Skagablaðið


Skagablaðið - 14.09.1984, Blaðsíða 8

Skagablaðið - 14.09.1984, Blaðsíða 8
AUGLÝSINGA- SÍMINN ER 2261 ÁSKRIFTAR- SÍMINN ER 2261 Sólfari AK-77 leigður vestur á firði út október. „Ræð ekki lengur ferðinni í þessu“ — segir Þórftur Óskarsson, útgerðarmaður Sólfari AK-77 hefur verið leigð- ur vestur á firði til rækjuveiða til loka október a.m.k. að sögn Þórðar Oskarssonar, eiganda skipsins. Þórður sagði Skagablað- inu að þrír úr fímm manna áhöfn hefðu farið vestur með skipinu. „Ég ræð ekki lengur ferðinni í þessu,“ sagði Þórður og var að vonum þungt í honum hljóðið. Sagði hann útgerðarmenn hafa hamrað á vanda sjávarútvegsins undanfarin 6 ár en árangurinn væri sýnilega ekki mikill. Sagði Þórður það hreinlega vera svo, að fólk virtist ekki trúa því hversu Útlánafœkkun á hvern íbúa á milli áranna 1981 og 1982 kemur fram á þessari mynd. Starfsemi bókasafnsins árín 1981 og 1982: illa sjávarútvegurinn væri stadd- ur. „Maður er hreinlega kominn upp að vegg í þessum efnum. Það eru engir peningar til og menn prenta ekki peninga,“ sagði Þórð- ur. Sagði hann sjávarútveginn einfaldlega standa frammi fyrir gálga. Sá orðrómur hefur gengið hér í bænum, að Þórður hygðist flytja fyrirtæki sitt úr bænum og þá jafnvel til Hafnarfjarðar. Hann vildi ekkert um slíkt segja er Skagablaðið ræddi við hann og sagði ómögulegt að segja til um hvort eða hvert hann kynni að hrökklast. Fækkun útlána um 34% á milli ára - Vinnslustöð Pórðar Óskarssonar. Þar er nú fátt um starfsfólk. Dagvistun bama á Akranesi: Biótíminn 18 mánuðir Veröandi mæður og feður þurfa greinilega að hugsa fram í tímann vilja þau tryggja barni sínu vist á barnaheimili eða leik- skóla hér ■ bæ. Samkvæmt upp- lýsingum Guðgeirs Ingvarssonar, félagsmálafulltrúa Akranesbæj- ar, er biðtími á barnaheimili 2-4 mánuðir en sjaldnast skemmri en hálft annað ár á leikskólana. Guðgeir tjáði Skagablaðinu að ákveðin skilyrði þyrfti að uppfylla til þess að foreldrar kæmu börn- um sínum í gæslu. Frumskilyrðið væri að viðkomandi foreldri væri búsett á Akranesi. Annað skil- yrði væri að barnið væri a.m.k. 15 mánaða gamalt. Þá hefðu ein- stæðir foreldrar forgöngu gagn- /art öðrum, skólafólk kæmi næst. Sem dæmi um ásóknina í leik- skólana má nefna, að um síðustu áramót voru á milli 140 og 150 börn á biðlista og varla hefur hann minnkað síðan. Auglýsend- ur athugið Næsta Skagablað kemur út þann 21. september að öllu for- fallalausu. Auglýsendum er bent á að koma auglýsingum til blaðs- ins eigi síðar en á mánudagskvöld (opið til miðnættis) vegna breyttra vinnsluhátta blaðsins á meðan verkfall bókagerðar- manna stendur yfir. Auglýsinga- síminn er 2261. Bókaútlán á Akranesi drógust verulega saman á milli áranna 1981 og 1982 samkvæmt nýút- kominni ársskýrslu bókafulltrúa ríkisins. Þar kemur fram, að útlán pr. íbúa á Akranesi voru 14,66 á árinu 1981 en ekki nema 9,69 á árinu 1982. Ekki kemur það fram í sjálfri skýrslunni hver skýring þessa kann að vera, en álit Skaga- blaðsins er að myndbandafárið eigi vafalítið stærstan hlut að máli í þessu tilviki. Útlán á Akranesi voru tiltölu- lega mjög svipuð árin 1979 til 1981. Arið 1979 voru þau 13,96 pr. íbúa, árið 1980 varð aukning um 0,5 bindi og 1981 varð aukn- ing um 0,2 bindi. Síðan snar- fækkaði útlánum eins og að fram- an greinir. Samkvæmt skýrslu bókafull- trúa ríkisins voru útlán pr. íbúa flest á Siglufirði eða 21,60 árið 1982. Seltjarnarnes kom næst með 19,50 eintök pr. íbúa, þá Vestmannaeyjar með 17,07, Sauðárkrókurmeð 16,77 ogBorg- arnes 15,53. Af þeim 40 bóka- söfnum, sem skýrslan nær yfir (Reykjavík er ekki talin með) er Akranes í 15. sæti með 9,69 bækur pr. íbúa. Þegar skoðuð er tafla yfir fjölda bóka á þessum 40 söfnum pr. íbúa kemur í ljós að Akranes er í 24. sæti í þeim efnum með 5 bækur. Svarar það til eþss að safnið hér á Akranesi eigi um 17000 bindi bóka. Flestar bækur eru hlutfallslega í bókasafninu á Kópaskeri eða 51,4 bindi á hvern íbúa. í öllum framangreindum tölum er aðeins miðað við það, sem nefnt er miðsöfn í skýrslunni. Yf ir900eintök voru seld í síðustu viku Skagablaðið náði í síðustu viku þeim áfanga, að í fyrsta sinnn seldust yfir 900 eintök af blaðinu. Er það óneitanlega glæstarí árangur en aðstandend- ur blaðsins gerðu sér vonir um í upphafi. Eftir hefðbundna byrjunar- örðugleika og önnur bernsku- brek hefur blaðið smám saman verið að taka á sig mynd, sem væntanlega verður andlit þess í framtíðinni. Kappkostað hefur verið að hafa efnið sem allra fjölbreyttast og svo verður á- fram. Það er stefna Skagablaðsins að upplýsa lesendur sína og þá um leið auglýsendur hver sala blaðsins er hverju sinni. Ágúst- mánuður hefur nú verið endan- lega gerður upp. Fyrsta tölu- blað Skagablaðsins seldist í 846 eintökum, það næsta í 729, 3. tölublað í 788 og það fjórða í 770 eintökum. Salan á 5. tölu- blaðinu fór hins vegar fram úr öllum vonum og sýnt er að hún fer eitthvað yfir 900 eintök.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.