Skagablaðið - 24.09.1986, Side 5
Leiðari
Sú bylting sem viröistframundan í fjöl-
miðlum, og þá einkum á sviöi útvarps- og
sjónvarps, hefur tæpast fariö framhjá
nokkrum þeim manni sem á annað borö
fylgist með fjölmiðlun. Fyrsta útvarps-
stööin í eigu einkaaðila hóf rekstur sinn
fyrir nokkrum vikum og óöum styttist í
útsendingar fyrstu sjónvarpsstöðvarinn-
ar í eigu einkaaðila. I ofanálag er ör þró-
un í mótttöku sjónvarpsefnis erlendis frá
með hjálp gervihnatta.
Á skömmum tíma hefur fjölbreytnin
aukist mikið í þessum, efnum og á enn
eftir að aukast. Hins vegar virðist sem
framförunum sé einkum og sér í lagi ætl-
að að koma íbúum Stór-Reykjavíkur-
svæðisinstil góða. Bylgjan, nýjaeinkaút-
varpsstöðin, þjónart.d. aðeins Reykjavík
og næstu byggðalögum þótt útsendingar
hennar heyrist kannski eitthvað víðar og
Stöð 2, nýja sjónvarpsstöðin, herjar á
sama markað.
„Lánsamir“
Akumesingar eru svo „lánsamir“ að
geta notið þessara nýjunga íslenska fjöl-
miðlaheimsins. En hvort bæjarbúar reiða
fram 12.000 krónur til þess að kauþa „af-
ruglara" og eru reiðubúnir að greiða
1.000 krónur á mánuði í afnotagjald að
auki hjá Stöð 2 er svo önnur saga. Víst er
að undirritaður á fullt í fangi með að fylgj-
ast með dagskrá íslenska sjónvarpsins
þótt ekki bætist önnur rás við. Séu íslend-
ingar sjálfum sér samkvæmir má telja
fullvíst að „afruglararnir" renni út eins og
heitar lummur. Tólf þúsund er kannski
ekki há upphæð, a.m.k. ekki fyrir þjóð
sem lætur sig ekki muna um að snara á
borðið 70-80 þúsundum fyrir þílasíma til
þess eins að geta hringt í kunningjana á
meðan beðið er á rauðu Ijósi.
Þjónustuleysi
Þrátt fyrir aukna fjölbreytni í úrvarpi
hefur þjónusta við okkur Skagamenn lítið
batnað í eiginlegum skilningi ef undan er
skilinn þáttur Svæðisútvarps Reykjavík-
urog nágrennis. Rás 1 sinnir Akranesi illa
svo ekki sé meira sagt og má þar eflaust
kenna um slakri frammistöðu fréttaritara
hennar í bland við annað. Sjónvarpið
sinnir Akranesi sömuleiðis takmarkað og
má eflaust skrifa það að hluta á útsend-
ara þess hér I bæ. Svipað er uppi á ten-
ingnum hjá Rás 2 og Bylgjunni. Og Akra-
nes er ekkert einsdæmi. Minni byggðalög
úti á landi verða ætíð útundan í fréttaum-
fjöllun nema þar séu fyrir þeim mun ötulli
fréttaritarar.
„Útvarp Akranes“
Þegar umræðan um hina yfirvofandi
fjölmiðlabyltingu stóð sem hæst í fyrra
ruku menn upp til handa og fóta og
skráðu firmanöfn. „Útvarp Reykjavík",
sem verið hefur kallmerki Ríkisútvarps-
ins i yfir 50 ár, var skyndilega komið í
eigu einkaaðila og hér á Akranesi tóku
menn sig til og skráðu firmaheitið „Útvarp
Akranes“. Að sjálfsögðu kviknaði sú von
í brjósti að þeir sem að skráningu nafns-
ins stóðu færu e.t.v. út í útvarpsrekstur
hér á Skaga en frá tíma skráningarinnar
hefur hvorki heyrst hósti né stuna. Rekst-
ur útvarpsstöðvar á Akranesi væri enda
óhugsandi nema ef til kæmu afnotagjöld
sem bæjarbúar greiddu t.d. með útsvar-
inu. Rekstur útvarpsstöðvar, sem byggði
afkomu sína á auglýsingum einvörð-
ungu, væri óhugsandi. Jafnvel þótt ekki
væri útvarpað nema í 2 tíma á dag. Á
meðan svo er verða Akurnesingar og
reyndar margir fleiri að láta sér nægja að
vera aðeins annars flokks fréttaefni í rík-
isfjölmiðlunum.
