Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.06.2019, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 03.06.2019, Qupperneq 11
Ég ætla ekki að draga í efa þá niðurstöðu Ríkislögreglustjóra, sem embættið hefur nú opinberað með skýrslu, að íslensku samfélagi stafi gríðarleg hætta af skipulagðri glæpastarfsemi. Sjálfsagt hefur embættið mikið til síns mál. Ein- hverjir tugir, eða hundruð, glæpa- manna starfa skipulega á Íslandi segir löggan, svindla á kerfum og sinna eftirspurn eftir ólöglegum varningi og þjónustu, aðallega eiturlyfjum, undirborguðu vinnu- afli (þrælum) og vændi. Megi lögreglunni vegna sem allra best í að uppræta svona óáran og vísast er nokkuð til í því — þótt ég voni að það sé ekki eina ástæða skýrslunnar — að lögreglan þarf meira fé til þess arna. En sem sagt. Löggan segir þetta. Maður hlustar. Í kjölfarið vakna samt fjölmargar spurningar og vangaveltur fyrir svona óþolandi afstæðispésa eins og maður er, sífellt nöldrandi „en þetta“ og „en hitt“. Ég iða af spurningunum. Hvað á lögreglan við? Er Ísland hættu- legt? Hvers eðlis er þessi vandi? Örugg veröld Nú er ég í útlöndum, búinn að ferðast með fjölskyldunni um lönd sem mörg hver hafa þannig orð- spor hvað glæpi varðar að sumir vinir mínir héldu að við hjónin værum klikkuð að ætla að fara þangað með börnin. En við höfum ekki lent í neinu misjöfnu, aldrei fundið til óöryggis eða verið ógnað á nokkurn hátt. Við höfum bara kynnst góðu fólki. Og hvað er ég að segja með þessu? Jú, þrátt fyrir að í Kólumbíu, svo ég nefni dæmi, hafi ekkert mætt okkur nema elskuleg- heitin, þá vitum við auðvitað að í Kólumbíu er líka að finna einhverj- ar harðsvíruðustu glæpaklíkur jarðar, jafnvel verri en á Íslandi. Ein af uppgötvunum okkar á ferðalag- inu er hins vegar sú að öryggi felst ekki bara í því hvernig heimurinn er heldur líka í því hvernig maður sjálfur hagar sér. Ef maður er ekki úti í botngötu klukkan tvö um nótt að sverma fyrir kaupum á ofskynjunarsveppum eða skann- andi barina í leit að ódýru vinnu- afli fyrir leynilegan námugröft, þá lendir maður ekki í miklu veseni. Ef maður sjálfur er varkár og lætur hjá líða að gera heimskulega hluti, þá er veröldin eins örugg og hún getur yfirleitt verið. Sama er væntanlega uppi á teningnum á Íslandi. Ef maður er ekki fáviti, svermandi fyrir vændi og ódýru vinnuafli, eða fastur í viðjum fíknar, þá er Ísland jafnvel enn öruggara en það raunverulega er samkvæmt öllum alþjóðlegum samanburði. Að uppræta undirheima Mig grunar að veröldin sé orðin þannig í mun meiri mæli en áður, að glæpirnir séu í glæpaheimum, en snerti minna aðra en þá sem lifa þar og hrærast, sem gerendur eða þolendur. Verkefnið er þar með að fækka þeim sem búa í glæpaheim- um. Við eina brú í Kostaríka, þar sem gjarnan er hægt að sjá urmul af krókódílum, var áður mikið um smáglæpi. Verið var að brjótast inn í bíla fólks á meðan það glápti á krókódílana. Núna hins vegar er framtakssamt fólk farið að bjóða ferðamönnum að fylgjast með bílunum þeirra og taka örlítið gjald fyrir. Kannski eru þetta sömu menn og voru áður ræningjar. Þeir hafa séð meiri möguleika í þessu. Svipað