Morgunblaðið - 16.04.2019, Side 18

Morgunblaðið - 16.04.2019, Side 18
Hausaþurrkunarverksmiðja Lýsis var opnuð á föstudaginn með hátíð í nýju húsnæði sem byggt var utan um starf- semina í grennd við Þorlákshöfn. Ljósmyndari Morgunblaðsins var á staðnum og myndaði það sem fram fór. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, sagði í samtali við Morgunblaðið við þetta tilefni að að nýja verksmiðjan myndi leysa þá gömlu af hólmi, sem staðsett hefur verið innanbæjar í Þor- lákshöfn. „Það var orðið tímabært að end- urnýja húsakostinn og um leið bæta staðsetninguna,“ sagði Katrín og benti á að nýja verksmiðjan, nokkra kíló- metra vestan við byggðina, ætti að geta verið í meiri sátt við samfélagið sökum fjarlægðar frá lyktinni sem af starfseminni stafar. Enn fremur sé hún til marks um grunnhugsun Lýsis hf., þ.e. fullnýtingu afurða og virðingu fyrir náttúrunni. Húsið er 2.500 fermetrar að stærð og með því mun afkastagetan geta aukist um 40 til 50 prósent. „Gott flæði er í húsinu og þurrkunin verður bæði betri og fljótlegri. Það var margt sem við gátum bætt með því að hanna hús utan um starfsemina frá grunni,“ sagði Katrín. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölf- usi, sagði svæðið sérstaklega hugsað fyrir matvælaiðnað sem lykt stafar af, en Lýsi er fyrsta fyrirtækið til að reisa þar byggingu undir starfsemi sína. Engin byggð væri nálægt og ríkjandi vindátt lægi ekki yfir íbúðabyggð. „Þetta styður við þau áform okkar sem snúa að sérhæfingu í matvæla- vinnslu. Við höfum landrýmið, orkuna og kalda vatnið. Þegar þetta allt kem- ur saman þá verður til kjörinn vett- vangur til matvælaframleiðslu. Vit- andi það að á næstu fjörutíu árum þarf mannkynið að framleiða jafn mikinn mat og það hefur gert síðustu átta þúsund árin, er ljóst að í framleiðslu matvæla felast sífellt stærri sókn- arfæri.“ Tilkoma flutningaskipsins Mykines, sem fer vikulega frá Þorlákshöfn til Rotterdam og aftur til baka, hefur skipt bæjarfélagið töluverðu máli að sögn Elliða. „Það sparast þarna átta til tólf klukkustundir á hvorri leið, miðað við þau skip sem koma að landi í Sunda- höfn eða á Grundartanga,“ sagði hann. „Það gerir það að verkum að verð er hagstæðara en varan er einnig fersk- ari þegar hún kemur á markað erlend- is. Þetta hefur gjörbreytt rekstri út- flutningsfyrirtækja í Ölfusi og á Suðurlandinu öllu.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Lýsi opnar nýja verk- smiðju í Þorlákshöfn Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, og Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, glöddust við opnun nýju verksmiðjunnar. Nýja verksmiðjan er nokkra kílómetra vestan við Þorlákshöfn, á sérstöku svæði fyrir matvælaframleiðslu sem lykt stafar af. „Það var margt sem við gátum bætt með því að hanna hús utan um starfsemina frá grunni,“ sagði Katrín forstjóri. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Lýsis, ávarpaði starfsmenn og gesti. 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.