Sigurður Sverrisson
Guðríður Jónsdóttir, þekktari sem Dúa í Garðba, í spjalli við Skagablaðið;
„Verð alltaf islendingur“
Fvrir um 40 árum fluttu nokkrar ungar stúlkur héðan frá Akranesi til
Bandaríkjanna eftir að hafa kynnst þarlendum hermönnum á meðan
dvöl þeirra stóð hér á íslandi í síðari heimstyrjöldinni. Allar giftust þær
hamingjusamlega og hafa síöan alið manninn vestra. Ein úr þessum
hópi er Guðríður Jónsdóttir, mun betur þekkt sem Dúa í Garðbæ.
Hún hefur undanfarið dvalið hér á Akranesi eftir að hafa unnið farseðil
til gamla landsins á Þorrablóti íslendingafélagsins í Kansas City. Skaga-
blaðið hitti hana að máli á mánudaginn og við spurðum hana fyrst að
því hve oft hún hefði komið hingað heim frá því hún flutti fyrst út.
Dúa í Garðbœ á heimili systur hennar á Vesturgötunni.
I níunda sinn
„Þetta er í níunda skipti sem ég
kcm heim á þeim rúmlega 40
árum, sem ég hef búið ytra. Eg
hélt til Bandaríkjanna þann 19.
ágúst 1945 í fyrsta skipti en það
liðu sex ár þangað til ég kom aftur
til Islands."
— Þú hefur á getað fylgst vel
með þeirri breytingu sem orðið
hefur á bænum?
„Já, ég hef séð þær hægt og bít-
andi þannig að þótt yfir 40 ár séu
liðin frá því ég fór héðan fyrst er
nú fátt sem kemur mér reglulega á
óvart. Utlendingum, sem ég
þekki, finnst hins vegar mikið til
koma um hvað allt er hreint hérna
og þá ekki bara loftið og vatnið.1-
Býr í Missouri
— Hvar hefurðu búið vestra?
„Nánast alla mína tíð í borginni
Independence rétt fyrir utan
Kansas City í Missouri-ríki.
Framan af búskapnum okkar
bjuggum við í fremur litlu húsi en
Vetrarstarf Björgunarsveitarinnar Hjálparinnar að komast á fulla ferð:
Efnt til opins kynningarfundar
og nýir félagar verða teknir inn
Vetrarstarf björgunarsveitarinnar Hjálparinnar er að hefjast þessa
dagana. Síðast liðinn sunnudag var sveitin með æfingu í sigi í Akraflalli
og fór Skagablaðið á staðinn til að forvitnast um hvernig svona æfing
gengur fyrir sig. Þegar upp var komið var fyrir líflegur hópur frá Hjálp-
inni og var andinn yfir hópnum góður. Vakti það athygli, að þrátt fyrir
léttleikann var fyllsta öryggis gætt í hvívetna.
Æfingin var í því fólgin að sótt-
ur var „slasaður“ maður niður í
fjallshlíð og hann fluttur í körfu í
sjúkrabíl. Þá æfðu félagar sveitar-
innar sig í að síga og sumir voru að
síga í fyrsta skipti en allt gekk vel.
Eftir æfinguna tókum við Þór
Magnússon formann Hjálparinn-
ar tali og spurðum hvað væri fram-
undan hjá sveitinni.
Opinn fundur
Hann sagði að nú færi vetrar-
starfið af stað og liður í því væri að
haldinn yrði kynningarfundur,
þar sem starfsemi sveitarinnar
yrði kynnt og nýir félagar teknir
inn.
Þór sagði að fundurinn væri öll-
um opinn og það sem Hjálpin væri
að gera væri að fá inn mannskap,
sem vildu vera virkir félagar, en
að sjálfsögðu væru aðrir félagar
teknir inn (þ.e. félagar, sem ekki
eru í fremstu víglínu en styðja
sveitina á annan hátt). Þór sagði
að sveitin væri opin fyrir bæði
kynin, aldurstakmark væri að öllu
jöfnu 17 ár.
