Fréttablaðið - 03.06.2019, Síða 6
SKIPULAGSMÁL „Einkabílnum hefur
verið forgangsraðað mjög mikið í
hönnun og skipulagi byggðar á höf-
uðborgarsvæðinu síðustu áratugi.
Þéttleiki byggðarinnar er líka mjög
lítill. Þetta á stóran þátt í að það er
mikil áskorun að snúa blaðinu við
til að breyta samgönguvenjum. En
við verðum að gera það því núver-
andi þróun er ekki sjálf bær,“ segir
Harpa Stefánsdóttir, dósent við
skipulagsdeild Umhverfisháskóla
Noregs (NMBU).
Málþing um samgöngur og skipu-
lag á höfuðborgarsvæðinu fer fram
í Norræna húsinu í dag klukkan
13-17. Þar verður meðal annars
fjallað um niðurstöður úr rann-
sóknarverkefni Hörpu og sam-
starfsmanna hennar við NMBU og
Háskóla Íslands.
„Akademían í skipulagsfræðum
hér á landi er mjög lítil. Rannsóknin
og málþingið er leið til að leggja eitt-
hvað til samfélagsins,“ segir Harpa
en hún hefur starfað við NMBU í
Noregi frá 2010. Rannsóknin sem
kynnt verður á málþinginu byggir á
norsku rannsóknarverkefni um Ósló
og Stavanger sem nýlega er lokið.
Bæði verkefnin fara inn á hvernig
staðsetning búsetu hefur áhrif á
ferðavenjur fólks og hvert það fer.
„Þetta tengist ýmsu í hinu daglega
lífi og því sem liggur að baki þeim
ákvörðunum sem fólk tekur,“ segir
Harpa.
„Norska verkefnið var mjög
viðamikið og hlaut styrk úr Rann-
sóknarsjóði Noregs. Fljótlega eftir
að vinnan við það hófst fór ég að
leita leiða til að gera sömu rann-
sókn á höfuðborgarsvæðinu. Það
er mjög mikilvægt að efla til muna
rannsóknir sem tengjast borgar-
skipulagi hérlendis þótt íslenska
tilviksrannsóknin hafi úr litlu fé að
moða miðað við þá norsku. Það tak-
markar okkur auðvitað heilmikið.“
Norsku rannsókninni er nú
lokið en í tengslum við hana hafa
nú þegar verið birtar í alþjóðlegum
tímaritum þrettán ritrýndar grein-
ar. Vinna við rannsóknina á höfuð-
borgarsvæðinu, sem byggði meðal
annars á könnun úr tíu þúsund
manna úrtaki, er nú langt komin.
Það sem er sérstakt við nálgunina
í þessum rannsóknum eru viðtöl
við fólk þar sem leitað er að orsaka-
samhengi, hvað það er sem liggur að
baki vali á áfangastöðum og ferða-
venjum.
„Við er búin að safna mjög miklu
af gögnum og getum vonandi unnið
meira úr þeim síðar. Til dæmis
um hreyfingu og notkun grænna
svæða, en við erum m.a. að leita að
viðmiðum sem tengjast hugmynda-
fræði um grænar borgir og þéttleika
byggðar.“
Á málþinginu verða, eins og áður
segir, fyrstu niðurstöður rann-
sóknarinnar kynntar auk þess sem
aðilar úr stjórnsýslu skipulagsmála
verða í pallborði.
„Notkun einkabílsins er miklu
miklu meiri hér en til dæmis í Nor-
egi. Þar kemur ýmislegt til. Meðal
annars hefur umhverfið verið mikið
til skipulagt miðað við notkun
einkabílsins síðustu áratugi. En
það er ekki nóg að bara segja fólki
að fara að ganga meira, hjóla og taka
strætó, það er líka á ábyrgð stjórn-
valda og þeirra sem koma að skipu-
lagsmálum að gera það aðlaðandi.“
Harpa segir að í heildina séu áhrif
byggðamynstursins á ferðavenjur
svipaðar og í Noregi.
„En við erum líka að skoða
hvað liggur að baki þeim. Hér
fara ótrúlega margir ferða sinna
á bíl og sumir meira að segja
alltaf á bíl, þótt um örstutta
vegalengd sé að ræða. Hér spilar
upplifun á umhverf inu inn í.“
sighvatur@frettabladid.is
Þurfum að snúa við blaðinu
og breyta samgönguvenjum
Ný rannsókn um samgöngur og skipulagsmál verður kynnt á málþingi í Norræna húsinu í dag. Íslenskur
dósent við Umhverfisháskóla Noregs segir að einkabíllinn hafi verið í of miklum forgangi við hönnun
og skipulag byggðar á höfuðborgarsvæðinu. Það verði mikil áskorun að breyta samgönguvenjum fólks.
Rætt verður um samgöngur og skipulagsmál á höfuðborgarsvæðinu á málþinginu sem fram fer í Norræna húsinu í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Rannsóknin og mál-
þingið er leið til að
leggja eitthvað til samfélags-
ins
Harpa Stefánsdóttir dósent
BANDARÍKIN Joe Biden, fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna undir
Barack Obama, hefur mælst lang-
vinsælastur í forkosningum Demó-
krata allt árið.
