Bæjarblaðið - 18.12.1954, Blaðsíða 7

Bæjarblaðið - 18.12.1954, Blaðsíða 7
Laugardagur 18. desember 1954 BÆJARBLAÐBÐ 7 =»>' Zys/I’ Zj/I’ t Nytsömustu JOLAGJAFIRNAR eru eins og svo oft áður í Vcr^luninni $tndnrfcll HRÆRIRVÉLAR, Sunbeam. ÞÝZKI HRINGOFNINN Margar gerðir af litlum LOFTSKERMAR, úr plasti. 0 HRAÐSUÐUKATIÆR, KÆLISKÁPAR, litlir. BORÐLÖMPUM. M AT ARSTELL. margar gerðir. ÞÝZK VÖFFLUJÁRN. AMERlSKIR BORÐLAMPAR. KAFFISTELL. BRAUÐRISTAR. RYKSUGUR, 3 gerðir. LJÖSAKRÓNUR. ÖLSETT. STRAUJÁRN, 5 gerðir. BÖNVÉLAR. STANDLAMPAR. ÁVAXTASETT. gm KÖNNUR, með elementi. HÁRÞURRKUR. VEGGLAMPAR. Stál BORÐBÚNAÐUR. KRYSTALL-GLERVÖRUR — FLEST FÁANLEG BÚSÁHÖLD ÚR GLERI OG MÁLMI. KORT PAPPlR MERKIMIÐAR. JÖLATRÉ, JÓLATRÉS-SERlUR. MISLITAR-LJÓSAPERUR. ★ Þaö er vanda minnst aö gefa GJAFAKORT, þá velur sá gjöfina, sem hana á aÖ fá. Á KONUR Á KARLA Á BÖRN. MISLITAR BARNABOMSUR UPPTREKT LEIKFÖNG. — Qiörió svo vcl og líiið inn — Verzlunin Staðarfell — GLEÐILEG JÓL! — — Sími 150 — Skemmdir ií Skdtafelli 1 flestum félögum, sem eitt- hvað hafa afrekað, eru afrek- .in og árangurinn að miklu leyti að þakka fámennum hóp á- hugasamra og fórnfúsra félags- manna. Við Akurnesingar höfum átt því láni að fagna að eiga slíka menn innan okkar félagssam taka. — Eitt gleggsta dæmið um slíkt, er bygging skíðaskál- ans í Vatnadal. Er með öllu ó- þarft að rekja sögu þeirrar byggingar, því að hún er okkur öllum vel kunn, og nöfn þeirra manna, sem það þrekvirki unnu, munu geymast í viðkom- andi félgi 3 okomnnni amm. En það var ekki skíðaskálinn, sem er ástæðan til þess að ég skrifa þessar línur. — Annar skáli stendur við rætur Akra- fjalls. Sá skáli er daglega fyrir augum okkar, er við litum til fjallsins. Hann var byggður fyrir mörgum árum af áhuga- sömum skátum, sem settu sér markið hátt og fómuðu tíma, og jafnvel fjármunum, til þess að koma hugsjón sinni í fram- kvæmd. — Og litli skálinn við rætur fjallsins ber vitni um árangursríkt starf þeirra. — Enn sækja skátar af Akranesi í skálann. Þar hafa einnig haft aðsetur gangnamenn, er leitað hafa fjár á fjallinu, einnig aðr ir er þess hafa óskað, og ávallt hefur leyfi verið fúslega veitt til slíkra afnota. — Á undanföm- um áriun hefur meira og minna verið ráðist að húsi þessu og þar framin ýmiss skemmd arverk, svo sem hlerar sprengd- ir frá gluggum, rúður brotnar, hurð dýrkuð upp og gengið um skálann, sem væri hann vart mannabústaður. — Öllu þessu hefur Skátafélag Akraness tekið með þolinmæði og bætt úr jafnóðum og niður hefur verið brotið, í von um að skemmdarstarfseminni lyki. — En reyndin hefur orðið önn- ur. Fyrir skömmu fór ská taflokk- ur í útilegu í skálann, og að- koman var kaldranaleg. Hurð- in hafði verið „skotin“ upp, og ruddalega gengið um, eins og vart væru þar menn á ferð. Að lokum hafði verið hellt úr fullri vatnsfötu yfir mitt skála- gólfið, svo að aðkoman var heldur ömurleg. Hverjir eru þeir, sem slík skrílsverk fremja? Engir menn með fullri dómgreind á rétt og rangt, gætu lagst svo lágt að gera slíkt. Allir, sem fengið hafa léðan lykil að skálanum, hafa gengið þar um með prýði. —- En það eru fleiri en þeir ménn, sem sækja á fjallið. Rjúpnaveiðin í haust hefur verið brjálæðisleg. Margir unglingar hafa farið með byssu um öxl og ráðist að saklausri rjúpunni. Fæstir þeirra hafa byssuleyfi auk held- Ur meira. Sumir þeirra hafa ekki látið sér nægja það að skjóta rjúpur, heldur skotið á skálann líka. Slíkt atfierli ber vott um lág- an þroska. Það sæmir ekki þeim, sem vilja kallast menn. — Látið skálann í friði. Hann gerir engum mein, þar sem hann stendur við fjallsrætum- ar, sem minnisvarði brautryðj- enda. Aftur á móti hefur hann veitt mörgum skjól í nöprum vindum. Og sérstaklegá hefur hann skilið eftir hjá okkur, sem þangað höfum sótt, margar ó- gleymanlegar minningar um ferðir á fjallið og hressandi úti- líf. Og enn mun þeim, sem nauð- syn er að fá afnot af skálan- um, það heimilt, með góðri umgengni. — Vinsamlegast fá- ið léðan lykilinn hjá Hans Jörg- enssyni, félagsforingja. Bragi Þórðarson. AKURNESINGAR! Munið VETRARHJÁLPINA.

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1341

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.