Fjarðarpósturinn - 29.10.2015, Side 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2015
Notaleg stund í Krikanum 6. nóv.
Föstudagsfjör 6. nóv. í Sjónarhóli Kaplakrika klukkan 12
Súpa og brauð á aðeins 500 krónur!
Magnús Sigurbjörnsson framkvæmdastjóri RunningBall á Íslandi
kemur og segir okkur frá veðmálastarfsemi á Íslandi
„Hressleikarnir eru góð-
gerðaleikar þar sem við styrkjum
kroppinn og gott málefni í
leiðinni,“ segir Linda Hilmars-
dóttir í Hress líkamsrækt.
Á leikunum eru átta 28 manna
lið sem öll klæðast sérstökum lit
sem æfa í 15 mínútna lotum í tvo
tíma. Litirnir eru gulur, rauður,
grænn, blár, hvítur, appelsínu-
gulur, bleikur og fjólublár. Að -
gangseyrir er 2.500 kr. sem renn-
ur óskiptur til söfnunar verkefnis
ársins. Öllum er vel komið að
taka þátt hvort sem þeir eru
korthafar í Hress eða ekki.
Í ár verður 5 manna fjölskylda
hér í bæ styrkt. Fyrir 9 árum
greindist fjöl skyldu faðirinn
Kristján Björn Tryggva son (34)
með heilaæxli og var honum
ekki spáð langlífi en á einhvern
ótrúlegan hátt náði hann að
sigrast á meininu. Afleiðingarnar
af heilaæxlinu eru framheila-
skaði. Kiddi hefur alltaf verið
ótrúlega jákvæður og glímt við
veikindin af mikilli jákvæðni.
Kristján hefur undafarin ár lagt
mikið á sig til að safna fyrir aðra
og m.a. safnað nokkrum milljón-
um fyrir Mottumars. Eftir að
Kristján sigraðist á veikindunum
vann hann hjá Hreinsitækni á
dælubíl. Þar lenti hann í alvarlegu
vinnuslysi. Eftir árs veikindaleyfi
byrjaði hann að vinna á sambýli
í Hafnafjarðabæ sem var hans
draumastarf. Því miður greindist
Kristján aftur með illkynja
heilaæxli í maí á þessu ári og
varð að láta af störfum og hefja
lyfjameðferð. Við þetta áfall varð
fjölskyldumóðirin, Kristín Þórs-
dóttir (31) að láta tímabundið af
störfum líka til að sinna veikum
eiginmanni og börnum Bóasi
Erni (2), Öglu Björk (7) og Ísak
Þór (12). Því miður hefur Kristj-
áni hrakað undanfarið og hafa öll
þessi áföll haft veruleg áhrif á
fjárhag fjölskyldunnar og fram-
tíðardrauma þeirra.
Fyrir þá sem vilja styrkja mál-
efnið er söfnunarreikningurinn:
135-05-71304 kt. 540497-2149
Styrkja 5 manna
fjölskyldu með
Hressleikunum
Hressleikarnir 2015 haldnir á laugardaginn kl. 9
Frá Hressleikunum 2014.
Kristján Björn og fjölskylda.
52ja manna hópur frá Cux-
haven dvaldi hér í Hafnafirði í
eina viku. Þetta voru 28 ungl-
ingar 14-17 ára frá íþróttafélaginu
TSV Altenwalde. Með hand-
bolta unglingunum eru 4 þjálfarar
og 20 aðrir gestir frá Cuxhaven.
Altenwalde er um 7000 manna
bær í Cuxhaven. Gestgjafar eru
FH handboltadeild og vina-
bæjarfélagið Hafnarfjörður
Cuxhaven. Þetta er í fimmta
skiptið frá 2010 sem FH og TSV
Altenwalde hittast í viku tíma til
að æfa og spila saman handbolta.
TSV kom árið 2010, 2013 og
núna 2015. FH fór til Cuxhaven
Altenwalde 2012 og 2014.
Handboltahópurinn gisti í
félagsmiðstöðinni Hrauninu í
Víðistaðaskóla en hinir á Hótel
Hafnarfirði. Haldið var
vinbæjarmót í Kaplakrika með
liðum frá FH, TSV Altenwalde,
Haukum og Fram. Þá léku FH
og TSV Altenwalde einnig
vinabæjarleiki.
Krakkarnir borðuðu saman
með jafnöldrum sínum úr FH,
fóru í sund og skoðuðu bæinn.
