Umbrot - 18.01.1978, Blaðsíða 3
Þetta er aðeins hluti þeirra tækja sem Guðmundur hefur pantað.
nesbæ. í þessu sambandi hef ég
hugsað mér að koma með nýj-
ungar sem ekki hafa verið gerð-
ar hér, en ég er ekki tilbúinn
að ræða það nánar á þessu stigi.
Þessar lóðir sem ég hef sótt um
eru norðaustan við Garðagrund,
í nýja skipulaginu.
— Guðmundur. Þú ert at-
hafnamaður mikill og hefur feng
ist við fleira en smíðar. Fyrir ut-
an verkstæðishúsið við Stillholt
standa nokkur tæki sem þú ert
nýlega búinn að fá. Ertu að
stofna nýtt fyrirtæki?
— Já, hugmyndin er að setja
hér upp steypustöð ásamt alls-
konar þjónustu með vélar og
bíla. Það sem komið er, er að-
eins hluti af því sem verður.
Þetta samanstendur af 12-13
stykkjum, en aðeins eru komin
4. Það sem á vantar kemur í
vor og sumar.
— Eru þetta ný tæki?
— Nei, þetta eru allt notuð
tæki frá Þýskalandi. Ég hef þar
ágætan aðila sem hefur útvegað
mér þetta. Sumt af þessu er
mjög lítið notað.
— Er þetta allt frá sama fyr-
irtækinu?
— Nei, þetta er keypt frá
þrem aðilum. í Þýskalandi er
það þannig að menn taka að sér
ákveðin verkefni og kaupa til
þess tæki sem þarf. Þegar verk-
inu er lokið og ekki liggur fleira
fyrir, eru tækin sett á söluskrá
og þáð er einmitt þannig sem
þessi tæki eru fengin.
— Áttu von á því að þessi
tækjakaup þín hafi einhverja
breytingu í för með sér, t.d.
hvað varðar útboð hjá Akranes
bæ?
— Ég vona það. Mér finnst
Akranesbær gera allt of lítið
af því að bjóða út hin ýmsu verk
og leyfa aðilum að spreyta sig
á því. Það eru margir aðilar hér
sem vildu gera tilboð í verk hjá
bænum og öðrum aðilum og ég
tel að þau tilboð sem bæjarsjóð-
ur hefur sett út, hafi verið mjög
hagkvæm fyrir bæinn. Ég held
að allflest ef ekki öll tilboð
hafi fengist á miklu hagkvæm-
ara verði heldur en að láta vinna
þau í tímavinnu, fyrir utan ó-
mældu vinnuna sem þeir verða
að leggja fram sjálfir þegar um
þannig verk er að ræða. Bæjar-
fyrirtækin eru það stór á hverj-
um stað, að ég tel alveg tvímæla
laust hagkvæmara fyrir þá að
bjóða út allt sem hægt er.
— Binda sig ekki við einok-
un?
— Nei, alls ekki. Það ætti eng
inn að gera. Því miður hefur það
skeð hjá ráðamönnum bæjarins
hér, og sem dæmi má nefna
grjótflutningana og reyndar er
svo með allflestar framkvæmdir
við höfnina, að þær hafa ekki
verið boðnar út, allt verið unnið
í tímavinnu.
— Hvar er fyrirhugað að stað
setja steypustöðina?
— Það er verið að skipu-
leggja nýtt iðnaðarsvæði inn við
Berjadalsá fyrir grófan iðnað,
og þar hef ég sótt um lóð. Hins
vegar er ekkert farið að undir-
búa þetta svæði, þannig að lík-
legt er að ég verði að byrja á
einhverjum öðrum stað.
— Er þetta fullkomin stöð?
— Já, hún er talin mjög full-
komin. Það er td. hægt að hafa
fimm mismunandi tegundir af
efni í einu og blanda þeim öllum
saman í eina hræru, eftir því
sem beðið er um.
1 stöðinni er lítill heili sem sér
sjálfvirkt um alla blöndun inn
í bílana. Það eru ákveðin kort
sem eru útfærð fyrir hverja
blöndun, þeim er stungið í heil-
ann og síðan byrjar hann að
starfa eftir því. Þá fylgja stöð-
inni tvö síló sem taka 50 tonn
hvort, þannig að bæði verður
hægt að hafa þarna Portlands-
sement og hraðsement og er
mjög handhægt og fljótvirkt að
skipta á milli. Það þarf aðeins
einn mann til að stjórna þessu.
Seinni hluta ársins er síðan
væntanleg flokkunarvél, sem
flokkar allt efnið, þannig að það
á að koma út mjög fullkomin
blöndun á alla steypu.
— Hvað starfar margt fólk
hjá þér?
— Við erum 28 eins og er, en
yfir sumarmánuðina er alltaf
fleira.
— Hvaða augum líturðu til
f ramtíðarinnar ?.
— Ég hef nú alltaf verið
bjartsýnismaður og tel að mað-
ur eigi að vera það. Það geta
auðvitað komið upp ýmis atvik
sem gera einstaka aðilum erfitt
fyrir, en það birtir alltaf til
aftur. — I.
Akraneskaupstaður
Útsvör og
aðstöðugjöld 1978
Gjalddagar fyrirframgreiðslu útsvara
og aðstöðugjalda 1978 eru 1. febr., 1.
mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní.
Vangreiðsla á hluta útsvars eða aðstöðu-
gjalds veldur því, að allt útsvar eða að-
stöðugjald gjaldandans á gjaldárinu
fellur í eindaga 15 dögum eftir gjalddag-
ann. — Dráttarvextir af vangreiddum
gjöldum eru þeir sömu og hjá innláns-
stofnunum og reiknast með sama hætti.
Þeir gjaldendur sem ekki eru í fullum
skilum við bæjarsjóð eru því áminntir
um að gera skil nú þegar, ella verður
innheimta gjalda viðkomandi aðila feng-
in lögfræðingi bæjarins til innheimtu.
Akranesi, 12. janúar 1978.
Bæjarritarinn á Akranesi.
ÞORRAMATUR
Eins og undanfarin ár
ÚRVALS ÞORRAMATUR
Pantið með fyrirvara
£&)«\<§<xvev
U
f
Símar 1775 og 1776
Akurnesingar
athugið!
Vanti ykkur múrbrot, eða boranir utan-
húss log innan, þá reynið viðskiptin hjá
íokkur. — Því sem næst ryklaus vinna.
— Rafmagnsdrifin tæki (aðeins þarf 10
ampera öryggi, venjuleg ljósalögn).
Múrbrot sf.
Símar: 2248 - 2452
Bókhalds-
og framtalsaðstoð
Oliver Kristófersson
Sími 1912
3