Morgunblaðið - 16.04.2019, Síða 14
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
V
aldimar Óskarsson fram-
kvæmdastjóri alþjóðlegu
flutningsmiðlunarinnar
DB Schenker á Íslandi
segir að vandi steðji að
fraktflutningum á eldisfiski frá Ís-
landi vegna falls WOW air. „Ég held
að nú yfir páskana verði allt fullt í
flugfrakt, og ekkert pláss að hafa,“
segir Valdimar í samtali við Morg-
unblaðið.
Valdirmar, sem hélt erindi undir
yfirskriftinni „Aðfangakeðjan frá
Íslandi, Noregi og Færeyjum.
Hvernig stöndumst við samkeppn-
ina“ á ráðstefnunni Strandbúnaði á
dögunum, segist þar hafa verið að
benda á hverju útflytjendur megi
búast við hvað varðar tímalengd í
flutningum á fiski. Segir hann að
þegar skoðaður er flutningstími og
verð þá séu Íslendingar undir í
samkeppninni miðað við nágranna-
löndin. „Eldisfiskurinn sækir mikið
inn á Bandaríkjamarkað og pláss
langt undir þörfum,“ segir Valdi-
mar.
Færeyingar eru nær markaðnum
Í erindinu kom fram að útflutn-
ingur eldisfisks frá Íslandi árið
2018 hafi numið 17 þúsund tonnum.
95% hafi verið ferskur fiskur, og
5% frosinn fiskur. Til samanburðar
fluttu Norðmenn út 1,1 milljón
tonna af eldisfiski árið 2018 og
Færeyingar 70 þúsund tonn.
„Við þurfum helst að koma vör-
unni með flugi út á flugvöll með al-
þjóðlegar tengingar. En flug frá Ís-
landi er dýrt. Við getum keppt með
því að senda vöruna í skipi og síðan
flugi eins og Færeyingar gera. Þeir
gera mikið af því að sigla fyrsta
hlutann og fljúga svo annan hlut-
ann. Með því myndum við standa
okkur í verðsamkeppni, en við
stöndumst ekki samkeppni í tíma-
lengd. Færeyingar eru til dæmis
miklu nær stórum alþjóðlegum
flugvöllum, og eru bara 40 klukku-
stundir að sigla með fiskinn. Ef við
fljúgum með fiskinn frá Íslandi þá
getum við keppt við Norðmenn
hvað tíma varðar, en þá er flutning-
urinn orðinn helmingi dýrari.“
Valdimar segir að eitt af því sem
geri fraktflutninga frá Íslandi erf-
iða sé að það sé mun minni innflutn-
ingur en útflutningur svo útflytj-
andinn sé alltaf að borga fyrir báða
leggina, þar sem flugvélarnar koma
tómar af frakt heim. Þá sé oft erfitt
að flytja út eldisfisk, því hann
greiðir lægstu fraktina, og þarf því
að víkja fyrir betur borguðum
vörum á alþjóðaflugvöllum,eins og
nýjum i-phone símum til dæmis.
Erlendu félögin taka ekki frakt
En hvernig hafa menn brugðist við
falli WOW og því plássi sem þar tap-
aðist í fraktflutningum?
„Icelandair er að reyna að stækka
sínar vélar, en erlendu flugfélögin
eru almennt ekki að taka neina
frakt, félög eins og Easy Jet, Wizz
air, Norwegian tekur smá en þeir
fljúga líka á staði þangað sem við
sendu ekki okkar afurðir eins og
Bergen. Sum flugfélög taka frakt, en
neita að taka fisk út af hættunni á
því að einhverjir kassar brotni og
skemmi út frá sér.“
Valdimar segir að einnig sé ekki
sama hvort verið sé að flytja lax eða
hvítfisk. Hvítfiskur sé betur borg-
andi vara, og laxinn víki fyrir honum
í flugfraktinni. „Íslendingar hafa
náð frábærum árangri síðustu ár í að
búa til merkjavöru úr hvítfiskinum.
Eldislaxinn íslenski er ekki enn orð-
in sama sérvaran.“
Spurður um líftíma afurðanna og
hvort það sé skaðlegt að varan sé
lengi í skipi, segir Valdimar að fisk-
urinn sé fluttur ísaður, og sigling frá
landinu taki 4-5 daga. „Kælikeðjan
er algjörlega lokuð og gámurinn er
stilltur á mínus eina gráðu. Menn ná
að halda fiskinum í mjög góðu ásig-
komulagi. Þá má nefna að í fluginu
er ákveðin áhætta líka, þar sem ekki
er hægt að kæla fiskinn þar. Skip
eru í raun mjög góð flutningsleið, en
framleiðsludagsetningin er alltaf
stimpluð á vöruna, og menn horfa
svolítið á það.“
Valdimar bendir á að fiskur á
beini haldi sér lengur. „Menn hafa
talað um 14 -20 daga geymslutíma á
ferskum fiski við réttar aðstæður.“
Hvað framtíðina varðar segir
Valdimar að fyrirséð sé að fram-
leiðsla á eldislaxi hér á landi muni
þrefaldast, og því þurfi að tækla
flutningsvandann. „Annaðhvort
þurfa flugfélög að fjölga breiðþotum,
eða menn að vera tilbúnir að greiða
meira fyrir fraktina. Eða þá að setja
vörurnar í skip. Maður er ekki að sjá
að kerfið geti tekið við mikilli magn-
aukningu á næstu árum. Ef Íslend-
ingum tekst að gera sérvöru úr lax-
inum eins og Skotar hafa t.d. gert
með sinn lax, þá auðveldar það málið
líka.“
Starfsemi DB Schenker á Íslandi
skiptist til helminga í inn- og út-
flutning, og segir Valdimar að-
spurður að 90% af útflutningnum sé
fiskur. „Það fóru 35 þúsund tonn af
fiski um okkar flutningaumsjón í
fyrra.“
„Skip eru í raun mjög góð flutningsleið, en framleiðsludagsetningin er alltaf stimpluð á vöruna, og menn horfa svolítið á það,“ segir Valdimar við 200 mílur.
Vandi steðjar að flutningi á eldisfiski
Huga þarf að flutningi á
eldisfiski frá Íslandi á
næstu árum þar sem
viðbúið er að fram-
leiðslan þrefaldist.
Morgunblaðið/Hanna
Valdimar er framkvæmdastjóri flutningsmiðlunarinnar DB Schenker á Íslandi.
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019