Fréttablaðið - 03.06.2019, Qupperneq 36
HANDBOLTI Aron Pálmarsson og
félagar í Barcelona þurftu að láta
bronsverðlaunin duga í Meistara-
deild Evrópu um helgina eftir fimm
marka sigur á Kielce í gær. Vardar
vann Veszprem í úrslitaleiknum
og er Evrópumeistari í annað sinn
í sögu félagsins og í annað sinn á
síðustu þremur árum.
Börsungar voru komnir lang-
leiðina í úrslitaleikinn á laugar-
daginn þegar Barcelona leiddi með
sjö mörkum um miðbik seinni hálf-
leiks gegn Vardar frá Makedóníu en
Vardar tókst að tryggja sér þáttöku-
réttinn með 15-6 spretti undir lok
leiksins.
Börsungar þurftu því að leika
um silfrið þar sem þeir mættu Vive
Kielce frá Póllandi og unnu fimm
marka sigur, 40-35, þar sem Aron
skoraði þrjú mörk í stórskemmti-
legum og opnum leik. - kpt
Aron fékk
bronsið í Köln
FÓTBOLTI Jurgen Klopp tókst að
standa við loforðið sem hann gaf
þegar hann tók við félaginu og
skilaði titli á fyrstu fjórum árum
sínum með félaginu. Ekki var það
neinn smávægilegur titill heldur
sá eftirsóknarverðasti í Evrópu,
sjálfur Meistaradeildartitilinn.
Með því skaust Liverpool fram úr
Barcelona og Bayern München með
sex Meistaradeildartitla, aðeins AC
Milan (7) og Real Madrid (13) eru
með f leiri titla frá því að keppnin
var sett á laggirnar 1955.
Þetta var í fyrsta sinn sem Totten-
ham lék til úrslita en annað árið
í röð sem Liverpool lék til úrslita.
Liðin fengu drjúgan tíma til undir-
búnings, þegar leikurinn var f laut-
aður á voru tæpar þrjár vikur liðnar
frá síðasta leik liðanna. Fyrir vikið
náðu Roberto Firmino og Harry
Kane, framherjar liðanna, að ná
sér af meiðslunum sem hafa verið
að plaga þá undanfarnar vikur.
Það virtist sem svo að hléið sem
leikmenn fengu hafi slegið þá út af
laginu. Spilamennska liðanna sem
hafa spilað frábæran sóknarleik
lengst af tímabilsins var ekki góð
og var greinilegt að menn misstu
aðeins taktinn.
Bítlaborgarmenn fengu sann-
kallaða draumabyrjun því eftir
27 sekúndur var Damir Skomina,
slóvenski dómari leiksins, búinn
að dæma vítaspyrnu á Tottenham.
Sadio Mane reyndi þá sendingu
sem fór af bringu Moussa Sissoko
og í hönd franska landsliðsmanns-
ins. Harður dómur en Skomina var
viss í sinni sök og tóku myndbands-
dómararnir undir ákvörðun hans.
Á vítapunktinn steig Mohamed
Salah sem fór meiddur af velli í
upphafi leiks þegar Liverpool lék til
úrslita í fyrra og skoraði með þétt-
ingsföstu skoti sem Hugo Lloris réði
ekki við þrátt fyrir að skotið hafi
ekki verið langt frá örmum franska
landsliðsmarkmannsins.
Það gaf Liverpool færi á að setjast
til baka og bíða eftir færi á skyndi-
sóknum. Pressa Tottenham jókst
eftir því sem leið á leikinn og þurfti
Alisson Becker í marki Liverpool
nokkrum sinnum að taka á honum
stóra sínum þar til Divock Origi
bætti við öðru marki Liverpool.
Með því var björninn unninn,
Liverpool var tveimur mörkum yfir
og aðeins uppbótartíminn eftir.
Eftir vonbrigði síðasta árs þar
sem Liverpool þurfti að horfa á
eftir titlinum til Real Madrid voru
það Liverpool menn sem fengu að
taka við titlinum þetta árið. Klopp
hefur unnið hægt og bítandi að því
að styrkja liðið til að gera Liverpool
kleift að stýra leiknum á eigin for-
sendum. Brasilíumennirnir Fab-
inho og Alisson smellpassa inn í leik
liðsins og þá nýtur vörn liðsins góðs
af því að Liverpool hafi nýtt pening-
inn sem félagið fékk fyrir Philippe
Coutinho fyrir átján mánuðum til
að sækja Virgil van Dijk og Alisson.
Þessir tveir hafa gjörbreytt varn-
arlínu liðsins, sem hefur um árabil
verið taugaveikluð og mistökin
aldrei virst vera langt undan, yfir
í að halda rónni þrátt fyrir að and-
stæðingarnir séu að pressa stíft í leit
að marki.
Á sama tíma geta forráðamenn
Tottenham verið stoltir af árangri
liðsins þetta árið. Tottenham tók
stórt skref í rétta átt þetta árið og
getur byggt á frammistöðu þessa
árs næstu árin þrátt fyrir að lykil-
menn hafi átt erfitt upp-
dráttar í úrslitaleiknum í
Madríd.
