Morgunblaðið - 16.04.2019, Page 14

Morgunblaðið - 16.04.2019, Page 14
Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is V aldimar Óskarsson fram- kvæmdastjóri alþjóðlegu flutningsmiðlunarinnar DB Schenker á Íslandi segir að vandi steðji að fraktflutningum á eldisfiski frá Ís- landi vegna falls WOW air. „Ég held að nú yfir páskana verði allt fullt í flugfrakt, og ekkert pláss að hafa,“ segir Valdimar í samtali við Morg- unblaðið. Valdirmar, sem hélt erindi undir yfirskriftinni „Aðfangakeðjan frá Íslandi, Noregi og Færeyjum. Hvernig stöndumst við samkeppn- ina“ á ráðstefnunni Strandbúnaði á dögunum, segist þar hafa verið að benda á hverju útflytjendur megi búast við hvað varðar tímalengd í flutningum á fiski. Segir hann að þegar skoðaður er flutningstími og verð þá séu Íslendingar undir í samkeppninni miðað við nágranna- löndin. „Eldisfiskurinn sækir mikið inn á Bandaríkjamarkað og pláss langt undir þörfum,“ segir Valdi- mar. Færeyingar eru nær markaðnum Í erindinu kom fram að útflutn- ingur eldisfisks frá Íslandi árið 2018 hafi numið 17 þúsund tonnum. 95% hafi verið ferskur fiskur, og 5% frosinn fiskur. Til samanburðar fluttu Norðmenn út 1,1 milljón tonna af eldisfiski árið 2018 og Færeyingar 70 þúsund tonn. „Við þurfum helst að koma vör- unni með flugi út á flugvöll með al- þjóðlegar tengingar. En flug frá Ís- landi er dýrt. Við getum keppt með því að senda vöruna í skipi og síðan flugi eins og Færeyingar gera. Þeir gera mikið af því að sigla fyrsta hlutann og fljúga svo annan hlut- ann. Með því myndum við standa okkur í verðsamkeppni, en við stöndumst ekki samkeppni í tíma- lengd. Færeyingar eru til dæmis miklu nær stórum alþjóðlegum flugvöllum, og eru bara 40 klukku- stundir að sigla með fiskinn. Ef við fljúgum með fiskinn frá Íslandi þá getum við keppt við Norðmenn hvað tíma varðar, en þá er flutning- urinn orðinn helmingi dýrari.“ Valdimar segir að eitt af því sem geri fraktflutninga frá Íslandi erf- iða sé að það sé mun minni innflutn- ingur en útflutningur svo útflytj- andinn sé alltaf að borga fyrir báða leggina, þar sem flugvélarnar koma tómar af frakt heim. Þá sé oft erfitt að flytja út eldisfisk, því hann greiðir lægstu fraktina, og þarf því að víkja fyrir betur borguðum vörum á alþjóðaflugvöllum,eins og nýjum i-phone símum til dæmis. Erlendu félögin taka ekki frakt En hvernig hafa menn brugðist við falli WOW og því plássi sem þar tap- aðist í fraktflutningum? „Icelandair er að reyna að stækka sínar vélar, en erlendu flugfélögin eru almennt ekki að taka neina frakt, félög eins og Easy Jet, Wizz air, Norwegian tekur smá en þeir fljúga líka á staði þangað sem við sendu ekki okkar afurðir eins og Bergen. Sum flugfélög taka frakt, en neita að taka fisk út af hættunni á því að einhverjir kassar brotni og skemmi út frá sér.“ Valdimar segir að einnig sé ekki sama hvort verið sé að flytja lax eða hvítfisk. Hvítfiskur sé betur borg- andi vara, og laxinn víki fyrir honum í flugfraktinni. „Íslendingar hafa náð frábærum árangri síðustu ár í að búa til merkjavöru úr hvítfiskinum. Eldislaxinn íslenski er ekki enn orð- in sama sérvaran.“ Spurður um líftíma afurðanna og hvort það sé skaðlegt að varan sé lengi í skipi, segir Valdimar að fisk- urinn sé fluttur ísaður, og sigling frá landinu taki 4-5 daga. „Kælikeðjan er algjörlega lokuð og gámurinn er stilltur á mínus eina gráðu. Menn ná að halda fiskinum í mjög góðu ásig- komulagi. Þá má nefna að í fluginu er ákveðin áhætta líka, þar sem ekki er hægt að kæla fiskinn þar. Skip eru í raun mjög góð flutningsleið, en framleiðsludagsetningin er alltaf stimpluð á vöruna, og menn horfa svolítið á það.“ Valdimar bendir á að fiskur á beini haldi sér lengur. „Menn hafa talað um 14 -20 daga geymslutíma á ferskum fiski við réttar aðstæður.“ Hvað framtíðina varðar segir Valdimar að fyrirséð sé að fram- leiðsla á eldislaxi hér á landi muni þrefaldast, og því þurfi að tækla flutningsvandann. „Annaðhvort þurfa flugfélög að fjölga breiðþotum, eða menn að vera tilbúnir að greiða meira fyrir fraktina. Eða þá að setja vörurnar í skip. Maður er ekki að sjá að kerfið geti tekið við mikilli magn- aukningu á næstu árum. Ef Íslend- ingum tekst að gera sérvöru úr lax- inum eins og Skotar hafa t.d. gert með sinn lax, þá auðveldar það málið líka.“ Starfsemi DB Schenker á Íslandi skiptist til helminga í inn- og út- flutning, og segir Valdimar að- spurður að 90% af útflutningnum sé fiskur. „Það fóru 35 þúsund tonn af fiski um okkar flutningaumsjón í fyrra.“ „Skip eru í raun mjög góð flutningsleið, en framleiðsludagsetningin er alltaf stimpluð á vöruna, og menn horfa svolítið á það,“ segir Valdimar við 200 mílur. Vandi steðjar að flutningi á eldisfiski Huga þarf að flutningi á eldisfiski frá Íslandi á næstu árum þar sem viðbúið er að fram- leiðslan þrefaldist. Morgunblaðið/Hanna Valdimar er framkvæmdastjóri flutningsmiðlunarinnar DB Schenker á Íslandi. 14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.