Skagablaðið


Skagablaðið - 14.09.1984, Blaðsíða 3

Skagablaðið - 14.09.1984, Blaðsíða 3
Skagaleikflokkurinn á fulla ferð: Æfingar eru hafnar á gamanleikriti Skagaleikflokkurinn hóf um síðustu helgi æfingar á leikritinu Indíánaleikur (Það þýtur í Sassa- frastrjánum) eftir René de Obald- ia. Hér er á ferðinni gamanleikur í tveimur þáttum í þýðingu Sveins Einarssonar og var fyrst sýndur hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1967. Þegar Skagablaðið brá sér á æfingu hjá leikflokknum síðla á mánudagskvöld var allt á fullu. Reyndar voru aðeins þrír leikar- anna að æfa rullur sínar en leik- stjórinn, Guðrún Ásmundsdótt- ir, fylgdist með af áhuga og skellti upp úr af og til enda hið skondn- asta gamanstykki á ferðinni. Alls eru 9 hlutverk í þessu leikriti en æfingar eru svo skammt á veg komnar að ekki er búið að ganga frá skipan þeirra að fullu. Á æfingunni á mánudag voru þau Mikil sigur- hátíð á morgun Mikil sigurhátíð verður haldin hér í bænum á morgun, laugar- dag, í tengslum við síðasta leik íslands- og bikarmeistara Akra- ness í 1. deildinni, gegn Breiða- bliki á Jaðarsbökkum kl. 14.30. íslandsbikarinn verður afhentur í leikslok. Strax kl. 11 í fyrramálið munu leikmenn meistaraflokks leggja blómsveig á leiði Guðmundar Sveinbjörnssonar, fyrrum for- manns ÍA. Kl. 12.30 mun Horna- flokkur Kópavogs hefja leik sinn á Akratorgi undir stjórn Björns Guðjónssonar. Áður en sjálfur leikurinn við Breiðablik hefst kl. 14.30 munu 4. flokkur karla og meistaraflokk- ur kvenna leika forleik en báðir þessir flokkar urðu sem kunnugt er íslandsmeistarar í sumar. Hefst leikurinn kl. 13.00. Horna- flokkurinn mun síðan blása í lúðra frá kl. 14. Eiginleg sigurhátíð verður svo ekki fyrr en annað kvöld í íþrótta- húsinu. Hefst hún kl. 20.30. Verð- ur þar ýmislegt til gamans gert. Verða þar hinir ýmsustu flokkar á ferð, Vanir menn, 4. flokkur, meistaraflokkur karla og kvenna- flokkarnir að ógleymdum HLH- flokknum — „flokknum sem fann upp stuðið“. Poppflokkurinn Einsdæmi mun síðan leika fyrir dansi til kl. 2 um nóttina. Kynnir á skemmtuninni verður Sigur- steinn Hákonarson. Verð á miðum á skemmtunina í íþróttahúsinu verður kr. 150 fyrir 14 ára og eldri en 50 kr fyrir 10-14 ára. Þá verður efnt til skyndihappdrættis á skemmtun- inni. Kostar hver miði kr. 25 og verður vinningurinn ferð til Amst- erdam fyrir einn með meistara- flokki þegar farið verður til Belg- íu til að leika síðari leikinn gegn Beveren. Kristján Elís Jónasson í hlutverki John-Emery Rockefeller, Gerð- ur Rafnsdóttir í hlutverki Caro- line og Guðjón Kristjánsson í hlutverki William Butler á fullu og ekki vantaði innlifunina. Önnur hlutverk skipa eftirtald- ir: Hallbera Jóhannesdóttir leik- ur Pamelu (þó ekki í Dallas), Jón Sigurður Þórðarson leikur Tom, Hrönn Eggertsdóttir Miriam og Kjartan Guðmundsson leikur Carlos. Hlutverk Snarauga og Fránauga eru enn óskipuð. Að sögn þeirra Skagaflokks- manna er ætlunin að frumsýna þetta verk í lok október en þó eru engar dagsetningar ákveðnar í þeim efnum. Að vanda mun svo Skagaleikflokkurinn taka til við annað verk eftir áramótin. Leikstjórinn, Guðrún Ásmunds- dóttir. Ætíarðu að haída veisíu? Vantar þig snittur eða brauð- tertur? Pantanir í síma 2979. (Geymið auglýsinguna). Ný tannlæknastofa Hef opnað nýja tannlæknastofu að Kirkjubraut 2, Akranesi. Sími 93-2355 Ægir Rafn Ingólfsson SÓLBREKKA AKURSBRAUT 3 S. 2944 Við bjóðum upp á glæsilega aðstöðu. Breiðir Ijósabekkir með 18 mín. perum, andlitsljósum og góðri kælingu. Bjóðum ennfremur upp á heitan pott, gufubað, trimmtæki og hvíldarhorn. Komið, slappið afog sannfærist. Opið til kl. 23 mánudaga - föstudaga, til kl. 20 á laugardögum. 3

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.