Morgunblaðið - 10.04.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 10.04.2019, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019FÓLK V E R K F RÆÐ I S T O F A Ert þú að spila í myrkri? Af síðum ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum anna, að ákvarða hana,“ bætti hann við. ESB og Kína efndu til sameigin- legs leiðtogafundar í Brussel á þriðju- dag þar sem fyrirhugað var að Li Keqiang, forsætisráðherra Kína, og Donald Tusk, formaður leiðtogaráðs Evrópu, myndu funda ásamt Jean- Claude Juncker, forseta fram- kvæmdastjórnar ESB. Leiðtogafundurinn er sá fyrsti sem haldinn er með kínverskum ráða- mönnum síðan Brussel skilgreindi Kína sem „kerfisbundið samkeppnis- land“ (e. systemic rival) sem reynir að hamla evrópskum fyrirtækjum að- gang að eigin markaði en hvetur sín eigin fyrirtæki, sem njóta opinberrar fyrirgreiðslu, til að útvíkka starfsemi sína á erlendri grundu. ESB hefur heitið því að koma á meiri „gagn- Bandarísk stjörnvöld íhuga nú að leggja tolla á 11 milljarða dala virði af varningi frá ESB – þar á meðal á flugvélar og landbúnaðarvörur á borð við Roquefort-ost og ólífuolíu. Hefur þetta aukið á þá spennu sem einkennt hefur viðskiptasamband Evrópu og Bandaríkjanna að undanförnu. Ríkisstjórn Donalds Trumps segir hækkaða tolla þeirra leið til að bregð- ast við styrkjum ESB til evrópska flugvélaframleiðandans Airbus en Al- þjóðaviðskiptastofnunin úrskurðaði á sínum tíma að styrkirnir hefðu verið ólöglegir. „Alþjóðaviðskiptastofnunin hefur komist að þeirri niðurstöðu að stuðn- ingur Evrópusambandsins við Airbus hafi haft neikvæð áhrif á Bandaríkin sem munu núna leggja tolla á 11 milljarða dala virði af vörum frá ESB!“ ritaði Trump í tísti sem hann birti á þriðjudag. „Evrópusambandið hefur, svo árum skiptir, neytt að- stöðumunar síns í viðskiptum við Bandaríkin. Því verður fljótlega hætt!“ Útspil Bandaríkjastjórnar þykir til marks um að deilur Washington og Brussel hafi stigmagnast en greina hefur mátt vaxandi gremju á milli embættismanna beggja vegna Atl- antsála. Nýju tollarnir koma líka á óheppilegum tíma fyrir ESB enda fara Evrópuþingskosningar fram í næsta mánuði og standa aðildarríkin einnig frammi fyrir mikilli óvissu um niðurstöðu Brexit-samningaviðræðn- anna. Hótanir og spenna Á þriðjudag sagði fulltrúi Airbus að fyrirtækið sæi „engar lagalegar forsendur“ sem réttlættu fyrirhug- aða tolla Bandaríkjastjórnar. Fyrir- tækið hefði þegar „gripið til nauðsyn- legra ráðstafana til að fullnægja þeim tiltölulega smávægilegu úrlausnar- málum sem sátu eftir“, í skýrslu Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar frá því í maí 2018 um ríkisstyrki til Airbus. „Upphæðin er úr öllu hófi og er það hvort eð er Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar, en ekki Bandaríkj- kvæmni“ í viðskiptum á milli Evrópu og Kína. Fyrirhugaðir tollar á vörur frá ESB myndu bætast ofan á þá tolla sem nú þegar leggjast á stál- og ál- vörur sem evrópskir framleiðendur selja til Bandaríkjanna, og eru á teikniborðinu á sama tíma og ríkis- stjórn Trumps hótar að hækka álög- ur á evrópskar bifreiðar og íhluti í nafni þjóðaröryggis. Í heimsókn sinni til Washington í júlí síðastliðnum náði Juncker sam- komulagi við Trump um að hefja samningaviðræður um viðskipti á milli Evrópu og Bandaríkjanna og að ekki yrðu settir á nýir tollar á meðan. En samningaviðræðurnar eru ekki enn hafnar með formlegum hætti og hefur miðað lítið áfram á undirbún- ingsfundum. Ólöglegir styrkir Robert Lighthizer, viðskipta- fulltrúi Bandaríkjastjórnar, ýjaði að því í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir skemmstu að það væri rétt- lætanlegt að hækka álögur á vörur frá ESB því ráðamenn í Brussel hefðu ekki fylgt úrskurði Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar. Airbus hefði notið góðs af ólöglegum „flugtaks- styrkjum“ (e. launch aid) sem Boeing hefði gert athugasemdir við svo árum