Fréttablaðið - 03.06.2019, Qupperneq 37
KÖRFUBOLTI Íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjanesbæjar telur að
nauðsynlegt sé að hækka styrki til
íþróttafólks bæjarins sem ferðast
til útlanda á vegum landsliða sinna.
Kostnaður leikmanna yngri lands-
liða í körfuknattleik, það eru leik-
menn U-15, U-16 og U-18 hjá Keflavík
og Njarðvík nemur alls um sex millj-
ónum króna. Inn í þessa tölu eru
ekki leikmenn í U-20 ára liði karla og
kvenna en þau hafa ekki verið valin.
Þó nokkrir krakkar frá Suðurnesjum
eru í hópnum. Þar þurfa krakkarnir
að greiða hvert 279 þúsund krónur
kvennamegin en strákarnir borga
átta þúsundum minna.
Þeir sem eru í U-15 ára lands-
liðinu þurfa að borga rúmar 100
þúsund krónur fyrir að skara fram
úr í sinni íþrótt og vera fulltrúi
Íslands. Suðurnesjaliðin eiga 10
leikmenn í hópnum. Sex koma frá
Njarðvík en fjórir frá Keflavík. Þeir
sem eru í U-16 þurfa að punga út 172
þúsund krónur fyrir Norðurlanda-
mótið og 246 þúsund fyrir Evrópu-
mótið eða alls 418 þúsund krónum.
Þar eru fimm drengir frá Njarðvík.
Þau sem eru valin í U-18 ára liðið
borga 172 þúsund og fimm hundruð
krónum betur fyrir Norðurlanda-
mótið og drengirnir borga 278 þús-
und krónur í viðbót fyrir Evrópu-
mót karla. Stelpurnar borga þrjú
þúsund krónum minna fyrir að hafa
komist á Evrópumótið.
Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ,
segir að það svíði að senda reikn-
inga inn á heimili landsliðsfólks.
„Öll útgjöld heimila landsmanna
sem tengjast landsliðsverkefnum
finnst mér of há. Það er fátt sem
auglýsir landið okkar betur en
landsliðsfólkið okkar í íþróttum og
listum,“ segir hann.
Hannes þvertekur fyrir að körfu-
boltinn sé aðeins fyrir hina efna-
meiri og bendir á að allar aðrar
íþróttagreinar en fótboltinn borgi
með landsliðsverkefnum.
„Auðvitað er körfuboltinn eins og
allar íþróttargreinar fyrir alla en því
miður þá þarf að greiða stundum
meira fyrir börnin þegar þau ná
árangri. Það er þannig hjá okkur
í körfunni eins og öllum öðrum
yngri landsliðum i íþróttum fyrir
utan fótbolta. Á þessu ári er hlutur
landsliðskrakka um 70 prósent af
kostnaði við ferðirnar og þá er ekki
talinn allur sá kostnaður sem tilfell-
ur á skrifstofuna vegna starfsmanna
eða t.d. laun landsliðsþjálfaranna
allra. Við erum með átta yngri
landslið í verkefnum erlendis og
fjögur af þeim fara á tvö mót bæði
NM og EM.“
Hannes bendir á að KKÍ reyni
að fjármagna öll verkefni og félög-
in innan sambandsins reyna að
aðstoða einnig sína krakka.
„Við hjá KKÍ erum alltaf að vinna
í því að fá f leiri og stærri samstarfs-
aðila til liðs við okkur og því f leiri
sem koma að borðinu með okkur
þá getum við lækkað kostnað þeirra
sem valin eru í landslið.“
Hann segir að sérsamböndin
verði að fá meiri pening frá ríkinu
aðspurður um hvað sé til ráða.
„Númer eitt, tvö og þrjú er að ríkis-
valdið, ásamt fyrirtækjum í landinu,
komi betur að starfsemi sérsam-
banda og landsliðanna. Því svo er
það hin lausnin, sem ég held að eng-
inn vilji, hvorki við né krakkarnir
og foreldrarnir, það er að hætta að
senda landsliðin til keppni.“
Um styrki til íþróttafólks sem
hefur verið valið í landslið Íslands
í íþróttagrein sinni gilda eftir-
farandi vinnureglur hjá Íþrótta- og
tómstundaráði Reykjanesbæjar að
sjóðurinn er að jafnaði einungis
fyrir landsliðsfólk sem er 25 ára
eða yngra. Ekki eru veittir styrkir til
keppni eða æfinga með landsliðum
innanlands og ef landsliðsfólk þarf
að greiða einhvern hluta sjálft af
f lugfari eða gistingu skal það eiga
rétt á styrk að upphæð 20.000 krón-
ur. Þetta þak vill ráðið hækka og var
vísað til vinnu við fjárhagsáætlun
fyrir árið 2020.
benediktboas@frettabladid.is
Foreldrar á Suðurnesjunum þurfa að
punga út milljónum fyrir börnin sín
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar telur nauðsynlegt að hækka styrk til efnilegasta íþróttafólks Suðurnesjanna sem tekur
þátt í landsliðsverkefnum. Kostnaður leikmanna liðanna sem taka þátt í verkefnum yngri landsliðanna í körfubolta hleypur á
milljónum. Formaður KKÍ, Hannes S. Jónsson segir að það svíði að senda reikninga inn á heimili ungs landsliðsfólks.
Leiðin að landsliðinu er ekki aðeins þyrnum stráð því það kostar mikla fjár-
muni að eiga landsliðsmann eða -stúlku í körfubolta. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
Sími 570 4500 • fastmark@fastmark.is • www.fastmark.is
Jón Guðmundsson lögg. fasteignasali
Guðmundur Th. Jónsson lögg. fasteignasali
Í TRAUSTUM HÖNDUM Í ÁRATUGI
Til leigu veitinga- og / eða verslunarhúsnæði á frábærum stað
Til leigu er um 400 fermetra mjög glæsilegt húsnæði á mjög áberandi
og fjölförnum stað í miðborginni.
Húsnæðið hentar vel sem veitingahús og / eða sem verslunarhúsnæði.
Um er að ræða glæsilega nýbyggingu með hótelherbergjum á efri
hæðum.
Húsnæðið er til afhendingar fljótlega og skilast rúmlega tilbúið undir
innréttingar, en hús að utan og lóð verða fullfrágengin.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Th. Jónsson, lögg.
fasteignasali í netfanginu gtj@fastmark.is
Jón Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
jon@fastmark.is
Guðmundur Th.
Jónsson
Lögg. fasteignasali
gtj@fastmark.is
Gísli Rafn
Guðfinnsson
Aðstoðarmaður
fasteignasala
gisli@fastmark.is
Elín D. Wyszomirski
Lögg. fasteignasali
elin@fastmark.is
Magnús Axelsson
Lögg. fasteignasali
magnus@fast
mark.is
Hallveig
Guðnadóttir
Skrifstofustjóri
hallveig@fast
mark.is
Heimir Fannar
Hallgrímsson
hdl. og lögg. fast
eignasali
heimir@fastmark.is
Öll útgjöld heimila
landsmanna sem
tengjast landsliðsverkefnum
finnst mér of há.
Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M Á N U D A G U R 3 . J Ú N Í 2 0 1 9
0
3
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
4
-F
3
1
4
2
3
2
4
-F
1
D
8
2
3
2
4
-F
0
9
C
2
3
2
4
-E
F
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K