Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum En hvað ætli valdi því að íslenskt skip, undir íslenskri stjórn, sinni þessu verki fyrir þetta ríki sem fæstir hér á landi kunna mikil deili á? Svarið við þeirri spurningu er best að sækja til eiganda skipsins og þess manns sem yfirvöld í Óman treystu best til samstarfs um mögu- lega uppbyggingu nútímavædds sjávarútvegs í landinu. Það er Har- aldur Jónsson, oftast kenndur við Úthafsskip í Hafnarfirði. „Það er í raun stór fjárfesting- arsjóður í eigu soldánsins, Qaboos bin Said Al Said, sem skoðar nú möguleika á því að hefja veiðar á þessu svæði. Það hefur staðið nær ónýtt með öllu frá árinu 1992 en fram að þeim tíma höfðu stór verk- smiðjuskip, einkum frá Kóreu og Kína, stundað veiðar á svæðinu um einhverra ára skeið. Eftirlit og upp- lýsingar um veiðarnar voru af skornum skammti og stjórnvöld í Óman ráku skipin út úr landhelginni og bönnuðu togveiðar nokkru síð- ar.“ Kom fyrst til Óman 1985 En þótt stjórnvöld í þessu fjarlæga landi leggi nú á djúpið er blaðamað- ur enn eitt spurningarmerki yfir því að íslensk útgerð skuli koma að fyrstu veiðunum. „Ég kom fyrst til Óman árið 1985 til þess að kynnast tækifærum í sjávarútvegi þar í landi. Þegar sjóð- urinn fór að þreifa fyrir sér um að hefja veiðar að nýju vissu menn þar í landi af mér og útgerðinni sem ég hef starfrækt, einkum úti fyrir vest- urströnd Afríku. Þeir höfðu auk þess aflað upplýsinga um hana og úr varð að þeir sömdu við okkur um að koma að þessu verkefni með þeim í eitt ár.“ Haraldur segir að reyndar sé stundaður sjávarútvegur í Óman nú þegar en að hann sé fremur frum- stæður og aðeins sé sótt á grunn- sævi nærri landi. „Þegar ég kom til landsins 1985 var soldáninn nýbúinn að gefa sjó- mönnum 600 plastbáta með utan- borðsmótor, bara í þeim stíl sem við notum á Þingvallavatni, og á þeim sóttu þeir stutt út fyrir ströndina. Fram að þeim tíma höfðu þeir að mestu verið með eintrjáninga og trébáta. Og enn eru þeir bara með þessa litlu báta, en þeir skipta þús- undum og eru dreifðir eftir allri strandlengjunni. Og það er svo sem engin smáútgerð því þeir landa um Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is Þ að er tekið að rökkva í hafnarborginni Salálah, syðst í Óman, þegar skip- stjórinn á Viktoríu fær heimild til að leggjast að bryggju. Fáir sem staddir eru við höfnina gera sér grein fyrir að í brúnni stendur íslenskur skipstjóri og útgerðin sem á skipið er íslensk. En koma skipsins markar tímamót í útgerðarsögu þessa auðuga araba- ríkis sem ræður stórum hluta strandlínu Arabíuskagans. Aldrei fyrr hefur skip komið að landi með jafn mikinn afla og þetta síðdegi í mars síðastliðnum en hann er 1.400 tonn af frystum uppsjávarteg- undum. Fiskurinn var dreginn úr sjó á Arabíuhafi, innan 200 sjómílna landhelgi landsins, en innan hennar hafa engar togveiðar verið stund- aðar frá árinu 1992, svo heitið getur. Kortleggur hafsbotninn En Viktoría mun næsta árið sigla um hafið úti fyrir Óman, ekki aðeins til þess að sækja fisk í sjó, heldur einnig til þess að kortleggja hafs- botninn og afla þekkingar á hinu víðfeðma hafsvæði. Sú reynsla mun ákvarða framhaldið og hvort stjórn- völd í Óman muni leggja aukna áherslu á að sækja í hinar miklu auðlindir sem ekkert hefur verið hróflað við í nær þrjá áratugi. 300 þúsund tonnum á ári, en helm- ingurinn af því er sardína sem er verðlítill fiskur.“ Haraldur segir að hinn mikli afli sem þó sé sóttur í sjó fari á heima- markað. Að mestu sé um ferskan fisk að ræða en eitthvað sé þó einnig fryst til útflutnings. Fylgst með þróun fiskistofna Þrátt fyrir togveiðabannið hafa stjórnvöld í Óman reynt að fylgjast með þróun fiskistofnanna og það hefur verið gert með aðstoð frá út- löndum. Flest sem þar hefur komið í ljós bendir til þess að stofnanir hafi bara vaxið og vaxið. Til að mynda meta sérfræðingar það svo að um 1,3 milljónir tonna af hesta- makríl séu í lögsögunni og það er gríðarlegt magn. „En á þessum fyrsta mánuði sem við höfum verið í þessu verkefni hef- ur einnig margt nýtt og óvænt kom- ið í ljós. Það er ekki bara mikill hestamakríll þarna heldur einnig makríll. Áður en við hófumst handa var talið að hann væri ekki í miklu magni þarna og þess vegna virðist auðlindin meiri en í fyrstu var búist við.