er að gerast mjög víða held ég. Hagur fólks af því að ferðamenn séu öruggir er svo mikill, að rán og rupl eru álitin tilræði við sam- félagið og sjálfa tekjulindina. Hér sést hið fornkveðna. Til þess að glíma við glæpi er ekki endilega besta lausnin að hella fé í lögregluna svo að hún geti komið bófum bak við lás og slá, þótt oft sé vissulega ærið tilefni til þess. Það gæti hins vegar orðið eilífðar- barátta. Ég held að viðureignin við glæpi hljóti alltaf að fela í sér hið margbrotna og erfiða verkefni að breyta samfélagi, hugsunarhætti, að opna augu. Ef eftirspurn fíkla er sinnt af öðrum en smyglurum — til dæmis meðferðarstofnunum — hverfur eftirspurnin á hinum ólöglega markaði. Glíman er við eftirspurnina, ekki framboðið. Ný hugsun breytir eðli verkefnisins. Máttur nýrrar nálgunar Í Kólumbíu var saminn friður við skæruliðasamtök byltingarsinna í sársaukafullu ferli sem þurfti mikið hugrekki. Þar með hættu skæru- liðarnir að fjármagna starfsemi sína með eiturlyfjaframleiðslu og glæpum og bjóða núna frekar fram til þings, eins og menn gera á Íslandi og víðar. Í landinu ríkir langþráður friður. Enginn vill hverfa aftur til fyrri tíma. Barátta lögreglu og hers við skæruliðana skilaði engu. Það þurfti aðra hugsun. Því segi ég þetta og ég vona að lögreglan sé því að einhverju leyti sammála: Mesta hættan sem steðjar að samfélagi, svona glæpalega séð, er sú að glíman við glæpi verði einstrengingsleg, þvermóðskufull og laus við alla við- leitni til þess að skilja veröldina og leysa vandamálin með nýrri nálgun. Það er oft erfitt, en líklega skilar ekkert annað meiri árangri. Guðmundur Steingrímsson Í DAG HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR, SÓPRAN HANNA DÓRA STURLUDÓTTIR, ALT ELMAR GILBERTSSON, TENÓR ODDUR ARNÞÓR JÓNSSON, BASSI, MÓTETTUKÓR HALLGRÍMSKIRKJU, SCHOLA CANTORUM, HÁTÍÐARHLJÓMSVEIT KIRKJULISTAHÁTÍÐAR, HÖRÐUR ÁSKELSSON, STJÓRNANDI FLYTJENDUR: THE HALLGRÍMSKIRKJA FRIENDS OF THE ARTS SOCIETY 37TH SEASON CHRISTMAS MUSIC FESTIVAL AT HALLGRÍMSKIRKJA DECEMBER 2018 OPNUNARTÓNLEIKAR KIRKJULISTAHÁTÍÐAR MYSTERIUM, OP. 53, NÝ ÓRATÓRÍA EFTIR HAFLIÐA HALLGRÍMSSON LAUGARDAGINN 1. JÚNÍ KL. 17 FRUMFLUTNINGUR - SUNNUDAGINN 2. JÚNÍ KL. 17 Í HALLGRÍMSKIRKJU Mysterium, op. 53, er tileinkað Herði Áskelssyni og Listvinafélagi Hallgrímskirkju. Isabelle Demers konsertorganisti leikur tvo þætti úr L’Ascension eftir Olivier Messiaen í upphafi tónleikanna. Miðaverð: 6.900 kr. KIRKJULISTAHÁTÍÐ HALLGRÍMSKIRKJA / ÁSMUNDARSALUR 1.–10. JÚNÍ 2019 Miðasala: MIDI.IS - s. 510 1000 - www.kirkjulistahatid.is LOKATÓNLEIKAR KIRKJULISTAHÁTÍÐAR 2019 „Eilífðareldur, uppspretta ástar“ HVÍTASUNNUKANTÖTUR ANNAN Í HVÍTASUNNU MÁNUDAGINN 10. JÚNÍ KL. 17 J.S. BACH: Erschallet, ihr Lieder, BWV 172 O ewiges Feuer, o Ursprung der Liebe, BWV 34 Bleib bei uns, BWV 6 SIGURÐUR SÆVARSSON: Veni, Sancte Spiritus FRUMFLUTNINGUR Flytjendur: Herdís Anna Jónasdóttir, sópran, Hildigunnur Einarsdóttir, alt, David Erler, kontratenór, Benedikt Kristjánsson, tenór, Oddur A. Jónsson, bassi, Schola cantorum, Mótettukór Hallgrímskirkju og Alþjóðlega barokksveitin í Hallgrímskirkju. Hörður