Morgunblaðið - 16.04.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 16.04.2019, Qupperneq 12
Morgunblaðið/Árni Sæberg Pétur segir að grundvallarbreyting hafi orðið á sýnileika Íslands erlendis. þjónustu. Þessi aukna jákvæðni sýnir glögglega að tækifærin eru til staðar en sama könnun leiddi engu að síður í ljós að 72% svarenda gátu ekki nefnt neina íslenskar vöru eða vörumerki. Fiskur var samt sú vara sem svar- endur gátu helst tengt við Ísland.“ Ímynd Íslands virðist svo sterk að neytendur segjast líklegir til að taka íslenska vöru fram yfir vöru frá öðr- um löndum. „Þegar fólk er spurt hversu mikinn áhuga það hefði á að kaupa fisk frá hverju af eftirfarandi fimm löndum: Íslandi, Noregi, Spáni, Færeyjum og Kína, þá fékk Ísland hæstu einkunnina og veittu 78% svar- enda íslenskum fiski einkunnina 8, 9 eða 10 á skala frá 1-10. Voru það tveimur prósentustigum fleiri en gáfu norskum fiski jafngóða einkunn,“ segir Pétur en viðhorfskannanirnar sem hann vísar til voru gerðar í Bandríkjunum, Frakklandi, Bret- landi, Þýskalandi, Danmörku og Kan- ada. Ísland sýnilegt um allan heim Að sögn Péturs er sennilegasta skýr- ingin á þeim meðbyr sem íslenskar Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is H eimurinn er að breytast með þeim hætti að það ætti að hafa jákvæð áhrif á úflutning á íslenskum sjávarafurðum. Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Ís- landsstofu, gerði þessu skil í erindi sem hann flutti á ársfundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á föstudag. „Við sjáum einkum tvenns konar breytingar sem ættu að gera það að verkum að eftirspurn eftir íslenskum sjávarfurðum mun aukast,“ segir hann. „Annars vegar er um að ræða breytingar á hegðun neytenda um all- an heim sem í dag líta í æ vaxandi mæli til uppruna matvöru, heilnæmis og sjálfbærni framleiðslunnar. Hin breytingin er síðan sú grundvall- arbreyting sem orðið hefur á und- anförnum árum á ímynd Íslands og almennri þekkingu fólks úti í heimi á Íslandi.“ Kippur í áhuga Pétur bendir á að allt frá árinu 1999 hafi reglulega farið fram kannanir sem mæla viðhorf útlendinga til Ís- lands og sýna tölurnar svart á hvítu hvernig Ísland nýtur aukins meðbyrs hjá hinum almenna neytanda. „Á sjö árum hefur t.d. áhugi breskra svar- enda á íslenskum vörum tvöfaldast svo að um 65% Breta kváðust vera já- kvæð gagnvart íslenskum vörum og vörur njóta, hve mikla umfjöllun Ís- land hefur fengið jafnt í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum undanfarinn ára- tug. Mikill áhugi hefur kviknað á Ís- landi og jafnvel hinum megin á hnett- inum heillast fólk af fallegum myndum af íslensku landslagi, og dreymir um að ferðast til þessa kalda og hreina lands. „Almenningur úti í heimi hefur ekki bara áhuga á ferða- lögum til Íslands heldur vill fá að vita meira um landið,“ segir Pétur en minnir jafnframt á að það sé ekki sjálfgefið að viðhalda þessum áhuga. „Við þurfum að halda áfram að stunda markvisst markaðsstarf til að geta notið góðs af til langframa. Það er mikilvægt að viðhalda þeirri stöðu sem við höfum í dag, og ef til vill að hugsa markaðssetningu Íslands svip- að og gert er hjá fyrirtækjum sem standa fremst í alþjóðamarkaðssetn- ingu, á borð við Nike og Apple: þar er markaðsstarfinu haldið áfram af full- um krafti þó allir þekki vöruna.