Hingað til hefur ekki litið út fyrir
að nokkur annar frambjóðandi nái
að skáka Biden og ef fram heldur
sem horfir mun hann tryggja sér
útnefningu f lokksins til forseta-
framboðs fyrir kosningar næsta
árs.
Samkvæmt meðaltali skoðana-
kannana sem Real Clear Politics
tekur saman mælist Biden með
34,8 prósent. Næstur er Bernie
Sanders, öldungadeildarþingmað-
ur og næstvinsælastur í síðasta for-
vali, með 16,4 prósent. Vinsældir
Bidens hafa minnkað frá því hann
tók kipp í könnunum eftir að hann
tilkynnti formlega um framboð.
Lítið er þó hægt að lesa í þá þróun
enda mátti sjá sams konar tölur hjá
öðrum frambjóðendum.
Bandarískir stjórnmálaskýrend-
ur hafa misjafna sýn á hvort þetta
mikla forskot Bidens muni endast.
Þykir sum sé annað hvort líklegt
að Biden muni fatast f lugið eða að
hann muni sigla þessu heim líkt og
Hillary Clinton gerði árið 2016 eftir
að hafa leitt í könnunum alla kosn-
ingabaráttuna.
The Washington Post hélt því
fram að svo löngu fyrir kosningar
væru kannanir óáreiðanlegar. Til
að mynda hafi Joseph Lieberman
leitt árið 2003 en ekki komist nærri
sigri. Því er haldið fram að kapp-
ræðurnar gætu reynst Biden afar
erfiðar og stuðlað að því að minnka
forskot hans verulega.
CNN sagði hins vegar í úttekt
sinni fyrr í maí að tölfræðin á bak
við fylgi Bidens væri líkari töl-
fræði þeirra sem leiddu og unnu
en þeirra sem leiddu en töpuðu.
Lykilatriðið þar er að fylgi Bidens í
fyrstu forkosningaríkjunum, Iowa,
New Hampshire, Nevada og Suður-
Karólínu, eru í samræmi við fylgið
á landsvísu. Þannig gæti hann strax
náð góðu forskoti. - þea
Firnasterk staða Joes Biden í forvali Demókrata
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti.
NORDICPHOTOS/AFP
ELDSVOÐI Eldur kom upp í garði
í Vestubænum í gær þar sem
kviknað hafði hressilega í gas-
grilli. Slökkviliðið á höfuðborgar-
svæðinu var kallað út og gekk
greiðlega að slökkva í grillinu sem
skíðlogaði.
„Það logaði hressilega í gasgrilli.
Við skrúfuðum fyrir kútinn,“ sagði
talsmaður slökkviliðsins í samtali
við Fréttablaðið.
„Það var bara verið að elda á grill-
inu. Það tók svona 30 sekúndur,
skrúfa fyrir kútinn og málið var
afgreitt.“ – ilk
Grillaði grillið
LÖGREGLUMÁL Mikill erill var hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu á laugardagskvöld og aðfara-
nótt sunnudags vegna ölvunar og
hávaða. Í dagbók lögreglu vakti
tilkynning um kviknakinn mann
í húsgarði í Vesturbæ Reykjavíkur
klukkan hálf fimm um nótt mikla
athygli. Ekki liggur fyrir hvað
manninum gekk til.
Fleiri menn í annarlegu ástandi
urðu á vegi laganna varða. Einn var
handtekinn fyrir að tálma störf lög-
reglu og fara ekki að fyrirmælum.
Annar sparkaði í lögreglumann
og var vistaður í fangageymslu.
Tólf ökumenn voru stöðvaðir á
höfuðborgarsvæðinu grunaðir um
akstur undir áhrifum áfengis eða
fíkniefna. Til að kóróna viðburða-
ríka vakt þá sinnti lögreglan einnig
útkalli vegna sinubruna við Heið-
merkurveg klukkan 21 á laugardag,
en hann reyndist minniháttar. – smj
Kviknakinn
maður og ölvun
Lögreglan hafði í nógu að snúast.
BANDARÍKIN Mick Mulvaney, starfs-
mannastjóri Hvíta hússins, segir
að hugmyndir Donalds Trump um
tolla á innfluttar vörur frá Mexíkó
fúlustu alvöru. Þetta kom fram í
samtali starfsmannastjórans við
Fox sjónvarpsstöðina í gær.
Trump sagðist í síðustu viku ætla
að leggja fimm prósenta toll á allar
vörur frá Mexíkó til að þrýsta á
þarlend stjórnvöld til að grípa til
aðgerða vegna ólöglegra innf lytj-
enda.
Mulvaney viðurkenndi að ekki
væru til staðar áþreifanleg viðmið
til að meta hvort Mexíkó væri að
gera eitthvað til að takmarka fjölda
innflytjenda til Bandaríkjanna frá
Mið-Ameríku.
Hann sagði þó að ástandið þyrfti
að lagast verulega og það f ljótt.
Bandarísk stjórnvöld væru reiðu-
búin til samvinnu um aðgerðir til
að tryggja árangur. -sar
Trump full
alvara með toll
á Mexíkó
Donald Trump stendur í ströngu
gagnvart Mexíkó. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
3 . J Ú N Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
3
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
5
-1
F
8
4
2
3
2
5
-1
E
4
8
2
3
2
5
-1
D
0
C
2
3
2
5
-1
B
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K