Hópurinn fór einnig í skoðun-
arferðir um Reykjanes, fóru
Gullna hringinn og skoðuðu
minn is merki um drukknaða
sjómenn í Vík.
Þýska stuðningsfólkið var fjölmennt. Vel merktar treyjurnar.
Vinabæjasamstarf
28 unglingar frá Cuxhaven hér að spila handbolta
Í 16 ár hefur Tækniþjónusta
bifreiða ehf. – bifreid.is þjón-
ustað eigendur þýskra bifreiða,
ekki aðeins með viðgerðum,
heldur einnig með sölu á vara-
hlutum. Jón Hafþór Marteinsson
bifvélavirki og fjölskylda hans
reka fyrirtækið sem á rætur sínar
að reka inn í Ísafjarðardjúp.
Fjölskyldumeðlimirnir búa nú
flestir í Hafnarfirði og eru miklir
Hafnfirðingar að sögn Lindu
Drafnar Gunnarsdóttur eigin-
konu Jóns Hafþórs.
Fyrirtækið hefur alla tíð verið
að Hjallahrauni 4 en nýlega
stækkaði fyrirtækið verulega við
sig er það tók í notkun húsnæði
þar sem gæludýraverslun hafði
verið áður. Þar hefur verið opnuð
glæsileg varahlutaverslun sem
ber nafnið Bifreið.is og býður
uppá varahluti í þýska bíla.
Öðruvísi verslun
Þetta er engin venjuleg vara-
hlutaverslun, a.m.k. ekki á
yfirborðinu. Ýms um sérhæfðum
varahlutum er raðað upp, nánast
eins og lista verkum og sófasett,
fiskabúr og gömlu steríógræj-
urnar gera verslunina nánast
heim ilislega. „Við viljum að við-
skiptavinum líði vel þegar þeir
koma inn, að þetta sé eins konar
vin í daglegu amstri. Því höfum
við innréttað búðina svona. Fólk
getur sest niður, fengið sér kaffi
og litið í blöð. Þetta hefur komið
fólki skemmtilega á óvart þar
sem þetta er ekki viðmótið sem
það á að venjast almennt í
þessum geira,“ segir Jón Hafþór
í samtali við Fjarðarpóstinn.
Rappar Hafnarfjarðarpeppin
í frístundum
Þar er einn sonurinn innan-
búðarmaður, Alexander Gabríel
sem rappar í frístundum sínum í
sveitinni Valby bræðrum. Sveitin
rappar meðal annars um Hafnar-
fjörð og hlusta má á lög þeirra
frítt á YouTube, t.d. Hafnar-
fjarðarpeppin sem skreytt er
skemmtilegu myndbandi úr
Hafn arfirði og af verkstæðinu.
Hittast í hádeginu
Hjá fyrirtækinu er einnig annar
sonur, systir og mágur ásamt
öðru starfsfólki. Segir Linda að
nú séu þetta tvær starfsstöðvar
hlið við hlið, verkstæðið og
varahlutaverslunin. Starfsfólkið
hittist þó í hádeginu þar sem
reiddur er fram fjölskyldumatur
og reyni allt starfsfólk að taka
tíma og setjast niður saman.
„Ungu drengirnir fá þá oft að
reyna ýmislegt nýtt í matar-
smökkun og fengu um daginn
t.d. siginn fisk,“ segir Linda. Á
Þorláksmessu er svo skötuveisla
fyrir viðskipavini þar sem skatan
kemur beint frá Dána kálfi í
Djúpinu, frænda Jóns Hafþórs.
Linda segir þessa veislu löngu
vera orðna að fastri hefð í jóla-
undirbúningi viðskiptavina. Á
aðventunni hafi þau svo hug á að
skapa skemmtilega stemmningu
og aldrei að vita hvað gert verður,
fengin hljómsveit til að spila eða
eitthvað skemmtilegt.
Ört vaxandi þjónustusvæði
„Það hefur verið gaman að
fylgjast með breytingum á
umhverfinu hér þessi 16 ár og
virðist okkur þetta svæði stefna í
að verða nýi verslunarkjarni
Hafn afjarðarbæjar,“ segir Jón
Hafþór um gamla iðnaðarsvæðið
á Hraununum.
Nei, þetta er ekki listsýning í Hafnarborg. Þetta eru varahlutir.
Varahlutir og verkstæði
Tækniþjónusta bifreiða opnar nýja varahlutaverslun Bifreið.is
Feðgarnir Jón Hafþór Marteinsson og Alexander Gabríel.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n