“ Borga hærra verð fyrir gæðin Um breytta kauphegðun neytenda segir Pétur rannsóknir ekki aðeins sýna að almenningur hafi meiri áhuga á hreinum og heilnæmum matvælum sem framleidd eru með ábyrgum hætti, heldur eru stórir hópar neyt- enda reiðubúnir að borga hærra verð fyrir slíka vöru. „Við sjáum þessa þróun gerast mjög hratt og er greini- legt að yngra fólkið lætur þessa eig- inleika sig miklu varða þegar keypt er í matinn enda aldurshópur sem er vel meðvitaður um að leggja sitt af mörk- um sem neytendur til að bæta um- gengni mannkyns við plánetuna. Staðreyndin er sú að Ísland hefur bæði sterka og jákvæða ímynd sem m.a. tengist sjálfbærni og óspilltri náttúru. Pétur nefnir árangur Norðmanna við markaðssetningu sjávarafurða sem dæmi um hverju væri hægt að áorka. „Þar hefur mikill metnaður og fjárfesting verið lögð í að kynna norskar sjávarafurðir og aðgreina þær á markaðnum með markvissum aðgerðum. Segja Norðmennirnir að þessi markaðssetning, eins og hún snýr að norskum sjávarafurðum, skýri um 10% af því verði sem þeim tekst að fá fyrir sína vöru,“ segir Pét- ur. „Ef við gætum náð sams konar ávinningi á okkar þremur mikilvæg- ustu mörkuðum þá væri ávinning- urinn 7 milljörðum króna hærri út- flutningstekjur fyrir íslenskt sjávarfang ár hvert.“ Saga sem þarf að segja Pétur bendir á að helst sé hægt að fara þrjár leiðir til að finna nýjar tekjur fyrir íslenskan sjávarútveg, og eiga markaðs- og ímyndarmál þar stóran hlut. „Fyrsta leiðin er að finna nýjar tegundir sem hægt er að nýta og er t.d. skemmst að minnast árang- ursins í sæbjúgnaveiðum og -sölu sem hafa búið til 1,5 milljarða króna at- vinnugrein,“ segir hann. „Í öðru lagi getum við freistað þess að auka magnið, og þar sjáum við að fiskeldið hefur aukist mjög mikið á und- anförnum árum. Þriðji möguleikinn er síðan að auka virði þess sem við veiðum nú þegar og þar komum við að markaðsmálunum. Íslenskur sjáv- arútvegur hefur mjög sterka sögu að segja, við þurfum bara að segja hana með enn sterkari hætti.“ Jafnframt minnir Pétur á að allt markaðsstarf tengt Íslandi styðji hvað við annað, og geti t.d. kynning á Íslandi sem áfangastað ferðamanna hjálpað til við markaðssetningu á ís- lenskum fiski – og öfugt. „Við höfum séð góðan árangur af því að leiða saman fyrirtæki úr ólíkum áttum undir merkjum Iceland Naturally í Norður-Ameríku undanfarna tvo ára- tugi og með Team Iceland verkefninu í kringum HM á síðasta ári. Þar komu t.d. saman ferðaþjónustufyrirtæki, sjávarútvegsfyrirtæki, Samtök iðn- aðarins og fleiri og gátu saman teflt fram jákvæðum skilaboðum um Ís- land og íslenska vöru.“ „Íslenskur sjávarútvegur hefur mjög sterka sögu að segja“ Um allan heim er fólk forvitið um Ísland og ís- lenskar vörur, og tengir landið við gæði, sjálf- bærni og hreinleika. Út- hugsað markaðsstarf ætti að geta stóraukið útflutningstekjur sjáv- arútvegsins. Morgunblaðið/RAX Ljósmynd Ragnars Axelssonar af sjómanni á Ísafjarðardjúpi fangar ágætlega hluta af þeirri sögu sem íslenskur sjávarútvegur gæti sagt. Uppruni fisksins ætti að höfða sterkt til neyt- enda um allan heim. 12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019 Hafnarbraut 25 | 200 Kópavogi | Sími 554 0000 | www.klaki.is HVOLFARARKARA Handhægir ryðfríir karahvolfarar í ýmsum gerðum. Tjakkur vökvadrifinn með lyftigetu frá 900 kg. Halli að 110 gráðum. Vinsælt verkfæri í matvælavinnslum fiski – kjöti – grænmeti Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.