Ferskir að hausti
Aðspurður sagði Þór, að yfir
sumartímann væri frekar rólegt
hjá sveitinni og menn hvíldinni
fegnir og kæmu því ferskir til
starfa í vetrarstarfið. í sveitinni
eru um 25 félagar, þar af 15 sem
eru mjög virkir. Sveitin er mjög
vel búin fyrir sig og björgun slas-
aðra úr fjöllum og erfiðum að-
stæðum. Þá á sveitin mjög góðan
bíl ásamt öðrum búnaði og er allt-
af stefnt að því að endurnýja bún-
aðinn eftir því sem hann gengur úr
sér og ný tæki koma á markað.
Varðandi fundinn, sem haldinn
verður á morgun, fimmtudag kl.
20, verða þar þeir félgar sem eru
virkir og munu þeir vera með
ýmiss konar búnað sem sveitin á
og sýna hann og svara fyrirspurn-
um. Þá verða sýndar litskyggnur
frá starfseminni í gegnum tíðina
og erindi um starfið verða flutt.
Eins og áður hefur komið fram þá
er fundurinn opinn öllum karl-
mönnum og kvenmönnum sem
áhuga hafa á að taka þátt í björg-
un mannslífa og una útivist og
góðum félagsskap. Erþettakjörið
tækifæri fyrir þá sem vilja taka
þátt í starfseminni að láta í sér
heyra og mæta á fundinn og láta
skrá sig.
Húsið of lítið
Þór var spurður hvaða verkefni
væru stærstu verkefnin hjá sveit-
inni. Hann sagði að húsmálin hjá
sveitinni væru það sem yrði að
fara að huga að , húsið væri að
verða allt of lítið fyrir starfsemina.
Þá sagði Þór að brýnt væri orðið
að fá annan bát og þá stærri en
þann sem væri fyrir. Þá væri alltaf
verið að vinna að því að fá tæki og
búnað til hinna ýmsu verkefna
sveitarinnar.
Það er greinilegt, að nóg er að
gera hjá þeim Hjálparmönnum og
vafalítið væru not fyrir fleiri ein-
staklinga, sem myndu vilja starfa í
sveitinni. Þór sagði að fundir væru
haldnir hálfsmánaðarlega og
æfingar væru ekki sjaldnar en einu
sinni í mánuði, en yfirleitt oftar.
síðar byggðum við stærra hús og
fluttum inn í það 1960. Þar kom
sér vel að maðurinn minn var
trésmiður því hann gerði nánast
allt sjálfur."
— Hvernig gekk þér að komast
í snertingu við lífið í bænum fyrst
eftir að þú fluttir út, varstu ekkert
einmana?
„Jú, auðvitað langaði mig alltaf
heim annað slagið því ég er ákaf-
lega mikill íslendingur og þá ekki
síður Akurnesingur í mér. Sér-
staklega saknaði ég sjávarins og
fjallsins fallega við bæinn okkar.
Þar sem við búum núna er hæðótt
landslag og mikill trjágróður
þannig að útsýnið er ekkert sam-
bærilegt. Ég komst fljótt í sam-
band við nágranna í gegnum for-
eldrafélag skólans sem dóttir okk-
ar gekk í og eins kynntist ég
mörgu góðu fólki í gegnum safn-
aðarstarf kirkjusnar okkar.“
Stöðugra veðurfar
— Svo maður spyrji eins og
dæmigerður íslendingur, hvernig
viðrar þarna hjá ykkur?
„Veðrið er miklu stöðugra en
hér að öllu jöfnu en veðrabrigðin
geta samt verið ótrúlega snögg.
Jafnvel enn örari en hér heima.
Og sem betur fer eru fellibyljir og
hvirfilvindar nokkuð sem íslend-
ingar eru lausir við. Mágkona mín
lenti í því einu sinni að húsið
hennar ásamt öllu innbúi sogaðist
eitthvað upp í loftið og sást ekki
meir. Fjölskyldan náði að komast
niður í kjallara áður en sveipurinn
gekk yfir og það varð henni til
bjargar."
