Umbrot - 08.11.1974, Blaðsíða 1

Umbrot - 08.11.1974, Blaðsíða 1
UMBROT 1. tölublað Nýtt blað 1. árgangur Akurnesinga Föstudagur 8. nóv. 1974 Pósthólf 110 FYLGT ÚR HLAÐI I dag hefur göngu sína nýtt blað, sem hlotið hef- ur nafnið Umbrot. Nafngiftin Umbrot táknar ekki eins og eflaust mörgum dettur í hug við fyrstu sýn, að hér séu á ferðinni einhver óskapleg umbrot í blaðaútgáfu og blaðamennsku. Þvert á móti. Þetta orð er notað á fagmáli prentara. Þegar blað- inu er raðað upp í siður, þ.e. fyrirsögnum, mynd- um og texta, þá er talað um að verið sé að brjóta blaðið um. Þar með þótti okkur vel við hæfi að nota nafnið Umbrot. Þessu nýja blaði er fyrst og fremst ætlað það hlutverk að bæta úr því ófremdarástandi sem ríkt hefur í blaðaútgáfu á Akranesi. Undanfarin ár höfum við fengið send til okkar blöð stjórnmálaflokkanna nokkrum dögum fyrir jól, einu blaði hefur verið hent inn til okkar fyrir sjómannadaginn og svo auðvitað nokkrum þegar nálgast fer kosningar. Þar með er blaðaútgáfan upp talin. Hugmyndin er sú að Umbrot komi út einu sinni í mánuði, a.m.k. til að byrja með, og verður það selt í lausasölu. Ef það fær góðar viðtökur les- enda er ráðgert að safnað verði áskriftum. En það verður framtíðin að leiða í ljós. f Umbroti verður fréttum úr bæjarlíf- inu gefið gott rými og verður, eins og unt er, reynt að gera þeim góð skil. Einnig vill blaðstjórn- in leggja á það mikla áherslu að bæjarbúar sjálf- ir leggi blaðinu til efni með því að skrifa í það greinar eða koma á framfæri spurningum sem það óskar eftir að fá svör við. Umbrot verður hlutlaust blað, þ.e.a.s., það starf- ar óháð öllum stjórnmálaflokkum og tekur enga afstöðu til neinna slíkra mála. Hins vegar er öllum heimilt að rita í blaðið, hvar í flokki sem þeir standa, og um hvað sem þeim kann í brjósti að búa, enda riti viðkomandi undir fullu nafni og algerlega á eigin ábyrgð. Einn er sá þáttur sem rétt er að minnast á, en það eru auglýsingarnar. Til að halda úti slíku blaði þarf auðvitað auglýsingar, því það eru þær sem standa undir útgáfu blaðs. Þess vegna er það okkur mikil hvatning, að allir þeir sem leitað hefur verið til með auglýsingar í blaðið, hafa tekið þessu máli mjög vel og væntum við að svo verði einnig um næstu framtíð. Þökk sé öllum þeim sem hjálp- að hafa okkur nú. Að endingu viljum við þakka þeim sem kunna að hafa lesið þennan pistil og jafnframt viljum við hvetja alla þá sem áhuga hafa á að senda greinar eða línu að gera það sem allra fyrst og merkið: UMBROT — Pósthólf 110 — Akranesi. Blaðstjórn. Orkustofnun hvetur eindregið til frekari borana á Leirá - Telja fullvíst a5 130 stiga heitt f júní sl. var lokið við að bora tvær holur á Leirá. Önnur holan er 631 m, en hin 511 m. Þá er lokið við að bora 3 holur, því árið 1960 var boruð hola sem er 134 m. I júlí sl. sendi Orkustofn- un bæjaryfirvöldum á Akra- nesi skýrslu um málið og er hún einkar athyglisverð. Hér á eftir fer úrdráttur úr skýrslunni. Til frekari glöggvunar eru holurnar númeraðar. Nr. 1 er hola frá 1960 134 m, nr. 2 er hol- an 631 m. og nr. 3 er hol- an 511 m. Jarðlagasnið hefur verið gert af holu 2. Breyting varð á bergi í 260 m úr fremur fersku basalti í myndbreytt. Nærvera epidóts frá 340 m sýnir að myndbreytingin nálgast hæsta stig, sem finnst hérlendis aðeins í tengslum við háhitasvæði liðin eða virk. Slíkri um- myndun fylgir jafnan fjöldi ganga og innskota. Eitt slíkt kemur fram í 560-590 m. Kemur myndbreytingin vel vatn sé á 800-1000 m dýpi heim við legu jarðhitasvæð- isins á Leirá í jaðri megin eldstöðvarinnar í Skarðs- heiði. Vatnsæöar og hiti. Vatnsæðar fundust í holu 2 á bilinu 84-104 m og síð- an aftur í 193-208. Steypt var í efri æðarnar en hinar þéttuðust smám saman af svarfi. I holu 3 fundust fyrstu æðarnar í 14-20 m og síðan aftur í 105-130 m. Rennsli úr holu 3 er nú 4,5 1/sek af 58°C heitu vatni. Ekki varð vart við vatnsæðar neðar í holunum. Samkvæmt hitamælingum sem gerðar voru á holu 2 á meðan borun stóð yfir og eftir að henni lauk kom fram, að vatnskerfi með um 65°C heitu vatni er á 100- 200 m. dýpi. Neðan við 200 m eru hita- ferlarnir svo til eins og hita- aukningin nálægt 12°C pr. 100 m. I dýpri holunni er nokkru hægari hitaaukning á neðstu 130 m sem gæti bent til þess, að áhrifa sé Framhald á bls. 6

x

Umbrot

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Umbrot
https://timarit.is/publication/1333

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.