Skagablaðið - 14.09.1984, Síða 4
Séð inn í biðstofu hinnar nýju tannlœknastofu.
A an lenn eru
eh I IS eii lii"
segir Ægir Rafn ingólfsson, tannlæknir
Ægir Rafn Ingólfsson, tann-
læknir, opnaði fyrir skemmstu
tannlæknastofu að Kirkjubraut 2.
Skagablaðið heimsótti hann fyrir
nokkru á hinni nýju stofu, sem er
öll hin glæsilegasta. Allar innrétt-
ingar eru gerðar hér á Akranesi
og öll vinna við hið nýja húsnæði
var unnin af iðnaðarmönnum
héðan.
Ægir hóf störf sem tannlæknir
hér á Akranesi fyrir um einu ári.
Starfaði hann á stofu með þeim
Ingjaldi Bogasyni og Lárusi Arn-
ari Péturssyni. Hann ber Akur-
nesingum sérdeilis vel söguna og
sagði það hafa verið sér og konu
sinni happ, að flytja á Höfða-
brautina. Þar hefðu þau strax
komist í kynni við „innfædda“.
„Ég get ekki með nokkru móti
sagt að Skagamenn séu seintekn-
ir,“ sagði Ægir Rafn. „Auðvitað
byggist þetta á því með hvaða
hugarfari fólk flyst til bæjarins“.
Ægir Rafn er Vestmannaeying-
ur og sagði það reyndar hafa
komið til tals að hann flytti til
Eyja að loknu námi og hæfi þar
störf. „Eftir að maður er búinn að
vera uppi á landi í ákveðinn tíma
vill maður geta notið þess að
setjast upp í bíl og fara eitthvað
án þess að þurfa að panta sér far
með bílaferju með löngum fyrir-
vara eins og t.d. þarf í Eyjum yfir
sumartímann.“
Engilbert Guðmundsson, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins:
Emimswidaiigah
mal og rekstur
íþróttamannvirkja
Nú í lok knattyspyrnutím;
bils er ástæða til að óska knatt-
spyrnufólki okkar til hamingju
með frækilega sigugöngu í sum-
ar Vonandi verður veturinn
öðru íþróttafólki jafn „mildur“
og sumarið varð knattspyrnu-
fólki bæjarins.
Fyrirferð íþróttanna í bæjar-
lífinu veldur því að þær eru
mikið ræddar og oft umdeildar.
Skorturinn á aðstöðu til íþrótta-
iðkunar í öllum greinum veldur
stundum ýfingum milli grein-
anna. Því er mikil nauðsyn að
vel og sanngjarnlega sé staðið
að resktir og uppbyggingu þess-
ara mála. Þung yfirstjórn og
silkihúfukerfi ásamt óhag-
kvæmum byggingum dregur fé
og aðstöðu frá sjálfri íþrótta-
iðkuninni.
Ýmsar ákvarðanir á sviði
íþróttamála undanfarið hafa
verið heldur misheppnaðar.
Fyrst má nefna að þegar íþrótta-
ráð var sett á laggirnar æxlaðist
þannig til, að þar völdust nær
eingöngu til trúnaðar karlmenn
tengdir knattspyrnu. Fyrir vikið
verður maður var við að íþrótta-
fólk margt í öðrum greinum ber
ekki fullt traust til ráðsins.
E.t.v. var þessi skipan hrein
slysni, en þó verður að segjast
að t.d. Sjálfstæðisflokkurinn
með sína 2 fulltrúar hefði átt að
geta tryggt meiri breidd úr
sínum röðum.
íþróttafulltrúi - án
auglýsingar
Skipulagsbreytingar þær sem
gerðar hafa verið við íþrótta-
mannvirkin orka einnig mjög
tvímælis, svo ekki sé meira
sagt. Og það er svo sannarlega
sérkennilega að málum staðið
þegar sett er á stofn embætti
íþróttafulltrúa, án þess að það
sé auglýst laust til umsóknar.
Ýmsum hæfum aðilum gafst
þannig ekki tækifæri til að
sækja um þetta starf, t.d. for-
stöðumanni Bjarnalaugar, með
langan og góðan feril að baki.
Einnig útilokaði þessi aðferð
alla íþróttakennara og starfs-
menn íþróttamannvirkjanna
frá að sækja um. Hvort eitt-
hvert af þessu fólki hefði haft
áhuga á að sækja um starfið veit
ég ekki, enda skiptir það ekki
máli. Það sem skiptir máli er sú
meginregla, að fólki sé gefinn
kostur á að sækja um störf en
ekki ráðið án auglýsingar (sem
minnir reyndar á ráðningu núv.
bæjarstjóra). Ljóst er hinsvegar
að breytingarnar hafa mælst
mjög misjafnlega fyrir hjá
starfsfólki íþróttamannvirkj-
anna, og telur sumt af því sér
freklega misboðið.