skipti. „Málareksturinn hefur varað í fjórtán ár og núna er tímabært að grípa til aðgerða. Ríkisstjórnin er að búa í haginn fyrir það að geta brugð- ist við um leið og Alþjóðaviðskipta- stofnunin hefur metið upphæð þeirra mótaðgerða sem Bandaríkin geta gripið til,“ sagði Lighthizer. „Lokamarkmið okkar er að komast að samkomulagi við ESB um að bundinn verði endi á allan ríkis- stuðning sem stangast á við reglur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um framleiðslu flugvéla til farþegaflutn- inga. Þegar ESB lætur af þessum skaðlegu ríkisstyrkjum munum við aflétta þeim tollum sem við þurftum að grípa til.“ Starfsmaður framkvæmdastjórnar ESB segir að 11 milljarðar dala séu upphæð sem „byggist á útreikn- ingum Bandaríkjanna sjálfra, hafi ekki verið ákvörðuð af Alþjóða- viðskiptastofnuninni og sé „mjög úr hófi“. „Þær mótvægisaðgerðir sem Al- þjóðaviðskiptastofnunin mun leyfa verða aðeins ákvarðaðar af gerðar- dómsmanni sem stofnunin tilnefnir,“ sagði þessi sami starfsmaður. Í Brussel er núna unnið að leiðum til að bregðast við því að bandarísk stjórnvöld hafa ekki látið af því að veita Boeing skattaívilnanir, sem skekkja stöðu Airbus. „ESB mun biðja gerðardóms- mann sem Alþjóðaviðskiptstofnunin tilnefnir að ákvarða hvaða rétt Evr- ópusambandið hefur til mót- aðgerða,“ segir starfsmaður fram- kvæmdastjórnarinnar. „Framkvæmdastjórnin er að hefja þann undirbúning sem þarf til að ESB geti, án tafar, gripið til aðgerða í samræmi við ákvörðun gerðar- dómsins. ESB er samt áfram opið fyrir við- ræðum við Bandaríkin, að því gefnu að ekki verði sett nein skilyrði fyrir viðræðunum og þær hafi það mark- mið að komast að sanngjarnri nið- urstöðu,“ sagði hann jafnframt. Hlutabréfaverð Airbus, sem skráð er í kauphöllina í París, hafði lækkað um 2,35 á þriðjudag og stefndi í mestu dagslækkun félagsins síðan 22. mars síðastliðinn. Byggja á sömu lagaheimild Ákvörðun ríkisstjórnar Trumps fylgir fast á hæla úrskurðar Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar um að Bandaríkin hafi sjálf stutt fram- leiðslu Boeing-flugvéla með ólögleg- um hætti – en sá úrskurður fór mjög illa í marga bandaríska embættis- menn. Lighthizer segir að fyrirhugaðir tollar á varning frá ESB séu settir á í samræmi við ákvæði í lögum um al- þjóðaviðskipti frá 1974 – sem eru sömu lögin og notuð voru til að rétt- læta aukna tolla á kínverskar vörur í fyrra. „Listinn yfir þann varning sem stendur til að leggja hækkaða tolla á er gerður til bráðabirgða, en reiknað með að endanlegur listi liggi fyrir á komandi mánuðum að loknu umsagnartímabili og þegar fyrir liggur mat WTO á hve mikilla gagn- aðgerða Bandaríkjunum leyfist að grípa til.“ Bandarikin segja koma til greina að leggja á tvenns konar tolla til að bregðast við þeim ríkisstuðningi sem Airbus hefur notið. Annars vegar væri um að ræða toll á nýjar þyrlur, flugvélar og flugvélaíhluti sem koma frá Frakklandi, Spáni, Þýskalandi og Bretlandi – þeim fjórum löndum þar sem Airbus er með starfsemi. Hins vegar væri lagður tollur á vörur af ýmsu tagi frá öllum aðildar- ríkjum ESB, og þá ekki síst á land- búnaðarvarning. Á bráðabirgðalist- anum má t.d. finna ostategundir af ýmsu tagi, frá Roquefort til pecorino, Gouda og Stilton, auk ýmissa sultu- tegunda. Einnig eru stjórnvöld með ávexti eins og appelsínur og sítrónur í sigtinu, sem og sjávarafurðir á borð við síld, kolkrabba og skelfisk og ýmsar víntegundir. Aðrar vörur, s.s. mótorhjól, borðbúnaður, keramik- flísar, eldhúsvörur, rúmföt, peysur, handtöskur og ilmolíur, rötuðu einnig á listann. Vilja leggja á tolla vegna Airbus-styrkja Eftir James Politi í Washington og Jim Brunsden í Brussel Aukin spenna er hlaupin í samskipti ESB og Banda- ríkjanna vegna deilna um ríkisstuðning við Boeing og Airbus. AFP Hvorki Bandaríkin né ESB eru saklaus þegar kemur að ríkisstyrkjum við volduga flugvélaframleiðendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.