“ Og það eru fleiri verkefni en að kanna tegundafjölbreytnina sem bíða Viktoríu. Ónákvæm sjókort eða upplýsingar um hafsvæðið eru til. Af þeim sökum er skipið ekki aðeins að veiðum heldur hefur það einnig með höndum það vandasama verk- efni að kortleggja hafsbotninn. Haraldur segir að hafsvæðið inn- an lögsögu Óman sé gríðarlega stórt og því sé í raun óheppilegt að aðeins eitt skip eigi að sinna þessu mikla verkefni. „Það er eins og að leita að nál í heystakki að finna uppsjávarfisk á svona miklu svæði sem hegðar sér mismunandi eftir hitastigi, dýpi og straumum. Það hefði verið miklu betra að fara þarna inn með fleiri skip til að kortleggja fiskigöngur og annað slíkt því menn vita ekkert um það hvernig fiskurinn gengur þarna. Að því leytinu til er þetta erfitt verkefni en það hefur þó gengið ótrúlega vel nú til að byrja með,“ segir Haraldur. Ekki veiðireynsla til staðar Spurður út í hvort veiðarnar við Óman séu af svipuðum toga og þær sem hann hafi svo mikla reynslu af úti fyrir vesturströnd Afríku segir Haraldur að ýmislegt sé svipað en annað ekki. „Munurinn þarna og í Afríku er sá að þegar við hófum veiðar á síð- arnefnda staðnum var veiðireynsla til staðar og þar höfðu skip verið að veiðum og á þeim grunni höfðu orð- ið til upplýsingar sem hægt var að nýta og styðjast við. Þarna er því einfaldleg ekki til að dreifa.“ Haraldur segist hafa mikla trú á þessu verkefni hjá yfirvöldum í Óm- an og að þarna sé tækifæri til að byggja upp öflugan sjávarútveg til framtíðar. Það muni hins vegar taka tíma. „Í Óman eru stóru skipafélögin, eins og Mærsk og MSC, með starf- semi og því er auðvelt að landa fisk- inum og láta hann í frystigáma. Skipaleiðirnar sjá svo um að dreifa afurðunum áfram út um heiminn. En stjórnvöld í Óman vilja einnig hefja landvinnslu og það mun taka tíma að byggja hana upp. Til þess þarf bæði skip sem geta sótt á miðin og skilað góðu hráefni til vinnslu en það þarf einnig að byggja upp hafn- araðstöðu og landvinnsluna sem slíka.“ Tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki Segir Haraldur að í þessari upp- byggingu muni felast mikil tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki. Ekki aðeins þau sem byggja á veiðiþekkingu heldur einnig fyrirtæki á borð við Marel, Skagann 3X, Völku og fleiri fyrirtæki sem framleiði tækjabúnað sem nauðsynlegur er í framleiðslu af þessu tagi. Haraldur segir að Viktoría henti afar vel til þess verkefnis sem hún hefur nú verið kölluð til í hinu fjar- læga landi. „Þetta er skip sem smíðað var í Póllandi fyrir hollenskt fyrirtæki árið 1987. Það er 94 metrar á lengd. Við keyptum það svo 2008 og á því erum við með tvær áhafnir sem skiptast á. Það eru um 60 manns í hvorri áhöfn og það eru íslenskir skipstjórar, þeir Gunnar Gray og Flosi Arnórsson, sem stýra því af mikilli röggsemi.“ Afar spennandi verkefni Fróðlegt verður að fylgjast með þessu verkefni í Óman á komandi misserum en Haraldur sem um ára- tugaskeið hefur staðið í útgerð bæði hér heima og erlendis segir að þetta sé eitt mest spennandi verkefni sem hann hafi komið að. „Þarna eru mjög stór tækifæri ef rétt er haldið á spilunum. Það er af- ar skemmtilegt að fá að vinna þetta með fólkinu í Óman og ég er viss um að mjög gott skref hafi verið stigið með því að hefja veiðarnar að nýju. Þarna er auðlind sem rétt er að nýta.“ Victoria kemur að bryggju í Salálah með fyrsta farminn, 1.400 tonn af frystum fiski. Skipið er 94 metrar að lengd. Leiðir tilraunaveiðar í Óman Íslenskir skipstjórar á vegum íslenskrar út- gerðar stýra nú til- raunaveiðum innan landhelgi Omans í Arab- íuhafi. Fyrstu túrar gefa góða raun og tækifæri gætu leynst fyrir íslensk fyrirtæki í frekari upp- byggingu sjávarútvegs í hinu fjarlæga ríki. Morgunblaðið/Árni Sæberg Haraldur Reynir Jónsson er með reynslumestu útgerðarmönnum landsins. Hann var kallaður til samstarfs við yfirvöld í Oman um tilraunaveiðarnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.