Áskelsson, stjórnandi Yfir hundrað flytjendur reka glæsilegt smiðshögg á Kirkjulistahátíð með spennandi flumflutningi á nýrri íslenskri hvítasunnukantötu og þremur hátíðlegum kantötum eftir Bach. Miðaverð: 7.900 kr. HÁTÍÐARTÓNLEIKAR MEÐ ALÞJÓÐLEGU BAROKKSVEITINNI Í HALLGRÍMSKIRKJU „Dansar gleði og alvöru“ HVÍTASUNNUDAG 9. JÚNÍ KL. 20 Í HALLGRÍMSKIRKJU Georgia Browne leikur einleik á flautu, Tuomo Suni, konsertmeistari. Flutt verður glæsileg hátíðartónlist fyrir óbó, trompeta, pákur og strengi, meðal annars hin heimsþekkta Hljómsveitarsvíta í h-moll eftir Johann Sebastian Bach. Einleikari á tónleikunum er Georgia Browne, flautuleikari frá Ástralíu. Miðaverð: 6.900 kr. TÖLVUR, KLAIS OG KLUKKUSPIL LAUGARDAGINN 8. JÚNÍ KL. 21 Í HALLGRÍMSKIRKJU Umsjón: Guðmundur Vignir Karlsson. Tónskáld: Ingi Garðar Erlendsson, Gunnar Andreas Kristinsson, Ragnhildur Gísladóttir, Sveinn Ingi Reynisson, Guðmundur Vignir Karlsson, Hlynur Aðils Vilmarsson og Halldór Eldjárn. Tónlist eftir raftónskáld með nýjum hljómi þar sem MIDI-tölvubúnaður Klais-orgelsins er nýttur og verk tónskáldanna leikin af tölvum. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. HÁTÍÐARHLJÓMAR KIRKJULISTAHÁTÍÐAR — TVEIR TROMPETAR OG ORGEL MIÐVIKUDAGINN 5. JÚNÍ KL. 20 Í HALLGRÍMSKIRKJU Flytjendur: Baldvin Oddsson, trompet, Jóhann Nardeau, trompet og David Cassan, orgel. Trompetleikararnir Jóhann Nardeau og Baldvin Oddsson ásamt verðlaunaorganistanum David Cassan frá Frakklandi flytja hátíðartónlist eftir Charpentier, Vivaldi, Händel og fleiri auk þess sem Cassan leikur af fingrum fram. Miðaverð: 4.900 kr. ÚTLENDINGURINN MÁNUDAGINN 3. JÚNÍ KL. 21 Í HALLGRÍMSKIRKJU Höfundur og flytjandi: Halldór Hauksson. Leikraddir: Davíð Þór Jónsson, Guðjón Davíð Karlsson og Þröstur Leó Gunnarsson. Verk í hljóðum, tali og tónum um leit mannsins að samastað í staðlausum heimi byggt á samnefndri skáldsögu eftir Albert Camus. Miðaverð: 2.900 kr. MARÍUSÖNGVAR FRÁ MONTSERRAT „Þeir vilja stundum syngja og dansa“ ÞRIÐJUDAGINN 4. JÚNÍ KL. 21 Í HALLGRÍMSKIRKJU Tónlistarhópurinn Umbra ásamt gestum: Marina Albero, psalterium, Eggert Pálsson, slagverk, Kristófer Rodriguez Svönuson, slagverk og Þórdís Gerður Jónsdóttir, selló. Sönghópurinn Cantores Islandiae. Tónlistarhópurinn Umbra, ásamt karlasönghóp og öðrum gestum, þar á meðal Marinu Albero, sem er einn fremsti psalterium-leikari heims, flytja katalónska og norræna Maríusöngva frá miðöldum. Miðaverð: 5.900 kr. Að auki verður spjallað við listamenn sem tengjast hátíðinni í Ásmundarsal dagana 2., 3., 4., 7. og 10. júní. Þrjár hátíðarmessur fara fram kl. 11 meðan á hátíðinni stendur, dagana 2., 9. og 10. júní. Laugardaginn 8. júní kl. 17 verður aftansöngur þar sem kantatan Bleib bei uns, BWV 6, eftir Bach verður flutt. Sjá nánar kirkjulistahatid.is • listvinafelag.is • hallgrimskirkja.is Hættan af glæpum S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M Á N U D A G U R 3 . J Ú N Í 2 0 1 9 0 3 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 2 4 -F 8 0 4 2 3 2 4 -F 6 C 8 2 3 2 4 -F 5 8 C 2 3 2 4 -F 4 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.