Umbrot - 18.01.1978, Síða 2
„Hugmyndin er að setja hér
upp fullkomna steypustöð”
UMBROT rœðir við athafna-
manninn Guðmund Magnússon
Trésmiðja Guðmundar Magn-
ússonar er í fyrirtækjakynningu
UMBROTS að þessu sinni. Guð-
mundur hefur starfrækt tré-
smiðju frá árinu 1959. Hann hef
ur rekið byggingavöruverslun,
plastverksmiðja er í fullum
gangi og nú er hann að stofn-
setja fullkomna steypustöð með
tilheyrandi tækjum. Formálinn
verður ekki lengri og við hef jum
viðtalið við Guðmund Magnús-
son.
— Hvenær var Trésm. Guð-
mundar Magnússonar stofnuð?
— Vorið 1959 var fyrirtækið
stofnað og var það í nýju hús-
næði við Stillholt 21. Starfsemin
hófst síðan 1. júlí og voru starfs
menn aðeins 4 í fyrstu, en um
áramót vorum við orðnir 7.
— Hvers konar vinna var unn
in í fyrstu?
— Það var nú þessi almenna
byggingarvinna, var eitt árið
unnið fyrir Póst og síma við inn
réttingar, bæði hér á pósthúsinu
svo og í Ólafsfirði.
— Fljótlega stofnaðir þú
byggingavöruverslun ?
— Það var árið 1964. Versl-
unin var staðsett við Stillholt
21, en áður en hún byrjaði hafði
ég bætt við húsnæði baka til og
þar vorum við í tvö ár, eða þar
til brann hjá okkur árið 1966 í
september.
— Það var mikill bruni?
— Já, það var mikill bruni og
hann dró langan dilk á eftir sér.
Það má segja að ég hafi verið
7-8 ár að ná mér upp úr þeim
erfiðleikum. Það brann nánast
allt, nema sex vélar sem voru
í framhúsinu sem við köllum, en
það er húsið sem snýr að Still-
holtinu.
— Þú lést ekki deigan síga
við þetta áfall, heldur hófstu
þegar handa um uppbyggingu?
—- Ég fékk mjög góða aðstoð
við að byggja þetta upp aftur,
því á þeim árum var allgóð út-
koma úr þessum iðnaði. En
kostnaðurinn við uppbygging-
una varð margfalt meiri heldur
en tryggingar voru fyrir.
— Hvað stækkaðirðu húsnæð
ið mikið eftir brunann?
— Ég bætti við tveimur hús-
um, sem eru um 550 m2, og
byggði ofan á hæðina sem snýr
að Stillholtinu.
— Ér það eftir brunann sem
þú stofnar plastverksmiðjuna?
— Nei, ég var búinn að reka
hana í rúmt ár þegar bruninn
var.
— Var einhver sérstök á-
stæða fyrir því að þú stofnaðir
plastverksmiðju ?
— Ég var búinn að velta
þessu fyrir mér í 2-3 ár áður
en ég lét verða af þessu. Ég
kynntist þessari framleiðslu
nokkuð vel í Noregi árið 1964,
og eftir það tók ég ákvörðun um
að koma þessu upp hér, og það
varð í júlí 1965.
— Voru þá fleiri slíkar verk-
smiðjur hér á landi?
— Já. Fyrir voru þá 7 verk-
smiðjur og síðan hafa bætst við
3 eða 4.
— Hvað framleiðið þið mikið
af plasti á ári?
— Ég hef nú ekki tekið þáð
saman fyrir sl. ár, en árið 1976
voru það um 2.600 m3.
— Hvaðan er hráefnið? .
— Það kemur víða að úr
heiminum, en ég fæ allt hráefni
frá Englandi.
— Starfa margir við fram-
leiðsluna?
— Það er nú aðallega einn
maður sem hefur starfað frá
upphafi, en þegar mikið liggur
fyrir fær hann aðstoðarmann.
Emil Þór Guðmundsson og Guðmundur Magnússon
— Fyrir nokkrum árum
tókstu þig til og fórst að byggja
fjölbýlishús?
— Já, mig hafði alltaf lang-
að til að reyna þetta, en það
var ekki fyrr en árið 1974 að
farið var að undirbúa þetta
verk. Fyrstu blokkinni var skil
að í nóvember 1976. Um næstu
mánaðarmót skilum við annarri
blokkinni og nýlega erum við
byrjaðir á þeirri þriðju, og á
hún að verða tilbúin um áramót
in 1978-79. Sú blokk stendur
við Vallarbraut.
— Er það ekki rétt að þú
hafir byrjað með einhverja nýj-
ung í sambandi við blokkarbygg
inguna?
— Ég bryddaði á ýmsu sem
ekki hafði verið hér áður, en
það telst nú ekki nýjung í dag,
því það eru flestir aðilarnir
komnir með þetta eða eitthvað
líkt. Þessar nýjungar voru aðal-
lega í sambandi við mótin, en í
vor eru fyrirhugaðar breytingar
á þeim og eru þau ennþá full-
komnari en við erum með í dag.
Þessi nýjung fólst aðallega í
því að mótin samanstanda af
frekar stórum flekum sem eru
öll veggjahæðin og síðan flek-
ar sem eru allt frá 3,5-7 m. Til
gamans má geta þess að okkur
hefur tekist að slá upp fyrir
tveim íbúðum á 2 y2 degi með
7 mönnum. Þá má geta þess,
að flekarnir gera það að verk-
um að aðeins þarf að pússa
hluta af veggjum. Til að gera
þessa vinnu ennþá þægilegri
fékk ég byggingarkrana sem er
sá fyrsti af þessari tegund sem
kemur til Akraness. Það var nú
talinn vera hálfgerður ævintýra
blær yfir þessu, en ég held að
menn séu orðnir á annarri skoð-
un núna. Þetta er þörf, en ekki
ævintýri.
— Er alltaf jafn mikil eftir-
spurn eftir íbúðum í blokkum?
— Já, það virðist vera, því ég
hef aldrei verið búinn að fast-
setja jafnmargar íbúðir á svip-
uðu byggingarstigi og nú, og
það er aðeins eftir ein íbúð í
þeirri blokk sem við erum nú að
byrja á. Yngra fólkið er í meiri
hluta kaupenda, en einnig er
töluvert um eldra fólk sem selt
hefur sín einbýlishús og flytur
í minna húsnæði. Annars er í
undirbúningi hjá mér núna að
hefja einnig byggingu á einbýlis
húsum og hef ég fengið loforð
fyrir nokkrum lóðum hjá Akra-
Marinó Ámason vinnur við plastgerðina.