Fréttablaðið - 24.05.2019, Síða 8

Fréttablaðið - 24.05.2019, Síða 8
á meðan þú verslar börnin Biti fyrir Afgreiðslutímar á www.kronan.is www.artasan.is Fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? Tannlæknar mæla með GUM tannvörum GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51 ALLT fyrir listamanninn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn MENNTAMÁL Þær Silja Ómarsdóttir, Sunna Rut Guðlaugardóttir, Sigrún Snorradóttir, nemendur í Dal skóla, eru sammála um að þörf sé á meira tækninámi í grunnskólum. Þær voru meðal þeirra rúmlega 900 stúlkna í 9. bekk á höfuðborgar- svæðinu sem tóku þátt í viðburð- inum Stelpur og tækni sem var haldinn í sjötta skiptið í gær. Stúlkurnar heimsóttu HR ásamt því að fara í heimsóknir í fjölbreytt tæknifyrirtæki. Markmiðið er að vekja áhuga þeirra á ýmsum mögu- leikum í tækninámi og störfum, brjóta niður staðalímyndir og sýna þeim fjölbreytileikann sem ein- kennir tækniiðnaðinn. „Þetta er stærsti Stelpur og tækni-dagurinn frá upphafi. Frábært hvað það eru mörg fyrirtæki sem eru til í að vera með okkur í þessu því það er svo mikilvægt að stelpur fái að kynn- ast þessu og hitta kvenfyrirmyndir í þessum störfum,“ segir Þórunn Hilda Jónsdóttir, viðburðastjóri Háskólans í Reykjavík. Sambæri- legur viðburður fór fram í Háskól- anum á Akureyri í fyrradag. Það var varla þverfótað fyrir stúlkum í HR í hádeginu í gær. Fréttablaðið náði tali af þeim Silju, Sunnu Rut og Sigrúnu, sem höfðu um morguninn heimsótt Tækni- skólann þar sem þær fengu að taka í sundur tölvu og setja saman aftur. „Við fórum seint af stað þannig að við tókum þær ekki í sundur, en við fengum að setja saman tölvu,“ segir Silja. Höfðu þær einnig kynnt sér virkni rafbóka. Eftir hádegið heim- sóttu þær fjarskiptafyrirtækið Sýn. Þeim tókst að fá tölvuna til að virka eftir að hafa sett hana saman. „Það tók mjög langan tíma, það víxluðust nokkrir vírar,“ segir Sunna Rut. „Þetta var frekar erfitt en mjög gaman,“ segir Sigrún. Þær eru sammála um að störf af þessu tagi komi til greina í framtíðinni, en engin af þeim ætlar að prófa að taka eigin tölvu í sundur. „Ég vil að þær virki, þannig að nei,“ segir Silja. Þær Sunna Rut, Sigrún og Silja eru sammála um að það þurfi meira tækninám í grunnskóla. „Það er ekki neitt í dag,“ segir Sigrún. Silja hefur á tilfinningunni að stúlkur séu almennt feimnari en strákar við að kynna sér tækni, en það sé að breytast. „Þær eru alla vega feimnari, en þetta er að breytast.“ arib@frettabladid.is Stelpur enn feimnari við tækni en strákar Silja Ómarsdóttir, Sigrún Snorra- dóttir og Sunna Rut Guðlaugar- dóttir, nemendur í Dalskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hátt í þúsund stelpur af höfuðborgarsvæðinu voru á viðburðinum í Háskól- anum í Reykjavík ásamt fjölda tæknifyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hátt í þúsund stelpur í 9. bekk heimsóttu Háskólann í Reykjavík og tæknifyrirtæki á viðburðinum Stelpur og tækni í gær. Þrjár stelpur úr Dal skóla settu saman tölvu. Eru þær sammála um að gera mætti meira af slíku í skólanum. Job.is GLÆNÝ OG FERSK STÖRF Í HVERRI VIKU Þú finnur draumastarfið á 2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 4 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 1 2 -8 C B 4 2 3 1 2 -8 B 7 8 2 3 1 2 -8 A 3 C 2 3 1 2 -8 9 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.