Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 11
Ný tækifæri fyrir fyrirtækið þitt SveitarfélagiðÖlfus nær fráKrýsuvík í vestri aðAlviðruvið Ingólfsfjall í austri og er í heild um750 km2. Landslag sveitarfélagsins einkennist af sandfjörum,klettabjörgum,hellum, hrauni og jarðhitasvæðum. Helstu atvinnugreinar eru fiskveiðar ogvinnsla,verslun og þjónusta, landbúnaður og iðnaður. Ölfus er í nálægðvið borgina og aðeins er um40 kmaksturmilli Þorlákshafnar og höfuðborgarsvæðisins. Á síðustu árum hefur verið unnið að verkefnum sem hafa það að markmiði að gera sveitarfélagið að eftirsóknar- verðum stað til búsetu og ekki síður að áhugaverðum valkosti fyrir atvinnustarfsemi. Höfnin í Þorlákshöfn hefur verið í mikilli uppbyggingu og stefnan er á enn frekari uppbygginu sem þjónustað getur stærri skip og aukin umsvif. Höfnin byggðist upphaflega sem fiskiskipahöfn en vöruflutningar um hana hafa aukist mikið.Vegna landfræðilegrar legu og bættrar hafnaraðstöðu má búast við miklum vexti vöruflutninga um höfnina.Hægt að stytta siglingatímann til Íslands töluvert með því að sigla til Þorlákshafnar frá Evrópu í stað Reykjavíkur.Á siglingaleiðinni munar allt að 10 klukkustundum aðra leiðina á meðan ferð frá Þorlákshöfn, landleiðina, til Reykjavíkur tekur einungis rúmlega hálfa klukkustund. Færeyska skipafélagið Smyril Line Cargo, sem á og rekur farþega- og vöruflutningaferjuna Norrænu, siglir beint milli Þorlákshafnar og Rotterdam. Ferjan þeirra heitir Mykines og er 19 þúsund tonn.Hún getur tekið 90 tengivagna og 500 bíla í hverri ferð. Ferjusiglingarnar hafa stóraukið umsvif í Þorlákshöfn og með tilkomu nýju ferjunnar hefur þjónusta Smyril Line Cargo við íslenska markaðinn stóraukist og tengslin við suðvesturhorn landsins eflst. Siglt er vikulega á milli, með viðkomu í Færeyjum á heimleiðinni, og flutningstími styst fyrir bæði inn- og útflutning frá því sem var. Í Þorlákshöfn er mikið úrval lóða ætlaðar fyrirtækjum af ýmsum stærðum og gerðum. Fyrir liggur nýtt skipulag á stóru iðnaðar- og þjónustusvæði við höfnina. Landrými er mikið og aðstæður allar góðar til uppbyggingar. Staðsetningin er mjög heppileg út frá helstu skilyrðum sem fjárfestar setja t.d. um staðarval fyrir iðnað og fram- leiðslu en er ekki síður kjörin vegna annarrar starfsemi. Frá Þorlákshöfn eru góðar og greiðfærar samgöngur á landi til allra átta, aðeins 40 km til Reykjavíkur og ekki nema 85 km í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eftir Suðurstrandarveginum. Mikil tækifæri felast í hafnarsvæðinu í Þorlákshöfn og hefur sveitarfélagið unnið að uppbyggingu þess síðastliðin ár og eru þær áætlanir enn í gangi.Með þessari upp- byggingu er verið að stuðla að fjölbreyttari starfsemi á svæðinu og þannig að laða að ný fyrirtæki.Hlutir af þessari vinnu hefur verið að efla höfnina til þess að taka á móti stærri skipum og um leið huga að tækifærum tengdum ferðaþjónustunni.Nú er búið að breikka inn- siglinguna, dýpka höfnina og búa til 230 m snúningsflöt innan hafnarinnar. Samhliða breytingunum á hafnar- svæðinu er búið að vinna nýtt deiliskipulagi fyrir hafnar- svæðið með fjölbreyttum atvinnulóðum.Undirbúningur innviða er í gangi og verða lóðir tilbúnar til úthlutnar fljótlega.Áhugasömum er bent á að hafa samband og kynna sér málið frekar. Einnig er búið að skipuleggja iðnaðarsvæði um 3 km vestan Þorlákshafnar með stærri lóðum fyrir iðnað sem ekki er mengandi en gæti þó haft lyktar-, hljóð- og/eða ásýndartruflandi áhrif fyrir íbúa Þorlákshafnar. Þar eru ýmis fyrirtæki fyrir umfangsmeiri starfsemi og eru lóðir lausar til úthlutunar. Nýtt norðursvæði hafnarinnar, sem uppdrátturinn sýnir, er ætlað undir hafnsækna starfsemi og ýmis- konar þjónustu við hafnarstarfsemina. Starfsemi á hafnarsvæðum skal vera skv. ákvæðumnýs deili- skipulags.Gert er ráð fyrir að innan reitsins geti einnig verið til dæmis heildsölur,verkstæði og hrein- legur léttur iðnaður sem getur notið góðs af virkri inn- og útflutningshöfn. Þar sem byggingarreitir ná yfir fleiri en eina lóð er heimilt að byggja lóðirnar eins og um eina lóð sé að ræða.Heimilt er einnig að reisa einstaka hærri mannvirki eins og krana, síló, tanka o.þ.h. Lóðir eru allt frá 3.000m2 og upp í 18.000m2, nýtingarhlutfall lóða er 0,4. Nánari upplýsingar um höfnina, sveitarfélagið og skipulag má fá finna áwww.thorlakshofn.is eða www.olfus.is. Beina skal spurningum og fyrir- spurnum til ElliðaVignissonar, bæjarstjóra, á ellidi@olfus.is eða í síma 480-3800. ...hamingjan er hér! www.olfus.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.