Skagablaðið - 12.03.1986, Qupperneq 9
„Tel gmndvöll fyrir ann-
arri snyrtistofu í bænum
-segir Brynhildur Bjömsdóttir sem opnað hefur snyrtistofu að Kirkjubraut 9
Opnuð hefur verið ný snyrti-
stofa á Akranesi, að Kirkjubraut
9. Eigandi er Brynhildur Björns-
dóttir, snyrtifræðingur. í spjalli
við Skagablaðið sagði Brynhildur,
að hún teldi að grundvöllur væri
*‘yrir annarri snyrtistofu í bænum,
en Lilja Högnadóttir hefur rekið
þá einu til þessa.
Hún sagðist vera með alla
almenna snyrtingu sem og ráðgjöf
1 yali á snyrtivörum en sjálf sagðist
hún ekki vera með snyrtivörur til
sölu, a.m.k. ekki til að byrja með.
Hún vildi sjá fyrst hvernig til
tækist áður en hún færi út í slíkt.
Brynhildur sagði að stofan væri
ætluð fyrir alla, það er bæði karla
°g konur og allir aldurshópar
væru velkomnir. Brynhildur verð-
ur með vörur frá Monteil í vinnu
sinni. Hún verður með opið frá
hádegi og fram eftir degi, en
vinnutíminn ræðst af eftirspurn
frá viðskiptavinum en pantanir
eru teknar á stofunni eða í síma
3102. Brynhildur er lærður snyrti-
fræðingur og útskrifaðist í júní
1985.
Við óskum Brynhildi til ham-
lngju með nýju stofuna og góðs
8engis í framtíðinni.
Brynhildur á nýju snyrtistofunni að Kirkjubraut 9.
Slæmt gengi innanhúss
Þeim gekk ekki of vel stúlkunum okkar í 2. og 3. flokki í
Islandsmótinu í innanhúss knattspyrnu, sem haldið var hér um
síðustu helgi. Lentu 3. flokksstúlkurnar í 3ja sæti en 2.
flokksstúlkurnar urðu í neðsta sæti í sínum riðii.
Breiðablik varð íslandsmeistari í 2. flokki en Keflvíkingar urðu
íslandsmeistarar í 3. flokki. Þetta er f þriðja sinn sem mótið er
haldið hér á Akranesi.
AKURNESINGAR
Munið tónleika Tónlistarfélagins í Safnaðarheimiíinu
sunnudaginn 16. mars næstkomandi kl. 15.45. Flytjandi
er Strengjakvartett Tónlistarskólans í Reykjavík.
Fyrir fermingaraar
* Seljum út heita og kalda rétti, Kalt borð,
kabarettborð og snittur.
* Veisluráðgjafi okkar er til viðtals alla virka
daga frá kl. 11-15 í síma 2020.
*Leitið upplýsinga — gerið verðsamanburð -
geymið auglýsinguna.
Bárugötu 15, sími 2020
aöeins
einn banki
býöur
REIKNING
^ Samvinnubankinn Akranesi,
Kirkjubraut 28, sími 2700
9