Umbrot - 18.01.1978, Blaðsíða 9
Minningarsjóður um
Guðmund Sveinbjörnsson
Sá forystumaður íþróttahreyf
ingarinnar á Akranesi, sem best
og lengst allra manna hefur
starfað á sviði íþróttamála í
þessum bæ er Guðmundur Svein
björnsson (d. 9.1. 1971). íþrótta
fólk og allir sem viðurkenna
nauðsyn íþróttaiðkana standa
í þakkarskuld fyrir þessi störf
hans. Þau verða hest þökkuð
með því að standa vörð um það
málefni, sem hann vann að, og
halda uppi því merki sem hann
vann svo dyggilega fyrir og
láta það aldrei falla.
Fyrir nokkru síðan var stofn-
aður minningarsjóður um Guð-
mund Sveinbjörnsson í virðing-
ar- og þakklætisskyni fyrir hin
veigamiklu störf hans í þágu
íþróttabandalags Akraness,
íþrótta- og menningarmála. Sjóð
urinn ér stofnaður af íþrótta-
bandalagi Akraness, og er í
vörslu þess. Þriggja manna
stjórn fer með yfirráð sjóðsins,
skal formaður lA vera sjáif-
kjörinn formaður, hans, en tveir
meðstjórnendur eru kosnir ár-
lega á þingi ÍA. Stjórn sjóðs-
ins ákveður styrkveitingu og
ræður því hvort auglýsa skuli
eftir umsóknum eða ekki.
Styrki má veita efnilegum
íþróttamönnum til náms. Einn-
ig má styrkja íþróttaþjálfara,
sem sýnt hafa sérstakan áhuga
í starfi til náms í íþróttaþjálf-
un, og aðra þá sem vinna að
æskulýðs- og bindindisstörfum
í bænum.
Á 33. ársþingi ÍA í nóv. sl.
kom fram tillaga, sem var sam-
þykkt, þess efnis, að gerð yrðu
minningarkort fyrir minningar-
sjóðinn, til eflingar sjóðnum. Nú
hefur stjórnin látið gera þessi
kort og verður hægt að fá þau
í versluninni Óðni hf., Kirkju-
braut 5 Akranesi.
Einnig hefur stjórn sjóðsins
og stjórn ÍA mikinn hug á að
meistaraflokkur ÍA leiki í sum-
ar fjáröflunarleik fyrir Minn-
ingarsjóðinn, þannig að hann
geti starfað undir því merki er
til hans var stofnað.
Stjórn sjjóðsins er nú þannig
skipuð: Form.: Þröstur Stef-
ánsson. Meðstjórnendur: Ársæll
Vadimarsson og Kristján Sveins
son. Stjórnin var kosin á 33.
ársþingi ÍA í nóvember sl.
(Fréttatilkynning).
Akurnesingar!
Óskum ykkur gleðilegs árs og þökkum viðskiptin
á liðlnum árum — um leið viljum við vekja athygli
á neðangreindum fasteignum sem við höfum m.a.
til sölumeðferðar.
2ja herbergja íbúðir: Ný í fölbýlishúsi við Vallar-
braut — Við Vesturgötu og tvær við Skagabraut.
3ja herbergja íbúðir: Þrjár við Bárugötu — tvær
við Brekkubraut — við Garðabraut — Kirkjubraut
— Krókatún — Skólabraut og Höfðabraut
4ra herbergja íbúðir; Tvær við. Háholt — ný við
Höfðabraut — við Jaðarsbraut — Krókatún -—
Mánabraut — Sandabraut —- ný við Skarðsbraut —
Vallholt og Vesturgötu.
5 og 6 herbergja íbúðir: Þrjár við Höfðabraut —
tvær við Kirkjubraut — við Sandabraut — Stekkj-
arholt og tvær við Vesturgötu.
Einbýlishús: Við Bjarkargrund — Grenigrund —
Háteig — tvö við Mánabraut — Melteig — Prest-
húsabraut — Stekkjarholt — Stillholt og fjögur
við Vesturgötu.
Fokhelt: Við Reynigrund
HÚS og EIGNIR — fasteignasala
Hallgrímur Hallgrímsson — löggiltur fasteignasali
Deildartúni 3 — Akranesi — Sími 93-1940
Karlakórinn að hefja æfingar
Samband íslenskra karlakóra á 50 ára
afmæli á þessu ári. Af þvíitilefni verö-
ur haldin sameiginleg sönghátíð norð-
lenskra og sunnlenskra karlakóra á
vori komandi í Laugardalshöll, með
þátttöku Sinfóníuhljómsveitar Reykja-
víkur. Þetta er á Listahátíð 1978.