— Er margt um íslendinga á
þínum slóðum?
„Nei, það er kannski ekki fjöl-
mennt en þó eru þarna 20-25
íslendingar í eða við Kansas City
og nágrannabyggðum. Annars
vissi ég ekki annað en að ég væri
einasti íslendingurinn þarna um
slóðir allt fram til 1951. Þá gerði
mikil flóð, en sem betur fer
sluppum við frá þeim án skakka-
falla. Hins vegar vareinhvergerð-
ur út af örkinni til að kanna hvort
allir Islendingarnir á þessum slóð-
um væru ekki lifandi og ég vissi
ekki neitt fyrr en ég heyrði kallað:
„Dúa, eru lifandi?" Þá var þetta
íslendingur að kanna ástandið hjá
löndum sínum. Ég man að Morg-
unblaðið sagði frá þessu 1951, að
allir íslendingarnir hefðu lifað
flóðin af í Missouri. Þau urðu hins
vegar til þess að ég komst í kynni
við aðra landa.“
— Þú hefur ekki hugsað þér að
snúa hingað aftur og eyða efri
árunum í gamla bænum?
„Jú, þeirri hugsun hefur oft
skotið niður í kollinn á mér og
lengi vel ól ég þann draum með
mér að við gætum flutt hingað
þegar maðurinn minn væri kom-
inn á eftirlaun. Þeim áfanga er
reyndar náð en hann fékk hjarta-
áfall fyrir nokkrum árum og sá
atburður breytti öllum hugsanleg-
um áformum í þá veruna. En þótt
ég flytji ekki aftur heim alkomin
verð ég aldrei annað en Islending-
ur og Akurnesingur í mér,“ sagði
Dúaaðlokum. —SSv.
Björgun sjúklings æfð í Akrafjalli.
I hreinskilni sagt:
Dettur stundum í hug
að maður sé að berja
Villta vestrið augum
Manni dettur stundum í hug
þegar farið er í hjólreiðatúr eða
bara göngutúr niður í bæ á laug-
ardags- eða sunnudagsmorgn-
um að maður sé að berja Villta
vestrið augum. Og að kúrekarn-
ir hafi aldeilis tekið trylling í
rúðubrotum og öðru þá helgina.
Nei, þetta er einfaldlega
afrakstur skemmtana helgar-
innar og þá sérstaklega þegar
gott er veður. Þá virðist þessi
einkennilega árátta ríkja að
hreinlega mála bæinn rauðan!.
Og viti menn, þetta eru bara við
í litla bænum okkar og kannski
þá mest unglingarnir. En mér
segir svo hugur um að alltaf sé
gottað segja: Unglingarnir voru
að skemmta sér. En innan um
slæðast nú oft þeir sem komnir
eru af unglingsárunum. Já, það
er sannarlega nóg að gera hjá
þeim sem vinna við það hjá
bænum að hreinsa þessa
morgna.
Sjáum ekki bjálkann
Það er svolítið kátbroslegt að
heyra þessa setningu á hverju
hausti núorðið: „Það er alltaf
allt vitlaust þegar þessi utanbæj-
arlýður er kominn í bæinn,
skólafólkið." Er þetta ekki eitt-
hvað sjálfbirgingslegt og púka-
legt? Væri ekki hálfleiðinlegt ef
enginn vildi koma hingað í bæ-
inn og vera. Kannski flæmum
við að endingu alla í burtu með
svona umtali. Mér finnst nefni-
lega, að við séum farin að not-
færa okkur þetta og hreinlega
gerum íþvíað alltverði vitlaust,
sérstaklega þessa umræddu
fyrstu helgi í september. Við
getum alveg gert allt vitlaust í
bænum og brotið og bramlað.
Við þurfum ekkert utanbæjar-
fólk til að skýla okkur á bak við,
ekki satt? Hreinsum þennan
orðróm af fólkinu sem vill vera
hjá okkur í bænum.
