Fréttablaðið - 24.05.2019, Page 44
Klappir grænar lausnir hf.:
Boðun hluthafafundar 14. júní 2019
Stjórn Klappa grænna lausna hf. boðar til hluthafafundur í félaginu á starfsstöð félagsins að
Austurstræti 17, í fundarsal á 4. hæð, föstudaginn 14. júní 2019, og hefst hann kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:
1. Tillaga stjórnar um breytingu á grein 2.01.5 samþykkta félagsins
2. Önnur mál sem eru löglega borin fram.
Stjórn leggur til að grein 2.01.5 samþykkta félagsins verði svohljóðandi:
“Hluthafafundur félagsins, haldinn þann 14. júní 2019, samþykkir að veita stjórn félagsins heimild til
að hækka hlutafé félagsins í B-flokki hlutabréfa, í áföngum eða í einu lagi, um allt að kr. 50.000.000
(krónur fimmtíu milljónir) að nafnverði. Stjórn félagsins skal annast nánari útfærslu á hækkuninni,
þ.m.t. kaupgengi hlutanna og söluskilmála. Stjórn félagsins er heimilt að ákveða að áskrifendur
greiði fyrir hina nýju hluti að hluta eða öllu leyti með öðru en reiðufé. Hinir nýju hlutir skulu veita
öll sömu réttindi og háðir sömu skilyrðum og kvöðum og aðrir hlutir í almennum flokki hlutabréfa í
B-flokki samkvæmt samþykktum félagsins. Hlutirnir veita rétt í félaginu þegar þeir hafa verið greiddir.
Hluthafar falla frá forgangsrétti sínum til nýrra hluta, sbr. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Heimild
þessi gildir í 18 mánuði frá samþykkt hennar að svo miklu leyti sem hún hefur ekki verið nýtt fyrir það
tímamark.”
Markmið breytingarinnar er að opna á möguleika félagsins til útgáfu nýrra hluta gegn greiðslu í öðru
en reiðufé, t.d. vegna fyrirtækjakaupa eða samruna.
Dagskrá og endanlegar tillögur munu verða hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins, Austurstræti 17,
5. hæð, tveimur vikum fyrir hluthafafund.
Öll gögn verða lögð fram fyrir hluthafa á síðunni www.klappir.is/fjarfestar.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað frá kl. 15.45. Á hluthafafundum fylgir
eitt atkvæði hverri einni krónu í A-flokki hlutabréfa. B-hlutabréf hafa ekki atkvæðarétt.
Stjórn Klappa grænna lausna hf.
The Hustle frumsýnd
Jonathn Bennett mætti galvaskur á frumsýniguna,
en hann er einna þekktastur fyrir leik sinn í myndinni Mean girls.
Aðalleikonurnar tvær, hin ástralska Rebel Wilson og óskarsverðlauna-
hafinn Anne Hathaway. MYNDIR/NORDICPHOTOS/GETTY
Kanadíska söngkonan Avril Lavigne
lét sig ekki vanta á frumsýninguna.
Söngkonan nýgifta Meghan
Trainor mætti í þessum flotta
samfestingi á The Hustle.
Myndin The Hustle
var frumsýnd á dög-
unum. Hún er endur-
gerð af myndinni
Dirty Rotten Scound-
rels, þar sem Michael
Caine og Steve Mart-
in fóru með aðalhlut-
verkin. Í þetta skiptið
eru það þær Anne
Hathaway og Rebel
Wilson sem eru í
aðalhlutverkum.
2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
1
2
-8
C
B
4
2
3
1
2
-8
B
7
8
2
3
1
2
-8
A
3
C
2
3
1
2
-8
9
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K