Karlakórinn SVANIR mun taka þátt
í þessari hátíð auk þess sem hann ráö-
gerir samsöng hér síðari hluta vetrar.
Æfingar eru þegar hafnar og verða á
þriðjudögum og fimmtudögum eftir-
leiðis. Söngstjóri er Jón Karl Einars-
son, tónlistarkennari. — Nýir og gaml-
ir félagar sem þátt ætla að taka í störf
um kórsins hafi samband við einhvern
stjórnarmanna eða söngstjóra.
Stjórn kórsins skipa: Hallgrímur
Árnason, form., Garðar Óskarsson,
varaform., Rögnvaldur Þorsteinsson,
gjaldkeri, Gestur Friðjónsson, ritari og
Halldór Karlsson, meðstj.
Frá. Tónlistarskóla Akraness
Síðara misseri skólahaldsins heíst
14. jan. og stendur til 15. maí Hægt
er að bæta við takmörkuðum fjölda
nýrra nemenda í flestar deildir skól-
ans. Kennslugreinar eru: Píanó, orgel,
gítar, strengjahljóðfæri (fiðla, viola,
132
Þetta númer kom upp þegar
dregið var úr stigakortum Knatt
spyrnuráðs 1977 - Vinnings má
vitja til Kristjáns Sveinssonar.
UMBRDT
Útgefandi: XJMBROT sf.
Blaðstjórn og ábyrgðarmenn:
Indriði Valdimarsson, ritstj. og
Sigurvin Sigurjónsson augl.stj.
Auglýsingasími: 1127
Pósthólf 110
Gíróreikn. nr. 22110-4
Verð kr. 120
Setning og prentun:
Prentverk Akraness hf.
cello), blásturshljóðfæri (flauta, klarí-
nett, trompet, horn, básúna, túba),
einsöngur, samsöngur (fyrir börn) ef
nægileg þátttaka fæst, blokkflauta,
svo og forskóladeildir fyrir 5-8 ára
börn. Hver nemandi velur sér eina
aðalgrein af framantöldu en auk þess
er öllum nemendum skólans skylt að
sækja flokkakennslu í tónfræði og
tónheyrn, einu sinni í viku. í byrjun
febrúar munu einnig hefjast sérstök
tveggja mánaða reynslunámskeið í
strengja og blásturshljóðfæraleik, sem
einkum eru ætluð nemendum grunn-
skólans. Athygli fullorðinna er vakin á
því, að skólinn er ekki einasta bund-
inn við almenna skólaaldurinn, en tek-
ur við nemendum á öllum aldri í flest-
ar greinar.
Tónlistarskólinn á Akranesi starfar
nú í fyrsta sinn í nokkrum tengslum
við almenna skólakerfið, þ.e. á þann
hátt, að nokkrir nemendur úr fjöl-
brautaskóla og úr efsta bekk grunn-
skóla, sem nám stunda í tónlistarskól-
anum fá nú það nám sitt viðurkennt
sem fullgildan þátt í sinni almennu
skólamenntun.
Innritun nýrra nemenda á síöara
misserið ásamt móttöku námsgjalda
hófst þann 14. jan. en reynt verður aö
taka við nýjum nemendum eftir því
sem tök eru á til 1. febr. nk. Sérstök-
um innritunartíma er lokiö, en þeir
sem á nám hyggja og enn hafa ekki
gefið sig fram, geri það sem fyrst,
með því aö hafa samband viö skóla-
stjórann í síma 1098.
I ÞORRAMATINN
Úrvals súrmatur
Sviðasulta — Svínasulta
Bringukollar — Lundabaggar
Svið — Hangikjöt
Harðfiskur — Hákarl
Opið til kl. 6 sd.
mánud. - föstud.
Kirkjubraut 11
Húsnæði óskast
til leigu fyrir lögregluvarðstofu á
Akranesi.
Þarf helst að vera á 1. íhæð.
Upplýsingar gefur undirritaður.
Lögreglustjórinn á Akranesi,
13. janúar 1978.
Björgvin Bjarnasion.
9