Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 22
Þrátt fyrir alla sjálfvirknivæðingu þarf fólk enn að snyrta fiskinn. Hér sjást starfsmenn Samherja inn í vinnslusalnum í Sandgerði. Pétur Hreinsson peturh@mbl.is F ullvinnsla á bleikju var haf- in í nýrri hátækniverk- smiðju Samherja í Sand- gerði á síðasta ári. Jón Kjartan Jónsson, fram- kvæmdastjóri fiskeldis hjá Sam- herja, segir húsnæðið og tækjabún- aðinn vera eins og best verður á kosið á alþjóðlegan mælikvarða. Segir hann störfin léttast og fram- leiðsluna aukast um 15-20% á þessu ári. Í hinu nýja húsnæði verður burður hafður í lágmarki en í nýjum störfum felst meðal annars umsjón með sjálfvirkni. Að sögn Jóns Kjart- ans veltir starfsemin um þremur milljörðum á ári en við hana starfa 80-90 manns og nemur heildar framleiðslan á eldisfiski rúmlega 4.000 tonnum á ári. „Ég held að vinnsluhúsnæðin verði ekki mikið flottara en þetta. Ég get alveg sagt það,“ segir Jón Kjartan í samtali við Morgunblaðið en fiskeldisframleiðslan fer nánast alfarið á erlenda markaði. Amerík- umarkaðurinn er stærstur en einnig er selt til norðurlanda, víðar í Evr- ópu og á Japansmarkað. Kolefnisfótspor eitt af púslunum „Þetta er náttúrlega framleiðsla á frábærum matfiski, sem er sjálfbær, umhverfisvæn og með lítið kolefn- isfótspor. Þetta er hágæðavara sem er verið að selja á góða veitingastaði og virtustu stórmarkaði í heimi,“ segir Jón Kjartan en það tekur jafn- an tvö ár að ala fiskinn í slát- urstærð. „Allan þann tíma erum við að vanda okkur við að búa honum sem jafnast og best atlæti og að fóðrið innihaldi næringu sem hentar á hverjum tíma. Það er mjög auðvelt að eyðileggja þessa vinnu á nokkr- um mínútum með vanhugsuðum framleiðsluháttum í vinnslunni,“ segir Jón Kjartan. Spurður nánar út í kolefnisfótsporið og hvort erlendir kaupendur horfi á slíkar úttektir segir Jón Kjartan það vera hluta af stærri mynd. „Þeir horfa á heildarkerfið og hvernig það er uppsett. Að þú sért áreiðanlegur birgi sem afhendir alla daga. Kolefnisfótsporið er bara eitt af púslunum sem þú verður að hafa í lagi. Ef þú afhendir ekki afurðina alla daga af réttum gæðum þarftu ekki að hafa áhyggjur af því hvert kolefnisfótsporið er. Þetta þarf að fylgjast að til að selja vöruna,“ segir Jón Kjartan. Samherji hefur rekið fiskeldi frá árinu 2001 og er með þrjár mat- fiskastöðvar, tvær á Suðurnesjum sem framleiða bleikju, og eina á Núpsmýri í Öxarfirði sem framleiðir lax. Þá er fyrirtækið með þrjár seiðastöðvar, tvær í Ölfusi og eina á suðurnesjum sem framleiða seiðin til framleiðslu. Að lokum er fyrir- tækið einnig með eina klakfiskastöð fyrir bleikju í Öxarfirði. Allt eru þetta fiskeldisstöðvar sem eru á landi. „Í raun og veru hönnuðum við einfaldlega nýja vinnslu í nýtt hús þar sem við erum að auka sjálf- virkni og létta störf með róbotum og nýrri hugsun. Það er svona stóra myndin,“ segir Jón Kjartan að- spurður um hið nýja húsnæði í Sandgerði. Móttaka á lifandi fiski „Það er mikið af nýrri tækni í þessu og örugglega hægt að gera meira og enn betur En við erum ánægð með okkur. Við geymum fiskinn lifandi í húsinu fram að slátrun, það er nýtt hjá okkur. Eftir slátrun kælum við fiskinn strax að lokinni blæðingu og höldum honum svo vel kældum í gegnum ferlið. Með því erum við að hámarka gæðin og auka geymslu- þolið,“ segir Jón Kjartan. „Við dælum fiskinum lifandi á flutningabíl í landstöðvunum og keyrum hann til Sandgerðis. Þar fer hann lifandi inn í vinnsluna og bíður þar til við tökum hann til slátrunar. Þetta þekkist alveg í fiskeldi í laxa- iðnaði. Þetta er þekkt tækni en þetta er nýtt fyrir okkur í bleikj- unni,“ segir Jón Kjartan. Hann nefnir einnig myndgrein- ingu sem dæmi um nýjung í vinnsl- unni í Sandgerði. Enn fullt af störfum „Við flokkum flök inn á kæli með ró- botum og endurröðum þeim með ró- botum til þess að taka þau til vinnslu daginn eftir. Við flokkum fisk með myndgreiningu í staðinn fyrir vog og slægjum fisk með myndgreiningu. Við vakúmpökkum ferskum fiski, ferskum bitum og frystum,“ segir Jón Kjartan en bún- aðinn fær fyrirtækið meðal annars frá Skaganum 3x, Marel og Samey. Afköst hinnar nýju fiskvinnslu í Sandgerði eru töluverð en hægt er að slátra allt að 20 tonnum af fiski á dag. Það er þó umfram afkastaget- una í heild sinni en sem stendur framleiðir Samherji í bleikjufiskeld- inu um 3.500 tonn á ári en hið nýja hús á að geta afkastað um 5.000 tonnum. Að sögn Jóns Kjartans er því markmiðið „að sjálfsögðu“ að auka umsvifin, stækka eldið og fjölga kerjunum á landi. Sjálfvirknivæðing hefur eins og gefur að skilja það í för með sér að færri störf þarf að vinna með hand- afli. Það kemur þó ekki að sök í ljósi þess að framleiðsluaukningin vegur upp á móti. Meiri fullvinnsla krefst einnig fleira fólks. „Viðfangsefni fólks er náttúrlega að hafa umsjón með tækjum og vél- um og snyrta fiskinn. Það þarf að sjálfsögðu eins og í allri fiskvinnslu enn að raða inn í margar vélarnar. Þó að tæknin létti störfin þá er enn mikið af störfum. Við erum að reyna að eyða erfiðustu störfunum. Burði til dæmis. Burður er erfiður og þú vilt reyna að minnka hann eins og kostur er. Það er markmiðið,“ segir Jón Kjartan. Reyna að eyða erfiðustu störfunum Ný hátækniverksmiðja Samherja getur afkast- að um 5.000 tonnum af bleikju á á ári. Er hús- næðið búið nýjustu tækni sem eykur sjálf- virkni og léttir störfin. Séð inn í vinnslusalinn í Sandgerði sem skipt er upp með glervegg. Þessi róboti kallast Einstein og hefur fjögur verkefna. M.a. að endurraða kössum. 22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.