Skagablaðið - 19.06.1985, Blaðsíða 7
17. júní á Akranesi -17. júní á Akranesi -17. júní á Akranesi 17. júní á Akranesi -17. júní á Akranesi -17. júní á Akranesi 17. júní á Akranesi -17. júní á Akranesi -17. júní á Akranesi 17. júní á Akranesi -17. júní á Ak
Talið er að um 1100 manns hafi sótt skemmtunina um kvöldið.
Þjóðhátíðarnefnd gaf sér tíma fyrir eina mynd. Standandi f.v.
Guðni Halldórsson, Þorleifur Sigurðsson og GunnarJón Sigurjónss.
Fyrir framan þá er svo Pálína Dúadóttir, formaður nefndarinnar.
Tískusýningarfólk sýndi flest það nyjasta í tískunni í dag í
íþróttahúsinu um kvöldið.
Gömlu dansarmr voru sttgmr aj miklum móð í Rein um kvöldið.
Hæ, hó,
jibbí jei
Hátíðarhöldin í tilefni 17. júní voru haldin hér á Akranesi með nokkuð
hefðbundnum hætti. Segja má þó að unga kynslóðin hafi tekið örlítið forskot á
sæluna með því að vera með hæfileikakeppni og furðufataball í Amardal
deginum áður.
Á sjálfan 17. júní hófst dagskráin með fánahyllingu skáta á Akratorgi og var
fámennt en góðmennt við þá athöfn. Síðar um morguninn var svo kvikmynda-
sýning fyrir þá yngri við miklar vinsældir. Dagskráin hófst síðan eftir hádegi
með hátíðarmessu í Akraneskirkju. Kl. 14 var hátíðin svo formlega sett. Til
stóð að sú athöfn færi fram á Akratorgi en vegna veðurs þá var hún flutt inn í
íbróttahúsið. Þar fluttu Pálína Dúadóttir, formaður þjóðhátíðarnefndar, Þórir
Ólafsson, skólameistari Fjölbrautarskólans, að ógleymdri fjallkonunni ávörp.
Þess á milli söng kirkjukórinn og Lúðrasveit Akraness spilaði nokkur lög. Síðan
stóð til að farið yrði í skrúðgöngu upp á íþróttavöll, en þeirri dagskrá var aflýst.
Um kvöldið var svo fjölbreytt dagskrá í íþróttahúsinu og þá eingöngu flutt af
íbúum þessa bæjarfélags. Flutt var ávarp nýstúdents og það gerði Guðrún
Þorsteinsdóttir, Viktor Guðlaugsson söng nokkur lög, sýnd voru föt, atriði frá
hæfileikakeppninni frá því deginum áður voru sýnd og veitt verðlaun fyrir þau
og eins voru veitt verðlaun fyrir bestu búningana á furðufataballinu. Leikhópur
frá Fjölbrautaskólanum flutti skemmtiatriði, því næst spilaði hljómsveitin Fídus
og loks hélt hljómsveitin Tíbrá uppi fjörinu fram eftir nóttu.
Á meðan dansinn dunaði í íþróttahúsinu, þá voru gömlu dansarnir stignir í
Rein við undirleik hljómsveitar og virtist fólk þar ekki skemmta sér síður en í
íþróttahúsinu.
Ungar blómarósir hlusta með
andakt á það sem fram fer.
Ýmsir skrautlegir
búningar sáust á
furðufataballinu
í Arnardal.
Þarna má sjá
örlítið sýnishorn.
Hva... eru ekki
allir í þjóðhátíðar-
skapi?
17. júní án fjallkonu er nánast
óhugsandi. í ár sá Guðfinna Rún-
arsdóttir um það hlutverk.
6
7