Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
dk iPos snjalltækjalausn
fyrir verslun og þjónustu
Einfalt, fljótlegt og beintengt dk fjárhagsbókhaldi
Smáratorgi 3, 201 Kópavogur • Hafnarstræti 53, 600 Akureyri
510 5800, dk@dk.is, www.dk.is
dk iPos er hluti af snjalltækjalínu dk hugbúnaðar.
Líttu við og fáðu kynningu á þeim fjölbreyttu lausnum
sem dk hugbúnaður hefur fyrir verslun og þjónustu.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Costco efnir til verðstríðs á bjór …
Hyggst endurvekja rekstur WOW …
Vilja selja og leigja þúsundir sport …
Vilja kaupa eignir úr búi WOW
Wizz air á hverjum degi til London
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Íslenska fyrirtækið Controlant hóf á
síðasta ári þátttöku í góðgerðarverk-
efninu Global Good, sem er sam-
vinnuverkefni á milli Bills Gates,
stofnanda Microsoft, og fyrir-
tækisins Intellectual Ventures, þar
sem meginverkefnið er að þróa tæki
sem viðskiptaheimurinn hefur síður
séð tækifæri til þess að ráðast í.
Controlant framleiðir hitaskynjara
sem senda upplýsingar í rauntíma
um staðsetningu og hitastig við-
kvæmra vara sem fyrirtækið selur
meðal annars til alþjóðlegra lyfjafyr-
irtækja. Þátttaka Controlant felst í
því að að þróa og reka eftirlitskerfi
sem fylgist með hitastigi á bóluefn-
um í sérstökum bóluefnaskápum
hönnuðum af Global Good. Samtals
vaktar Controlant yfir 500 slíka
skápa, meðal annars í Kenía og Níg-
eríu. „Okkar þátttaka felst í því að
fylgjast með hitastigi á bóluefnum á
fátækum svæðum í Afríku til þess að
tryggja að börn fái bóluefni sem
uppfylla kröfur framleiðandans,“
segir Gísli Herjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Controlant, í samtali
við ViðskiptaMoggann.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna,
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og
Gates & Melinda Foundation koma
m.a. að því að útvega þessi bóluefni
en Gísli segir að allt að helmingur
þeirra sem gefin eru til Afríku
skemmist vegna geymsluvandamála
áður en sjúklingar fá þau.
„Eitt af því sem hægt er að gera
er að fylgjast með ástandinu á bólu-
efnunum í rauntíma svo hægt sé að
bregðast við áður en þau skemmast.
Þar komum við inn í söguna,“ segir
Gísli og heldur áfram. „Þetta fer á
heilsugæslur sem eru ekki endilega
eins og við þekkjum þær hér á landi.
Þetta er kannski lítill kofi þar sem
eina raftækið á heilsugæslunni er
bóluefnaskápurinn.“
Lausn Controlant er innbyggð inn í bóluefnaskápinn. Gögn um staðsetn-
ingu og hitastig berast í rauntíma í tölvuskýið svo hægt sé að fylgjast með.
Minnka afföll
bóluefna
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Fyrirtækið Controlant
smíðar hitaskynjara í bólu-
efnaskápa á fátækum
svæðum í Afríku til þess að
koma í veg fyrir afföll.
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Í hádeginu í dag fer fram áhuga-verður fundur á vegum Félags
viðskipta- og hagfræðinga þar sem
fjallað verður um hagkerfi undir-
heima. Á mælendaskrá eru þeir
Guðmundur Ingi Þóroddsson, for-
maður Afstöðu, félags fanga á Ís-
landi, og Karl Steinar Valsson,
yfirlögregluþjónn lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu.
Hagkerfi undirheimanna erokkur flestum dulið en svo
virðist sem afkomutölurnar geti
verið nokkuð góðar. Bæði til
skamms tíma og líklega til lengri
tíma í einhverjum tilvikum þar
sem um er að ræða skipulagða
brotastarfsemi. Tekjurnar eru í of-
análag líklegast einnig „skatt-
frjálsar“.