Sundlaugar-
harmleikurinn
Fyrir sundáhugafólk hefur
þróun sundlaugarmálsins verið
hálfgerð harmsaga. Bjartsýni
þeirra daga þegar Alþýðu-
bandalagið og Dögun voru að
reyna að kveikja í Skagamönn-
um að velja sér laugarstæði er
horfin. Bjartsýni dagsins, þegar
bæjarstjórn ákvað að sundlaug
skyldi verða afmælisgjöfin okk-
ar allra á 40 ára afmæli bæjar-
ins, hefur snúist upp í vonbrigði
og biturleika, sem Sturlaugur
Sturlaugsson túlkar vel í Skaga-
blaðinu nýverið, er hann segir
að bæjarstjórn sé vita áhuga-
laus.
Það er hárrétt að lítill áhugi
hefur verið á málinu í bæjar-
stjórn frá því 1982. Það ár
nýttist ekki fjárveiting, sem
dugað hefði fyrir plastlaug og
bráðabirgðabúningshúsi, sakir
drauma um „minnisvarða-
laug“. Öllum fyrirspurnum um
málið hefur síðan verið svarað
með því að málið væri í vinnslu
hér og vinnslu þar. Og það
hefur verið hannað fyrir stórar
upphæðir. Hver tillagan af ann-
arri hefur verið dregin á blað,
hannað út og suður, en ekkert
byggt-
Skriður á málið
Skriður komst á málið um
sinn þegar Í.A. fór fram á að
mega byggja íþróttaskemmu *
við íþróttahúsið, en var talið á
að flytja sig inn á vallarsvæðið,
með loforði um að þeim yrði
séð þar fyrir búningsaðstöðu í
tengslum við sundlaugina. Þeir
Í.A. menn lögðu síðan fram
hugmynd um fyrirkomulag bún-
ingsklefa, íþróttahúss og sund-
laugar á vallarsvæðinu, sem
gerði ráð fyrir því að núverandi
búningshús yrði nýtt og tengdist
nýju íþróttahúsi og sundlaug.
Sú tillaga hlaut góðan hljóm-
grunn á fjölmörgum fundum
um málið.
En af einhverjum ástæðum,
og byggt á hönnunarforsendum
sem Verkfræði- og teiknistofan
bjó til handa bæjarstjórn, hefur
verið lögð fram teikning að
fyrirkomulagi búningsklefa,
sundlaugar og íþróttahúss, sem
allir virðast hundóánægðir með
— líka hönnuðir.
Verði byggt eftir þeirri teikn-
ingu mun sundlaugin í fyrsta
lagi lenda langleiðina frammi
við áhorfendapalla grasvallar-
ins og þrengir allt of mikið að
þeim. I öðru lagi verður bún-
irigsklefahúsið óheyrilega dýrt.
Hugmyndin er nefnilega sú að
i
Fyrirhugað stæði hinnar nýju sundlaugar fyrir ofan grasvðllinn á
Jaðarsbökkum.
fylla upp í flest op á gamla
vallarhúsinu og brjóta ný við
hliðina. Það á einnig að umsnúa
búningsklefunum sem nú eru
fyrir í húsinu. Síðan á að byggja
húskassa mikinn þar utan á,
með 8 sturtuklefum (í núver-
andi vallarhúsi er einnig í
íþróttahúsinu eru þeir tveir).
Ofan á allt bætist síðan að
reksturinn verður mannafla-
frekari ef byggt er eftir þessari
teikningu heldur en ef hug-
mynd Í.A. væri notuð sem
útgangspunktur.
Óvinsæl gagnrýni
Þessi gagnrýni á hönnunina
hefur ekki verið mjög vinsæl,
og ég og fleiri höfum fengið að
heyra að þar segðum við meira
en vit leyfði. Þess vegna hef ég
nú haft fyrir því að þvælast með
teikningarnar allar til verkfræð-
ings og arkitekts í öðrum pláss-
um og þar fengið fyrri hug-
myndir um kost og löst beggja
meginhugmynda (V.T. og
Í.A.) staðfestar.
Ég veit að meginhluti bæjar-
stjórnar er hundóánægður með
þá útfærslu sem fyrir liggur
varðandi búningsklefa og sund-
laug á vallarsvæðinu, en mun
e.t.v. láta til leiðast að hefja
framkvæmdir á þessum grund-
velli af einskæru samviskubiti
gagnvart sundfólkinu okkar.
Ég hef verið þannig stemmdur
til skamms tíma, en eftir því
sem ég velti málinu betur fyrir
mér á ég verra með að sætta mig
við að taka þátt í vitleysunni.
Þess vegna legg ég til að
laugarkerið verði flutt á þann
stað sem f.A. tillagan gerði ráð
fyrir og hafnar verði fram-
kvæmdir við það strax. Jafn-
hliða á að útfæra þá grunn-
hugmynd sem f.A. lagði fram
þannig að hefja megi fram-
kvæmdir við nauðsynlega bún-
ingsklefaviðbót strax og frost
fer úr jörð.
4