kæmi í hlut WOW air
um nýliðin mánaðamót. Þegar að því
kom var búið að gefa félagið upp til
gjaldþrotaskipta. Því rann andvirði
losunarheimildanna til slitabúsins.
Því er ljóst að í búinu liggja að
minnsta kosti 400 milljónir króna í
reiðufé.Flugrekendur þurfa að afla
sér losunarheimilda í tengslum við
koltvísýringslosun sem til fellur
vegna starfsemi þeirra. Ganga slíkar
heimildir kaupum og sölum á mark-
aði. Þó var flugrekendum, sem þá
voru starfandi, úthlutað endur-
gjaldslausum losunarheimildum árin
2010 og 2014. Flugrekendur sem
auka umsvif sín þurfa því að kaupa
til sín heimildir. Fyrirtæki sem hins
vegar draga úr umfangi starfsemi
sinnar geta þá átt inni heimildir sem
hægt er að losa um innan úthlut-
unartímabils.
Á yfirstandandi ári hafði WOW
air verið úthlutað losunarheimildum
(EUA) upp á 152.382 einingar en
hver eining jafngildir losun eins
tonns af koltvísýringi (CO2). Í dag
gengur hver eining, kaupum og söl-
um á 24,25 evrur eða 3.240 kr. Því er
ljóst að endurgjaldslausar los-
unarheimildir WOW air fyrir árið
2019 eru verðmetnar á 493,7 millj-
ónir króna.Samkvæmt upplýsingum
frá Evrópusambandinu hafði WOW
air einnig tryggt sér endurgjalds-
lausar losunarheimildir upp á
152.382 einingar fyrir árið 2020. Þá
sýnir nýbirtur útreikningur Um-
hverfisstofnunar að félagið hafi átt
von á samanlagt 212.286 einingum
2021-2023. Yfir fjögurra ára tímabil,
2020-2023 hafði félagið því fengið út-
hlutað heimildum upp á 8,8 milljónir
evra, jafnvirði tæplega 1,2 milljarða
króna, sé miðað við núverandi verð-
lagningu heimildanna á markaði.
Heimildir ViðskiptaMoggans herma
hins vegar að úthlutun losunarheim-
ildanna sé bundin því að flugrekandi
hafi gilt flugrekstrarleyfi. Því má
gera ráð fyrir að þrotabú WOW hafi
orðið af þeim verðmætum sem í
heimildunum fólust þegar flug-
rekstrarleyfið var lagt inn þann 28.
mars síðastliðinn.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Forsvarsmenn flugfélags-
ins WOW brugðu á það
ráð að framselja meng-
unarkvóta félagsins í því
skyni að bæta lausa-
fjárstöðu félagsins,
skömmu áður en það féll.
Morgunblaðið/Golli
Flugrekendur þurfa að tryggja sér losunarheimildir vegna starfsemi sinnar.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
10.10.‘18
10.10.‘18
9.4.‘19
9.4.‘19
1.654,29
1.948,59
140
135
130
125
120
134,25
133,85 Sigurður Viðarsson forstjóri TM
segir að félaginu gæti dottið í hug að
stofna sjálft eignaleigu, eftir að fé-
lagið hvarf frá kaupum á eignaleigu-
fyrirtækinu Lykli á síðasta ári. Með
því hugðist fyrirtækið setja nýja
stoð undir reksturinn. „Okkur gæti
dottið í hug að fara sjálf í þetta,
sækja um leyfi, kaupa kerfi og setja í
gang. Eða fara út í einhverja aðra
fjármálatengda starfsemi,“ segir
Sigurður við ViðskiptaMoggann.
Hann segir að „efnahagsreikning-
urinn Ísland“ hafi líklega aldrei ver-
ið traustari. „Við Íslendingar erum
nettó eigendur að fjármagni í út-
löndum. Núna í fyrsta skipti eru það
útlendingar sem skulda okkur en
ekki við þeim, ef allt er tekið saman.
Þá er skuldsetningin í kerfinu ekki
mikil. Það er auðvitað viðbúið að það
verði samdráttur á árinu, en ég hef
fulla trú á að það verði viðsnúningur
strax á næsta ári,“ segir
Sigurður.
Kanna stofnun eignaleigu
Morgunblaðið/Hari
Sigurður segir að staða íslensks
efnahagslífs sé góð nú um stundir.
TM reyndi að kaupa
eignaleiguna Lykil á
síðasta ári með afslætti.
8
Deilur um stuðning evr-
ópskra stjórnvalda við flug-
vélaframleiðandann Airbus
hafa orðið til þess að rík-
isstjórn Donalds Trumps
hyggst nú leggja nýja tolla á
evrópskan varning. Á sama
tíma undirbúa ráðamenn í
Brussel aðgerðir gegn Banda-
ríkjunum vegna þeirra íviln-
ana sem Boeing hefur notið
um árabil. Spennan magnast
milli Brussel og
Washington.
Vilja leggja nýja
tolla á ESB
14