Skagablaðið - 14.09.1984, Side 7
Fjördagur hjá íbúum Innri-Akranesshrepps:
Kvæntir unnu þá
ókvæntu að vanda
Frá pokahlaupi giftra og ógiftra kvenna.
Kvæntir sigruðu ókvænta (að
vanda segja þeir sem komnir eru
í hnapphelduna) á hinu árlega
haustmóti íbúa Innri-Akraness-
hrepps, sem fram fór fyrir tæpum
þremur vikum. Að vanda var fjör
hið mesta á þessum móti og auk
knattspyrnu var þar keppt í boð-
hlaupi bama og pokahlaupi á
milli giftra og ógiftra kvenna.
Kylfingar úr Leyni gerðu það
gott í flokkakeppni Golfsam-
bandsins, sem fram fór á Leim-
velli um sl. helgi. AIIs tóku 12 lið
þátt í mótinu, þar af A- og B-Iið
frá GR, GS og GV, og höfnuðu
Leynismenn í 7. sæti samanlagt.
Sá árangur dugði ekki til þess að
komast í 1. deild á næsta ári því
aðeins 6 efstu komast í hana.
A-sveit Golfklúbbs Reykjavk-
ur bar sigur úr býtum á mótinu,
Lesendur!
Ef ykkur liggur
eitthvað á hjarta
þá er síminn:
2261
Að sögn Antons Ottesens, odd-
vita hreppsins, hefur mót þetta
verið haldið allt frá 1960. Lengst-
um var það aðeins knattspyrnu-
leikur kvæntra og ókvæntra, sem
upp á var boðið en á undan-
förnum árum hefur meira fjör
færst í leikinn enda hefur degi
þessum verið gefið nafnið Fjör-
dagur. Alls búa 132 í hreppnum
lék á 889 höggum, B-sveitin frá
þeim Grafarhyltingum kom næst
með 905 högg, þá A-sveit Golf-
klúbbs Suðurnesja með 917 högg,
síðan A-sveit Golfklúbbs Vest-
mannaeyja á 928 höggum, B-sveit
GS á 930 og sveit Nesklúbbsins á
932 höggum.
Leynismenn höfnuðu sem fyrr
greindi í 7. sæti og léku á 942
höggum. Sannarlega mjög vel
viðunandi árangur hjá okkar
mönnum, sem ekki hafa verið
með í þessari keppni í háa herr-
ans tíð. Skutu kylfingar héðan af
Skaga mönnum bæði frá Golf-
klúbbnum Keili og Golfklúbbi
Akureyrar ref fyrir rass. B-sveit
Eyjamanna, svo og Golfklúbbur
Grindavíkur og Borgarness urður
einnig fyrir neðan Leynismenn.
Borgnesingar léku á 1100 högg-
um.
Ómar Örn Ragnarsson lék best
Leynismanna. Varð hann á með-
al allra fremstu manna á 303
höggum samtals (76-76-77-74).
Hannes Þorsteinsson lék á 319
höggum, Guðmundur Valdimars-
son á 325 og Gunnar Júlíusson á
og lætur nærri að rúmur helm-
ingur þeirra hafi verið saman
kominn í blíðviðrinu þegar Fjör-
dagurinn fór fram. Var veðrið
reyndar svo gott, að sumir sáu sér
ófært að yfirgefa heyskapinn.
Sem að framan greinir báru
kvæntir sigurorð af ókvæntum í
knattspyrnunni, 4:3. Var öllu
færra um mörk nú en í fyrra þegar
lokatölur urðu 8:7. Kvæntir hafa
alltaf unnið en oft hefur verið
mjótt á mununum. Þeir æfðu þó
ekkert í ár til þess að gefa hinum
aukið tækifæri — en allt kom fyrir
ekki.
Eftir að keppni lauk var efnt til
kaffidrykkju og verðlaun afhent.
Var glatt á hjalla eins og endra-
nær þegar Innnesmenn koma sam-
an. Sagði Anton menn ekki kippa
sér upp við það eftir á þótt
harðsperrur gerðu vart við sig og
það í ríkum mæli — þetta væri
aðeins einu sinni á ári og alltaf
jafn gaman.
333. Árangur þriggja bestu taldi
á hverjum 18 holum.
Skagablaðið óskar Leynis-
mönnum til hamingju með góðan
árangur og nú er bara að vinna 2.
deildina að ári!
Eins og Skagablaðið hsfur
skýrt frá tók Sementsverksmiðja
ríkisins í notkun ný rykhreinsi-
tæki fyrir nokkru. Tæki þessi,
sem eru frá F.L. Smidt í Kaup-
mannahöfn, eru mjög fullkomin
af allri gerði og hreinsa rykið allt
að 99,9%.
Þessi nýju hreinsitæki eru af
svonefndri rafsíugerð. Ábyrgjast
framleiðendur að þau hreinsi ryk-
ið allt niður að 150 mg í út-
blásnum loftrúmmetra. Rafsíurn-
ar vinna þannig, að upp er raðað
samsíða rafskautaplötum og á
rafskautin sett há spenna, um
70.000 volt. Við það myndast
sterkt rafsvið á milli skautanna,
sem veldur því að rykkornin
festast við plöturnar. Með sér-
stökum ásláttarbúnaði eru ryk-
kornin hrist af plötunum niður í
flutningsbúnað neðst í Ihreinsi-
búnaðinum, sem flytur rykið út úr
honum.
í fréttatilkynningu frá SR segir,
að búnaðurinn hafi reynst vel, þar
sem fer saman ryk og vatnsgufa.
SR mun eina verksmiðjan hér-
lendis, sem notar þennan búnað.
Þessi nýi hreinsibúnaður getur
annað um 30% meiri afköstum en
framleiðsla sementsofnsins nem-
ur nú.
Gömlu rykhreinsitækin, sem
einnig eru frá sama fyrirtæki, eru
enn fyrir hendi og höfð til vara.
Má þá grípa til þeirra ef eitthvað
fer úrskeiðis í hinum nýju.
Gömlu tækin eru miðuð við að
hreinsa allt niður í 500 mg ryks í
rúmmetra.
Nýi hreinsibúnaðurinn er afar
fyrirferðarmikill. Er grunnflötur
hans 15x7 metrar og hæðin 18
metrar. Heildarkostnaður við
hann nemur 25 milljónum króna,
framreiknað á núverandi verð-
lagi.
Nýja rykhreinsivirkið.
Þriðja deildin í handboltanum:
Fyrsti leikur*
inn gegn Ögra
Fyrsti leikur meistaraflokks
karla í 3. deildinni í handbolta
verður þann 13. október nk. og
verður þá leikið gegn Ögra.
Keppnin í 3. deild verður
með dálítið öðru sniði nú en
undanfarin ár. Þar sem þátt-
tökuliðin eru nú 12 talsins var
ákveðið að skipta þeim í 2 riðla.
Akranes leikur í riðli með Aft-
ureldingu, Reyni Sandgerði,
Njarðvík ÍK og Ögra.
Þá er þegar ljóst, að 4 „turn-
eringar" í yngri flokknum fara
fram á Akranesi í vetur — allar
í nóvember. Senn styttist því
óðum í að handknattleiksver-
tíðin komist á fullt skrið.
* H|
Hart var barist ( knattspymunni. Okvœntir biðu enn lægri hlut.
Kylfingar úr Leyni
komu mjög á óvart
- höfhuðu í 7. sæti og skutu Hafnfirðingum og Akureyringum ref fyrir rass
MIKIÐ URVALBILA
— ýmis kjör og skipti
BÍLÁS, ÞJÓÐBRAUT 1, sími 2622
bilcS
7