Hagkerfi undirheimanna hefurverið mér hugleikið síðustu
daga í ljósi þess að bílnum mínum
var stolið fyrir 10 dögum. Ekki hef
ég fengið margar ábendingar um
afdrif bílsins, en sögurnar um
hugsanleg áform þjófsins eru
margar hverjar lygilegar og benda
til þess að í hagkerfi undirheim-
anna sé hugsanlega að finna óbeisl-
aðan frumkvöðlakraft sem hægt
væri að nýta á uppbyggilegri hátt.
Í lýsingu á viðburðinum segir aðfjallað verði um brotastarfsemi
á Íslandi frá hagrænu og efnahags-
legu sjónarhorni. Ekki þekki ég
hversu umsvifamikill bílþjófnaður
er hér á landi en mér segir svo
hugur að slík brot geti ekki aflað
þjófum mikilla tekna hér á eyjunni.
Óbeislaður
krafturÓvissa og átök á vinnumarkaðigeta orðið sem helgreipar á
annars þróttmiklu hagkerfi. Það
hefur sannast síðustu mánuði og yf-
irvofandi verkfallsátök hafa kostað
þjóðarbúið gífurlegar fjárhæðir.
Þegar loksins var slökkt í bálkest-
inum sem sífellt hafði verið hlaðið í
frá liðnu hausti vörpuðu margir
öndinni léttar og markaðurinn lýsti
ástandinu vel. Þótt hið hraðfleyga
og ört vaxandi WOW air félli með
braki og brestum hefur krónan
styrkst á síðustu dögum og víst er
að margur atvinnurekandinn er ei-
lítið upplitsdjarfari en hann hefur
leyft sér að vera síðasta misserið
eða svo.
Og hagkerfið hefur alla burði tilþess að taka við sér að nýju
eftir mikinn samdrátt í bílasölu,
aukið atvinnuleysi og þann almenna
doða sem óhjákvæmilega kemur yf-
ir atvinnulífið þegar lamandi óvissa
heltekur kerfið í heilu lagi. Lágt
skuldahlutfall heimila og ríkissjóðs
er teikn um hina sterku stöðu og
það eru tiltölulega hóflegar verð-
bólgumælingar síðustu mánuði
einnig.
Tækifærin liggja víða og nú ermikilvægt að atvinnufyrirtækin
láti hendur standa fram úr ermum,
fjárfesti og byggi upp. Það er grund-
völlur þess að einkaneysla haldist
kröftug sem aftur er forsenda þess
að verslun og þjónusta fái þrifist
með góðu móti. Og sé atvinnulífið á
tánum og almenningur tilbúinn til að
verja sjálfsaflafé sínu til fjárfest-
ingar og í neyslu er einnig von til
þess að ríkissjóður hafi úr nógu að
spila. Án fyrrnefndu þáttanna er
sjóðurinn sá nokkuð örugglega í
vanda staddur.
Það vekur því nokkurn ugg, núþegar stærstu viðsemjendur á
almennum vinnumarkaði hafa slíðr-
að sverðin, í von um að bjarga megi
verðmætum og blása að nýju lífi í ís-
lenskt hagkerfi, að forystumenn op-
inberra starfsmanna fari mikinn og
reisi nú kröfugerðir sem ganga í
mörgum tilvikum mun lengra en hin-
ir svokölluðu „lífskjarasamningar“
kváðu á um. Þeir hinir sömu mættu
minnast þess sem minnst var á hér
að ofan. Það verður lítið að sækja til
ríkis og sveitarfélaga, nema sáttin á
almenna markaðnum haldist.
Byggt á traustum grunni
Breska vöruhúsið
Debenhams hefur ver-
ið sett í greiðslu-
stöðvun og tekið yfir af
kröfuhöfum félagsins.
Debenhams í
greiðslustöðvun
1
2
3
4
5