Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 18
Hausaþurrkunarverksmiðja Lýsis var
opnuð á föstudaginn með hátíð í nýju
húsnæði sem byggt var utan um starf-
semina í grennd við Þorlákshöfn.
Ljósmyndari Morgunblaðsins var á
staðnum og myndaði það sem fram
fór.
Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis,
sagði í samtali við Morgunblaðið við
þetta tilefni að að nýja verksmiðjan
myndi leysa þá gömlu af hólmi, sem
staðsett hefur verið innanbæjar í Þor-
lákshöfn.
„Það var orðið tímabært að end-
urnýja húsakostinn og um leið bæta
staðsetninguna,“ sagði Katrín og benti
á að nýja verksmiðjan, nokkra kíló-
metra vestan við byggðina, ætti að
geta verið í meiri sátt við samfélagið
sökum fjarlægðar frá lyktinni sem af
starfseminni stafar. Enn fremur sé
hún til marks um grunnhugsun Lýsis
hf., þ.e. fullnýtingu afurða og virðingu
fyrir náttúrunni.
Húsið er 2.500 fermetrar að stærð
og með því mun afkastagetan geta
aukist um 40 til 50 prósent.
„Gott flæði er í húsinu og þurrkunin
verður bæði betri og fljótlegri. Það var
margt sem við gátum bætt með því að
hanna hús utan um starfsemina frá
grunni,“ sagði Katrín.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölf-
usi, sagði svæðið sérstaklega hugsað
fyrir matvælaiðnað sem lykt stafar af,
en Lýsi er fyrsta fyrirtækið til að reisa
þar byggingu undir starfsemi sína.
Engin byggð væri nálægt og ríkjandi
vindátt lægi ekki yfir íbúðabyggð.
„Þetta styður við þau áform okkar
sem snúa að sérhæfingu í matvæla-
vinnslu. Við höfum landrýmið, orkuna
og kalda vatnið. Þegar þetta allt kem-
ur saman þá verður til kjörinn vett-
vangur til matvælaframleiðslu. Vit-
andi það að á næstu fjörutíu árum þarf
mannkynið að framleiða jafn mikinn
mat og það hefur gert síðustu átta
þúsund árin, er ljóst að í framleiðslu
matvæla felast sífellt stærri sókn-
arfæri.“
Tilkoma flutningaskipsins Mykines,
sem fer vikulega frá Þorlákshöfn til
Rotterdam og aftur til baka, hefur
skipt bæjarfélagið töluverðu máli að
sögn Elliða.
„Það sparast þarna átta til tólf
klukkustundir á hvorri leið, miðað við
þau skip sem koma að landi í Sunda-
höfn eða á Grundartanga,“ sagði hann.
„Það gerir það að verkum að verð er
hagstæðara en varan er einnig fersk-
ari þegar hún kemur á markað erlend-
is. Þetta hefur gjörbreytt rekstri út-
flutningsfyrirtækja í Ölfusi og á
Suðurlandinu öllu.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lýsi opnar nýja verk-
smiðju í Þorlákshöfn
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, og Katrín Pétursdóttir,
forstjóri Lýsis, glöddust við opnun nýju verksmiðjunnar.
Nýja verksmiðjan er nokkra kílómetra vestan við Þorlákshöfn, á sérstöku svæði fyrir matvælaframleiðslu sem lykt stafar af.
„Það var margt sem við gátum bætt með því að hanna hús
utan um starfsemina frá grunni,“ sagði Katrín forstjóri.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
stjórnarformaður Lýsis, ávarpaði
starfsmenn og gesti.
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019