Lögreglan
Hvaða mynd vill lögreglan
gefa af sér með því að segja, að
ef hún sjáist í svona bæjarupp-
þoti þá verði hreinlega allt vit-
laust. Ég spyr bara: Hvernig á
að skilja þetta? Það er óneitan-
lega skrýtið að heyra yfirlög-
regluþjón segja þetta. Mér
finnst þctta leiðinlcgt fyrir lög-
regluna að fólkið skuli bregðast
svona við. Svo þegar þeir segja
að það sé best að koma hvergi
nærri þá er kjörið fyrir þá sem
vilja vera með læti að lesa þetta
í bæjarblaði að nýta sér næstu
helgi í eitthvað fjör, brot og
braml því löggan ætlar að vera
inni hjá sér. Getur löggan ekki
tekið þetta til athugunar?
Hreinskilin.
Umdeildir flutningar
Þá er búið að flytja einhverjar umdeildustu kennslustofur í sögu bæjarins, af lóð Fjölbrautaskólans
yfir álóð Grundaskóla, þarsem þær munustanda, a.m.k. ívetur. Upphaflega varmikil andstaða kennara
í Grundaskóla við þessar stofur en er leið að hausti var sýnt að ekki var önnur haldbetri lausn — nema
með því að prenta peningaseðla — og var því fallist á hana. Myndin var tekin þegar verið var að flytja
stofurnar.
Smáauglýsingamar
Til sölu Philco tauþurrkari.
Tekur 5 kíló. Uppl. í síma
2449.
Tveir eldhressir 14 ára
strákar á Skaganum taka að
sér skemmtiatriði á samkom-
um, árshátíðum og fleiru.
Skemmtum með léttu gríni
og trúbadortónlist. Uppl. í
síma 1824 á milli kl. 20 og 21.
Er með 5 mánaða skosk/
íslenskan hvolp sem ég vil
gjarnan gefa upp í sveit.
Uppl. í síma 2539 eftir
hádegi.
Til sölu vel með farin barna-
kerra og baðborð. Á sama
stað er óskað eftir fiskabúri
með öllu. Uppl. í síma 1910.
Eldri hjón vantar íbúð áeinni
næðtil leigu. 100% reglu-
semi heitið.
Uppl. í síma 99-8356.
Ung stúlka óskar eftir vinnu
hálfan daginn. Einnig á sama
stað til sölu barnavagn. Uppl.
i síma 2967.
Til sölu Amstrad tölva, 64 k,
CPC-464 m/litaskjá og inn-
byggðu segulbandi. Uppl. í
síma 1097 eftir kl. 19.
Til sölu síður símunstraður
stórris; 2 lengjur 250x250 sm
og 2 lengjur 320x250 sm.
Gott verð. Einnig til sölu þykk-
ar sofugardínur, 8 lengjur,
115x250 sm. Hlægilegt verð.
Uppl. í síma 1530 á kvöldin.
Óska eftir að kaupa notaða
2-400 lítra frystikistu. Uppl. í
síma 2977.
Til sölu vel með farinn Silver
Cross barnavagn og leik-
grind. Uppl. í síma 1891.
Til sölu Sharp MZ 700 tölva
með litprentara. Uppl. í síma
2608.
FLUTNINGAR
Tilboö óskast til flutninga á um það bil 760 tonnum af áfengi
og tóbaki frá Reykjavík til útsölustaða ÁTVR á Akranesi, Akur-
eyri og Sauðárkróki. Gert er ráð fyrir vikulegum ferðum.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og tilboð verða opnuð
á sama stað í viðurvist viðstaddra bjóðenda kl. 11.00 f.h. 3.
október nk.
Óska eftir að kaupa stóra vel
með farna barnakerru. Uppl.
í síma 1249.
INNKAUMSTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7 SiMi 26íJ^4 PQSTHOLF '441 TEL£X 2006
'V0RUH AÐ TAKA UPP.„
...peysur og boli á dömur og herra * Vinsælu Bonanza-buxurnar;
komnar aftur ★ dömu-og herrasnið, gott verð * Tvískiptir gailar á börn^
í stærðunum 2-6 jf Einnig ódýrirjogging-gallar, verð aðeins kr. 680,-
Verslunin
Schiesserílv
MERKIR GÆÐI
Kirkjubraut 2, s. 1504
4
5