Skagablaðið - 14.09.1984, Síða 5
Henson samdi við
Þorgeir & Ellert
Samningar voru í vikubyrjun
undirritaður á milli Henson og
Þorgeirs & Ellerts um byggingu
verksmiðjuhúss fyrir Henson
hér á Akranesi. Húsið verður
792 fermetrar að stærð og er
gert ráð fyrir að fyrirtækið taki
til starfa fljótlega eftir áramót
„Ég lít þetta mjög björtum
augum,“ sagði Halldór er
Skagablaðið ræddi við hann í
vikunni. „Húsnæðið á að vera
afar vistlegt og þegar það er
fullbúið er mér til efs að nokkur
saumastofa á landinu geti stát-
að að betri aðstöðu.“
Akraneskaupstaður
Leikskóli — hlutastarf
Hér með er auglýst eftir
umsókn í hlutastarf í leik-
skóla. Starfið felst í aðstoð
við fatlað barn inni á deild.
Umsækjendur þurfa að geta
hafið störf sem fyrst.
Umsóknareyðublöð fást á
bæjarskrifstofunni. Umsókn-
arfresturertil21.sept. 1984.
Félagsmálastjóri,
Kirkjubraut 28
Sími1211
hverju öðruvísi“
— segir Ólafur Þór Gíslason, 18 ára „þúsundþjaiasmiður“ um þríhjólið
Ólafur Þór Gíslason heitir 18
ára gamall Skagamaður, scm vak-
ið hefur athygli fyrir að aka um á
vægast sagt sérstæðu farartæki.
Hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins hefur
það hlotið nafnið bifhjól sam-
kvæmt þeirra kokkabókum en
Ólafur kýs að nefna það þríhjól
enda segir sú nafngift allt um
farkostinn. Skagablaðið hitti Ólaf
Þór að máli í vikunni og rabbaði
stuttlega við hann um þríhjólið.
„Aðalástæðan fyrir því að ég
fór út í þetta var sú að mig langaði
til þess að aka um á einhverju
öðruvísi en allir hinir,“ sagði
Ólafur Þór. Hann fór því út í
smíði þríhjólsins og notaði aftur-
hluta Volkswagen-bifreiðar sem
uppistöðu. Ekki dugði það eitt og
keypti hann boddí ásamt fleiru
frá Bandaríkjunum. Ekki reynd-
ust þeir hlutir algerlega ókeypis
því ofan á kaupverðið lagðist
„aðeins“ 35% tollur.
„Eg lagði mikla vinnu í að gera
þetta sem best úr garði,“ sagði
Ólafur Þór ennfremur og bætti
því við að það hefði tekið hann
hálft annað ár að ganga frá
hjólinu. „Það fór allur minn frí-
tími í þetta,“ sagði hann. Þótt
aldrei komi hann til með að fá
vinnuna við hjólið greidda nema
að örlitlu leyti á hann a.m.k. til
minningar tvenn verðlaun sem
hann fékk á sýningum kvartmílu-
klúbbsins í fyra og í ár.
Þríhjólið er kraftmikið enda
með 1600 VW-vél innanborðs.
Það er leikur einn fyrir hann að
láta hjólið prjóna en til þess að
koma í veg fyrir slys með slíkum
æfingum svo og til að koma í veg
fyrir að skemma hjólið hefur
hann komið fyrir sérstakri „prjón-
grind“ á hjólinu.
Ekki gekk það alveg átakalaust
að fá skoðun á þennan sérstaka
farkost. Sagði Ólafur Þór að
ferðirnar í Bifreiðaeftirlit ríkisins
í Reykjavík hefðu orðið nokkrar
áður en yfirmenn þar lögðu bless-
un sína yfir gripinn. „Þeir gátu
ekki annað, ég fylgdi öllum reglu-
gerðum til hins ítrasta," sagði
hann.
Ólafur sagðist nú vera að reyna
að selja hjólið. „Maður þarf að
fara að fá sér einhvern almenni-
legan bíl fyrir veturinn.“ Hjólið
er falt fyrir 180.000 krónur en ef
vel ætti að vera þyrfti Ólafur að fá
3-400.000 krónur fyrir það. „Ég
er alveg sannfærður um að það
væri útilokað að smíða svona grip
fyrir þessar 180.000 krónur nú,“
sagði hann.
Er Skagablaðið spurði hann að
því í lokin hvort hann væri alveg
hættur slíkri tilraunastarfsemi
sagði hann ekki aldeilis vera svo.
Sig langaði mikið til þess að gera
upp einhvern japanskan fólksbíl,
setja í hann 8 cylindra vél og
breyta honum eitthvað frekar.
„Maður verður að vera öðruvísi,“
s^gði Ólafur Þór Gíslason. Hann
hyggst síðan um áramótin fara til
Reykjavíkur til vélstjóranáms.
Það val kemur Skagablaðinu ekki
á óvart í Ijósi tilraunastarfsemi
hans.
Húseigendur -
húsbyggjendur!
Qetum bætt við
okkur verkefnum
í raflögnum.
Vönduð vinna
Upplýsingar
gefur
b • oe ek Valgeir Runólfsson í símum 1159 og 1160
PORGEIR 6ELLERT HF.
• •
SKOLAVORUR
í miklu úrvali
BÓKASKEMMAN
Stekkjarholti 8-10 — Sími: 2840