Morgunblaðið - 16.04.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 16.04.2019, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019 MORGUNBLAÐIÐ 29 SJÁUMST Í BRUSSEL Á Seafood Processing Global | 7-9 Maí 2019 | Bás #4-6115  Nákvæmur bitaskurður  Hámarks nýting  Endalausir möguleikar FRAMÚRSKARANDI lausnir fyrir fiskframleiðendur Röntgenstýrð beina- og bitaskurðarvél valka.is geymir vöruna því betur en t.d. plast- eða pappírskassi sem myndi halda hvers kyns raka inni í fisk- inum,“ segir Svanhildur en striga- pokunum er staflað beint í gám sem síðan er sendur rakleiðis til Nígeríu. Nígería háð olíuverði Eftir tæknivæðingu þurrkverk- smiðjunnar úti á Reykjanesi verð- ur framleiðsluferlið orðið að stórum hluta sjálfvirkt. Ásamt endurnýjun á þurrkklefum verða settir upp færibandaklefar. Segir Svanhildur stefnt að því að ljúka stækkun vinnsluhúsnæðisins og uppsetningu véla fyrir sumarlok. Um töluverða fjárfestingu er að ræða en aukin afköst ættu að duga til að greiða upp þann kostn- að á komandi árum. Svanhildur segir ekki hægt að reikna með að markaðurinn fyrir þurrkaða fiskhausa í Nígeríu nái sér fyllilega á strik en framleið- endur vænta þess að verð vör- unnar haldist á svipuðu róli og nú. Eins og lesendur ættu að muna var rót vandans sú að hagkerfi Nígeríu er mjög háð olíu- framleiðslu og veiklaðist því tölu- vert þegar olíuverð lækkaði skarplega 2014 og 2015. „Fyrir vikið varð mjög dýrt fyrir Níger- íubúa að kaupa erlendan gjaldeyri og voru sett höft á gjaldeyriskaup vegna innflutnings á þurrkuðum fiskhausum,“ útskýrir Svanhildur. Til að flækja málið enn frekar þá skiptast íbúar Nígeríu nánast til helminga í kristna og múslima, og er það kristna fólkið sem neyt- ir þurrkaðra fiskhausa á meðan múslimarnir gera mun minna af því. Muhammadu Buhari, forseti landsins frá árinu 2015, er mús- limi og þykir því seint líklegur til að hafa mikinn áhuga á að liðka fyrir viðskiptum með þurrkaðan fisk. „Verðið er fjarri því eins gott og það var árið 2015 en er þó orðið viðunandi og eftirspurnin bæði jöfn og stöðug,“ segir Svan- hildur en það eru aðallega ís- lenskir og norskir framleiðendur sem selja Nígeríumönnum þurrk- aða fiskhausa. „Það er enginn bil- bugur á okkur, en um leið verðum við að hafa það hugfast að að- stæður í Nígeríu geta breyst hratt og þá ýmist hjálpað eða skemmt fyrir okkar viðskiptum þar í landi. Við þurfum því að fylgjast vel með frá degi til dags, en almennt er hljóðið gott í við- skiptavinum okkar úti og á meðan gjaldeyrisforði Nígeríu skreppur ekki saman þá ætti salan að ganga vel.“ AFP Nígeribúar dansa og skemmta sér á messu. Það er aðallega kristna fólkið í landinu sem kaupir þurrkaða fiskhausa. Morgunblaðið/Jim Smart ostnaður vegur þungt í hausaþurrkun. Bragðbætir og nærir Talið er að það hafi verið evr- ópskir kristniboðar sem fyrst kynntu heimamönnum í Nígeríu þurrkaðan fisk. Svanhildur segir þurrkaða fiskhausa einkum gegna hlutverki krydds í nígerískri mat- argerðarlist: „Er hausinn þá mul- inn fínt og t.d. bætt út í kássur til að gefa ákveðið bragð. Um leið er hráefnið góður prótíngjafi og auð- ugt að næringarefnum sem fólk í þessum heimshluta fær ekki endilega úr öðrum matvælum,“ segir Svanhildur. Gegna þurrkaðir fiskhausar meira að segja samfélagslegu hlutverki. „Hvert þorp hefur sína siði, en ég hef heyrt að á einum stað sé það venjan að þegar kona eignast barn þá þurfi maðurinn hennar að sjá henni fyrir einum þurrkuðum fiskhaus á dag. Eru hausarnir þá hengdir upp fyrir ut- an húsið og einn haus skorinn af dag hvern, svo að þorspsbúar geti fylgst með því að móðirin fái örugglega góða næringu á meðan hún jafnar sig eftir barnsburð- inn.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.