Skagablaðið - 12.04.1985, Side 3
„Aðkallandi
aðeflafélags
lega starfið“
— segir Magnús Oddsson, hinn nýi
formaður ÍA, í viðtali við Skagablaðið
Magnús Oddsson, hinn nýi formaður 1A.
Formannsskipti voru nýlega
hjá Iþróttabandalagi Akraness,
í stað Andrésar Ólafssonar var
kosinn Magnús Oddsson. Þessi
skipti fórn mjög hljóðlega
fram, en Skagablaðið heilsaði
upp á nýja formanninn.
Magnús sagðist hafa verið
kosinn í framkvæmdastjórn
ásamt þeim Skúla Garðarssyni,
gjaldkera, og Gísla Gíslasyni
ritara, á framhaldsþingi íþrótta-
bandalagsins um miðjan jan-
úar, áður hafði hann verið ritari
í stjóm IA.
Aðspurður um hvort hann
mundi beita sér fyrir einhverj-
um breytingum hjá ÍA sagði
Magnús að mjög aðkallandi
væri að endurskoða og efla
félagslega starfsemi bandalags-
ins. Miklar umræður hefðu orð-
ið um það mál á síðasta banda-
lagsþingi og ljóst að úrbóta er
þörf. „Við erum svo heppnir að
ritari bandalagsstjórnarinnar er
lögfræðingur og þessi endur-
skoðun hvílir mikið á herðum
hans,“ sagði Magnús og bætti
við: „Því miður er það að verða
æ algengara í íþróttastarfseminni
að reynt sé að finna formgalla á
félagslegri aðild einhvers leik-
manns, senda inn kærur og
reyna að fá lið dæmd úr leik eða
leik tapaðan. Slíku verður að
sjálfsögðu að verjast eftir föng-
um.“
Nú snérum við talinu að öðru
og Magnús fór að segja frá
íþróttahúsinu, sem ÍA ætlar að
byggja norðanvert við nýju
sundlaugina. Stefnt er að því að
ganga frá sökklum í sumar og
verður leitað eftir sjálfboðalið-
um til að vinna að því verkefni.
Byggingin verður mjög ódýr
en jafnframt hentug til alhliða
íþróttaiðkana. Taldi Magnús
að kostnaður við hana yrði
u.þ.b. helmingur af kostnaði
við hús af hefðbundinni gerð
(steyptu). Húsið er límtréshús
með skemmusniði og verður
notað til æfinga fyrir allar inn-
anhússíþróttir. Lofthæð er það
mikil að þar geta keppnir farið
fram t.d. í handbolta, en öllum
stærri mótum verður beint í
íþróttahúsið við Vesturgötu
vegna hins stóra áhorfenda-
svæðis sem þar er.
Magnús kvað það mjög brýnt
að fá þetta nýja hús í notkun.
íþróttahúsið við Vesturgötu
annaði engan veginn þörfum
íþróttahreyfingarinnar, til
dæmis fengju knattspyrnuliðin
eingöngu æfingatíma í húsinu
um helgar, en vegna móta og
kappleikja er algengt að æf-
ingar falli niður einmitt um
helgar. Oft kemur því fyrir að
hálfur mánuður eða þrjár vikur
líði á milli æfinga. Erfitt er að
halda uppi áhuga og ná árangri
við slíkar aðstæður.
Æfingatími allra liða væri
skorinn niður en engu að síður
væri húsið nýtt til klukkan að
ganga tólf á hverju kvöldi, en
slíkir kvöldtímar eru mjög
óhentugir, vegna unglinganna
sem flestir eiga að mæta í
skólann klukkan átta á morgn-
ana.
Að lokum sagði Magnús að
besta ráðið til að hamla á móti
svokölluðum unglingavanda-
málum væri að virkja ungling-
ana til hollra og áhugaverðra
verkefna. Á því sviði hefði
íþróttahreyfingin unnið stór-
virki. Nú á ári æskunnar yrði
ráðist í það stórvirki að byggja
félags- og íþróttaheimili ÍA, við
það verkefiii þyrftu hinir eldri
að rétta æskunni hjálparhönd.
KJOKBOK
LANDSBANKANS
TENGD VERÐTRYGGINGU
ÖRUGG BÓK* ENGIN BINDING
HÁIR VEXTIR FRÁ.ÞVÍ AÐ LAGT ER INN
Með l^ödÆmiíeggurþú
LANDSBANKINN
Græddur er i’eymdur eyrir
1Una
KIRKJUBRAUT 4.
AKRANESI.
SÍMI 93-2244.
Fermirajar-
qjafimar!
3