Fréttablaðið - 24.05.2019, Page 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
MAÐUR VONAR HIÐ
BESTA. EF ÞAÐ SELST
ALLT UPP AFTUR, ÞÁ GETUR
FÓLK SETT SIG Í SAMBAND OG
ÉG GET GERT MYND Í SVIPUÐUM
DÚR. ÞAÐ ER EKKI MÁLIÐ.
309kr.
BLÓMKÁLS GRJÓN
LÍFRÆN
350g
ÞÚ FINNUR SUPER1 Á ÞREMUR STÖÐUM
HALLVEIGARSTÍG 1 FAXAFENI 14 SMIÐJUVEGI 2
OPIÐ 10:00 - 22:00 ALLA DAGA
MJÖG GOTT - MJÖG GOTT - MJÖG GOTT VERÐ
LÍFRÆN
BLÓMKÁLS GRJÓN
TILVALIÐ KETÓ MEÐLÆTI Í STAÐ
KARTAFLNA EÐA HRÍSGRJÓNA.
KETÓ
2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R26
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Þórhallur Sigurðsson, eða Laddi eins f lestir þekkja hann, hefur löng um ver ið einn ástsælasti skemmti-k raf t u r og gaman-
leikari þjóðarinnar. En honum er
margt f leira til lista lagt en leik- og
tónlistin, því undanfarin ár hefur
hann tileinkað meiri og meiri tíma
myndlistinni. Fyrir tæpum tveimur
árum hélt hann sína fyrstu mynd-
listarsýningu einsamall, og nú er
hann snúinn aftur á sama stað með
nýja sýningu.
„Já, ég hélt mína fyrstu sýningu
fyrir einu og hálfu ári í Smiðjunni
Listhúsi. Þá var ég með 25 verk og
það gekk mjög vel, þau seldust öll
upp svo ég var sáttur,“ segir Laddi.
Teiknar mest fígúrur
Á sýningunni sem verður opnuð
í kvöld verða til sýnis rúmlega 20
myndir og því fágætt tækifæri til að
tryggja sér mynd eftir sjálfan Ladda.
„Maður vonar hið besta. Ef það
selst allt upp aftur, þá getur fólk sett
sig í samband og ég get gert mynd í
svipuðum dúr. Það er ekki málið.“
Hann segir teikna mest fígúrur.
„Þetta eru nokkurs konar portrett-
myndir, nema þetta eru kannski
ekki alveg eðlileg andlit, heldur
meira hálfgerðar fígúrur. Kannski
má segja að þetta séu karakterar
sem ég næ ekki að skapa á sviði og
verða því í staðinn til í myndunum
mínum.“
Hefur mikið teiknað allt sitt líf
Hann byrjar fyrst á að teikna mynd-
irnar og málar svo yfir teikningarn-
ar með olíumálningu.
„Ætli ég hafi ekki byrjað að mála
fyrst af alvöru fyrir áratug. Ég hef
samt alltaf mikið teiknað í gegnum
árin og haft mikinn áhuga á því. Ég
ætlaði alltaf að verða myndlistar-
maður en það varð aldrei því það
var svo margt annað í gangi, ég varð
náttúrulega skemmtikraftur og það
var nóg að gera í því. Þannig að það
var í raun ekki pláss fyrir þetta fyrr
en núna,“ segir Laddi. Hann segir
þann tíma sem hann eyðir í mynd-
listina aukast með árunum.
„Ég ætla mér að sinna myndlist-
inni áfram og stefni á að auka enn
frekar á það. En ég ætla samt ekk-
ert að minnka við mig neitt í hinu.
Það er alltaf nóg að gera við það að
skemmta og í raun er það bara að
aukast líka. Ég bjóst einhvern veg-
inn við því að það myndi draga úr
því með árunum, sem var að hluta
til ástæðan fyrir því að ég tók upp á
því að mála. En það hefur ekki verið
raunin, það er alltaf nóg að gera í
því að skemmta úti um allan bæ og
koma fram.“
Spurður hvort hann sé meira
stressaður yfir viðtökunum þegar
kemur að myndlistinni en leiklist-
inni segir Laddi svo ekki vera.
„Nei, þetta er bara voða svipað.
Þetta er voðalega svipað og að vera
að frumsýna verk. Þetta er sama
stressið. Maður veltir því fyrir sér
hvort einhver hafi gaman af því, eða
myndin höfði til fólks. En maður
verður bara að leiða það hjá sér og
njóta þess sem maður er að gera á
eigin forsendum.“
Vonar að sem flestir
mæti á opnunina
Laddi segist taka myndlistina meira
í törnum en yfir langt tímabil.
„Verkin sem eru á sýningunni í
kvöld hafa f lest verið máluð síð-
asta hálfa árið. Ég er búinn að mála
mikið í vetur, mest eftir áramótin.“
Spurður hvað sé á döfinni segir
hann það ekki fullplanað en það
sé alltaf nóg að gera hjá honum,
skemmtanir í hverri viku.
„Síðast var ég með sýninguna
Laddi sjötugur og það gekk mjög vel.
Það er nú ekki eitthvað sem maður
getur gert á hverju ári, það væri of
mikið. Ætli það verði ekki næst
þegar maður verður 75 ára.“
Laddi segir myndlistina eiga allan
sinn huga þessa dagana.
„Ég vona að fólk komi, vilji skoða
verkin mín og hafi gaman af. Svo
verður sýningin opin til 3. júní en
það er óskandi að sem flestir mæti
á opnunina,“ segir Laddi að lokum.
Sýning Ladda er í Smiðjunni List-
húsi í Ármúla 36 og verður opnuð
klukkan 20.00 í kvöld.
steingerdur@frettabladid.is
Ætlaði alltaf að verða
myndlistarmaður
Laddi hefur lengi haft áhuga á myndlist og hefur málað olíuverk í
áratug. Hann hefur teiknað mikið alla sína ævi. Í kvöld opnar hann
myndlistarsýningu í Smiðjunni Listhúsi í Ármúla í Reykjavík.
Laddi segir það hafa aukist með
árunum hve miklum tíma hann
eyði í myndlistina. FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Þetta er önnur einkasýning Ladda eftir fyrstu sýninguna fyrir tæpum tveimur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
1
2
-7
8
F
4
2
3
1
2
-7
7
B
8
2
3
1
2
-7
6
7
C
2
3
1
2
-7
5
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K