Umbrot - 10.05.1978, Blaðsíða 1
UMBRQT
5. tbl. Miðvikudagur 10. maí 1978 5. árgangur
GÆTI ÞJÓNUSTAN
VERIÐ BETRI?
Kór Barnaskólans og stjórnandinn, Jón Karl Einarsson. Myndin
er tekin í Akraneskirkju í vetur (Ljósm. Sigurbjörn)
Kór Barnaskólans
syngur á Listahátíð
Það hefur löngum verið
kappsmál hvers bæjarfélags að
ferðafólk fái sem besta þjón-
ustu á viðkomandi stað. Hér er
lítil saga frá Akranesi. Hún
gerðist fyrir nokkrum vikum.
Hópur ungmenna kom hingað
til að taka þátt í íþróttamóti.
Þegar mótinu var lokið (á laug-
ardagskvöldi) ætlaði hópurinn
að fá sér snarl í svanginn. En
þá kom nú heldur en ekki upp
vandamál. Það var sem sé eng-
inri staður til á Akranesi sem
hægt var að fá sér mat á. Mat-
sala Hótelsins var lokuð eins
og venja er þegar dansleikir
eru þar. Hvað var þá til ráða?
Það varð áð fara í söluturn, en
þar sem klukkan var að verða
hálf tólf og komið að lokun, var
þetta afar illa séð, og ekki þarf
að taka fram að pylsurnar sem
Stjórn Sementsverksmiðju
ríkisins hefur ráðið Gylfa Þórð-
arson viðskiptafræðing fram-
kvæmdastjóra verksmiðjunnar
og tók hann við störfum 1. maí
sl.
Gylfi er 33 ára gamall, fædd-
ur á Akranesi 5. desember 1944,
sonur Þórðar Egilssonar pípu-
lagningameistara og konu hans
Jónu Valdimarsdóttur. Gylfi
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1965 og
viðskiptafræðiprófi frá Háskóla
til voru duguð engan veginn
fyrir alla hina svöngu maga.
Þessi litla saga sýnir áð ferða
menn geta ekki fengið viðun-
andi þjónustu hér á Skaga og
er það afar leiðinlegt til afspurn
ar fyrir svona stórt byggðarlag.
Bætta þjónustu vantar einn-
ig á fleiri sviðum og mætti t.d.
nefna salemisaðstöðu. Hún er
ekki til í 4.500 manna bæ. Hvað
skal til bragðs taka ef hópui:
sem þessi þarf á salerni? Eina
ráðið er að hlaupa bak við hús-
vegg og pissa þar, eins og það
er nú þrifalegt. Þetta er að
sjálfsögðu atriði sem ekki er
hægt að bjóða upp á og væri
það verðugt verkefni næstu bæj-
arstjórnar að bæta hér úr fyrst
núverandi bæjarstjórn hafði
ekki kjark í sér að hrinda þessu
sjálfsagða máli í framkvæmd.
Islands 1969. Hann stundaði
framhaldsnám í hagfræði í
Englandi 1969-70. Við heimkom
una varð hann fulltrúi hjá fjár-
laga- og hagsýslustofnun og
gegndi því starfi í hálft ár eða
til 10. desember 1970 að hann
tók við fulltrúastöðu í sjávar-
útvegsráðuneytinu. Hann varð
deildarstjóri í ráðuneytinu 1.
júlí 1970 en 1. september sl. tók
Gylfi við starfi fjármálastjóra
Rafmagnsveitna ríkisins og hef-
ur hann gegnt því starfi síðan.
Flestir, ef ekki allir Akur-
nesingar vita að hér eru starf-
andi kórar, þ.e. karlakór og
kirkjukór, en ég efast um að
allir viti að Akurnesingar eiga
einnig barnakór, já, og það góð-
an barnakór. Starfsemi þessa
kórs hefur ekki verið gefinn
gaumur sem skyldi og því skal
reynt að bæta hér lítillega úr.
Umræddur barnakór er kór
Barnaskólans á Akranesi.
Stjórnandi hans og stofnandi er
Jón Karl Einarsson tónmennta-
kennari, og hefur honum tekist
einstaklega vel upp og náð góð-
um árangri.
Barnakórinn var stofnaður
18. október 1976 og hófu 19
börn þá þegar að æfa í Jóla-
kantötu eftir Jakob Hallgríms-
son við texta Stefáns frá Hvíta-
dal. Kantatan var flutt á litlu
jólunum í skólanum og einnig
í æskulýðsmessu í Akranes-
kirkju, við undirleik ungs og
efnilegs orgelleikara, Björns
Sólbergssonar.
Eftir áramót 1976/1977 var
hafinn undirbúningur að þátt-
töku í fyrsta landsmóti ís-
lenskra barnakóra, sem haldið
var 22. mars 1977 í Háskólabíói
á vegum Tónmenntakennarafél-
ags Islands og einnig tóku börn-
in þátt í Fimleika- og kóramóti
Vesturlands sem haldið var á
Akranesi 24. apríl 1977.
Sl. haust hóf síðan 31 nem-
andi starf í kórnum. Á þessu
starfsári hefur hann m.a. sung-
ið í Akraneskirkju (við guðs-
þjónustu á jóladag), á tónleik-
um í Háteigskirkju 22. mars sl.
ásamt þrem öðrum kórum og
síðan á Fimleika- og kóramóti
Vesturlands 8. apríl sl. Auk
þess hefur kórinn sungið við
ýmis tækifæri.
Nú er stefnt að því að kór
Barnaskólans syngi á Lista-
hátíð 10. júní í sumar, ásamt
tveim öðrum kórum á svoköll-
uðum maraþontónleikum sem
haldnir verða í Laugardalshöll.
Allir, sem í kórnum eru, hafa
þreytt inntökupróf og er þar
tekið tillit til margra hæfileika,
eins og t.d. hve hreint er sungið
og taktfast, blæfegurðar og
styrkleika raddar, einbeitni og
úthalds o.m.fl.
Æfingar eru þrisvar í viku,
samtals 4 tímar og fara þær
allar fram eftir að skólatíma
lýkur.
Talsverður kostnaður er af
veru barnanna í kórnum (ferða-
lög o.fl.) en foreldrar og börn
eru einhuga um farsæld hans
og vilja veg hans sem mestan.
Það er gaman fyrir Akranes
að eiga slíkan kór og er hann
vel þess virði að honum sé
gaumur gefinn í enn ríkara mæli
en verið hefur.
Söluverölaun
UMBROTS
Þau sem hlutu söluverðlaun í
apríl voru: Bjarni Sölvason
og Guðrún Kristófersdóttir.
Þessir krakkar eru beðnir um
að hafa samband við blaðið.
Fra kröfugöngu verkalýðsfélaganna 1. maí sl.
(Ljósm. :Sigurbjörn)
Gylfi Uórðarson
ráðinn framkvæmdastjóri
Sementsverksmiðju ríkisins