„Ég held að ég hafi aldr-
ei sé lið eins og þetta
sem berst áfram
jafnvel þótt bens-
ínið sé búið. Ég
er himinlifandi
fyrir hönd leik-
manna minna
ásamt öllum
þ e i m s e m
k o m a a ð
þessu. Það
h a f a
a l l i r
t e k i ð
þ á t t í
þessu og við
njótum þessa
saman. Það er
ótrúlegt tímabil
að baki og þetta
var fullkominn
endir,“ sagði Jur-
gen Klopp, glað-
beittur í leikslok.
„Það var áskorun
fyrir bæði lið
að undirbúa
þennan leik
síðustu þrjár
v ik ur en í
úrslitaleikj-
um eru það
bara úrslitin
sem skipta máli
og leikmenn mínir
sýndu að þeir höfðu
það sem til þurfti,“
sagði K lopp alsæll
eftir að hafa hampað
Meistaradeildartitl-
inum í fyrsta sinn.
kristinnpall@frettabladid.is
Farsæll endir hjá Liverpool
Liverpool er Evrópumeistari í sjötta sinn eftir 2-0 sigur á Tottenham í Madríd um helgina. Ári eftir að
hafa horft á eftir titlinum til Real Madrid voru það Bítlarborgarmenn sem reyndust sterkari um helgina.
Jordan Henderson tók við sínum fyrsta bikar sem fyrirliði Liverpool um helgina
fjórum árum eftir að hann tók við fyrirliðabandinu af Steven Gerrard. Henderson lék
allan leikinn fyrir Liverpool í sigrinum á Tottenham í Madríd. NORDICPHOTOS/GETTY
98
Joel Matip lagði upp seinna
mark Liverpool. Er þetta
fyrsta stoðsending hans í 98
leikjum fyrir Liverpool.
Grípur tækifærin
þegar þau gefast
DIvock Origi reyndist enn á ný
hetja Liverpool þegar kallið
kom um helgina. Belgíski fram-
herjinn missti sæti sitt í byrj-
unarliðinu til Roberto Firmino
en kom inn af bekknum og
skoraði annað mark Liverpool
sem gekk frá leiknum.
Origi var gert ljóst fyrir tíma-
bilið að krafta hans yrði ekki
óskað. Origi eyddi síðasta ári
hjá Wolfsburg í Þýskalandi en
tókst ekki að sanna sig þar. Origi
tók það ekki í mál að semja við
Wolves eða Galatasaray í vetur
og nýtti hvert tækifæri sem
honum gafst.
Origi kom inn fyrir Firmino
gegn Barcelona í undanúrslit-
unum og áttu tvö mörk Origi
stóran þátt í því að Liver-
pool komst til Madríd.
Hann fylgdi því eftir
með því að innsigla
titilinn um
helgina.
Það var áskorun
fyrir bæði lið að
undirbúa þennan leik
síðustu þrjár vikur en í
úrslitaleikjum skiptir bara
máli hver vinnur leikina.
Jurgen Klopp
Myndir frá sigurhátíð Liverpool er að finna á +Plús-
síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
SUND Sundkappinn Róbert Ísak
Jónsson sem keppir fyrir hönd SH
var sigursæll á Ítalíu um helgina þar
sem World Series Para Swimming
2019 fór fram í Ligano.
Róbert Ísak bætti eigið Íslandsmet
um helgina í 100 metra baksundi og
var heilt yfir afar sigursæll á mót-
inu. Alls krækti Róbert í sex verð-
launapeninga, þrenn gullverðlaun,
ein silfur og tvenn bronsverðlaun.
Róbert Ísak var stigahæsti fatlaði
unglingurinn í heiminum í fyrra og
er hann hægt og bítandi að undir-
búa sig fyrir Ólympíuleikana sem
fara fram á næsta ári. - kpt
Róbert Ísak
sigursæll á Ítalíu
Róbert með verðlaunapeningana á
Ítalíu í gær. MYND/RAGNHEIÐUR
FÓTBOLTI Óvíst er hvort Rúnar
Alex Rúnarsson, markvörður Dijon
í Frakklandi geti gefið kost á sér í
leikjum Íslands gegn Tyrklandi og
Albaníu í undankeppni EM 2020
vegna meiðsla. Rúnar Alex átti að
byrja leiki Dijon í gær en fann fyrir
meiðslum í upphitun og fylgdist því
með þegar Dijon tryggði sér þátt-
tökurétt í efstu deild á næsta ári.
Erik Hamrén, þjálfari íslenska
karlalandsliðsins, gaf það til kynna
á dögunum að hann
væri ekki búinn
að ákveða hver
stæði vaktina í
markinu í næstu
leikjum en ólík-
leg t verður að
teljast að Rúnar
Alex komi
við sögu
v e g n a
meiðsl-
a n n a .
- kpt
Óvíst með
þáttöku Rúnars
3 . J Ú N Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
3
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
2
4
-F
C
F
4
2
3
2
4
-F
B
B
8
2
3
2
4
-F
A
7
C
2
3
2
4
-F
9
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K