Skagablaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 5
Skagablaðið
Skaaablaðið
Dauft hefur verið yfir atvinnumál-
um á Akranesi um langa hríð. Sam-
drátturinn sem hófst fyrir nokkrum
árum hefur enn ekki linað tak sitt
þrátt fyrir væntingar þar að lútandi.
Eitt af rótgrónari fyrirtækjum bæjar-
ins, Akraprjón, hefur verið úrskurað
gjaldþrota og var innsiglað í vikunni
eftir vonlitla baráttu við brostinn
rekstrargrundvöll síðustu árin. Akra-
prjón er því fjórða fyrirtækið á Akra-
nesi sem tekið hefur verið til gjald-
þrotaskipta á árinu.
Eitt fyrirtækjanna, sem orðið hafði
gjaldþrota, Fiskiðjan Arctic, kann að
hefja rekstur á ný innan tíðar. Fyrir-
tækið var slegið Landsbankanum á
uppboði ekki alls fyrir löngu. Nokkrir
einstaklingar eru þessa dagana að
kanna möguleikana á því að reisa
fyrirtækið úr rústum. Óskandi væri að
það tækist því þau eru mörg störfin
sem farið hafa forgörðum síðustu
misseri.
Lítið hefur heyrst að undanförnu
um fyrirhugð göng undir Hval-
fjörð, sem margir binda vonir við.
Stefnt er þó að því að leggja frum-
varp til laga um gerð ganganna fyrir
Alþingi þegar það kemur saman í
byrjun næsta mánaðar.
Flestir eru sammála um að göngin
yrðu Akranesi mikil lyftistöng. At-
vinnulífið í bænum hefur ekki reynst
vera nægilega fjölbreytt til þess að
fólk með framhaldsmenntun hafi get-
að fengið hér vinnu. Með göngum
yrði fólki, sem flust hefur héðan
vegna þess að það fékk ekki vinnu
við sitt hæfi, gefinn kostur á búsetu
hér þótt það starfaði á höfuðborgar-
svæðinu. Akstur til Reykjavíkur tæki
30 - 40 mínútur eftir að göngin yrðu
komin í gagnið og fæstir myndu setja
þá fjarlægð fyrir sig til þess að stunda
vinnu sína. Erlendis þykir ekki til-
tökumál að ferðast í klukkustund til
og frá vinnustað.
Þeir eru líka til sem telja að göngin
muni lama allan hugsanlegan vöxt í
atvinnulífinu á Akranesi og draga
stórlega úr verslun. Hæpið er að at-
vinnulífið beri meiri skaða af göngun-
um en þegar er orðið. Hugsanlegt
kann að vera mögulegt að eitthvað
drægi úr versiun. Undirritaður telur
þó litla hættu á því á meðan verslanir
og þjónustufyrirtæki á Akranesi
rækja hlutverk sitt af sömu kostgæfni
og verið hefur. Matarverð er óvíða
lægra en hér og velflestar aðrar
verslanir eru fyllilega samkeppnis-
færar með verð og þjónustu saman-
borið við verslanir á höfðuborgar-
svæðinu.
íbúafjöldi Akraness hefur staðið í
stað síðustu 6-8 árin. Jarðgöng
undir Hvalfjörð myndu að mati undir-
ritaðs verða til þess að fólki fjölgaði
hér frekar en hitt.
Sigurður Sverrisson
Óli Þórdar og félagar í Brann ír leik í norska bikamum:
„Geroum alK nema að skora"
Frá Kristni Reimarssyni í Osló:
„Við gerðum allt nema að skora,“ sagði Ólafur Þórðarson hjá Brann
eftir að lið hans hafði tapað, 0 : 2, fyrir hinu Björgvinjarliðinu, Fyll-
ingen, í undanúrslitum norsku bikarkeppninnar um helgina.
Leikurinn fór fram á heima- grasvöllur. Að sögn Óla hafði
velli Fyllingen, sem er gervi- það ekki góð áhrif á leikmenn
ÞórðurEmil ágraði
Þórður Emil Ólafsson sigraði á
Vesturlandsmeistaramótinu í
golfi, sem fram fór um helgina á
Garðavelli. Keppendur voru 50
talsins,
Þórður lék 18 holurnar á 78
höggum, fjórum minna en
Birgir A. Birgisson, félagi hans
úr Leyni. Jafnir í 3. - 4. sæti urðu
Sváfnir Hreiðarsson úr Mostra
og Viðar Héðinssn frá Golf-
klúbbi Borgarness á 83 höggum.
í keppni með forgjöf sigraði
Eyþór Benediktsson, Mostra, á
67 höggum nettó. Birgir A. Birg-
isson, Leyni varð annar á 71
höggi nettó og jafnir í 3. - 7. sæti
á 73 höggum nettó urðu Gunnar
Kristjánsson og Ingvi Árnason,
Golfklúbbi BöFgarness, Birgir
A. Birgisson og Birgir Jónsson úr
Leyni og Sváfnir Hreiðarsson,
Mostra.
í sveitakeppninni sigraði sveit
Leynis á 441 höggi. Sveit GB
varð 2. á 444 höggum og í 3. sæti
varð Mostri á 448 höggum.
Brann, sem kunnu illa við sig á
gervigrasinu.
Norsku blöðin fjalla mikið um
þennan leik eða öll heldur sjálf
úrslitin. Er almennt talað um að
„litli bróðir hafi unnið stóra
bróður“. Ekki er ýkja langt síðan
Brann tapaði 2 : 3 á heimavelli
fyrir þessu sama liði í deildinni.
„Við stefnum frekar að því nú
að ná Evrópusæti en sjálfum titl-
inum því við eigum eftir að spila
gegn tveimur efstu liðunum,
Tromsö og Rosenborg, og þau
eru erfið viðureignar,“ sagði Óli.
Þegar þremur umferðum er
ólokið í norsku 1. deildarkeppn-
inni er Brann í 3. - 4. sæti með 33
stig, fimm stigum á eftir Tromsö,
Ólafur Þórðarson.
sem er í efsta sætinu. Til að ná
Evrópusæti er nóg fyrir Brann að
halda 3. sætinu svo framarlega
sem Rosenborg verður bikar-
meistari. Rosenborg mætir Fyll-
ingen í bikarúrslitunum. Vinni
Fyllingen bikarinn þarf Brann að
ná 2. sætinu í deildinni til þess að
krækja í Evrópusæti.
Brann mætir Tromsö í næstu
umferð á laugardaginn.
Unglingameislaramótið í sundi í suman
Olafur vann til
sex guHverðknna
Ólafur Sigurðsson, einn hinna mín., 100 m flugsundi á 1:07,68
Þórður Emil Ólafsson - Vestur-
landsmeistari í golfi.
ungu og bráðefnilegu sund-
manna í liði Sundfélags Akra-
ness, náði þeim frábæra árangri
að vinna til sex gullverðlauna á
Unglingameistaramóti íslands
sem fram fór í sumar. Vegna
sumarleyfa Skagablaðsins og
fjarveru Steve Cryer, þjálfara,
hefur dregist úr hömlu að skýra
frá þessu.
Olafur, sem er mjög fjölhæfur
sundmaður, sigraði í 100
metra skriðsundi á 59,70 sekúnd-
um, í 200 m fjórsundi á 2:30,79
•II . ■. :• ■.................................................................................................................................................................. : ■ ■■ ...............................................................................'......
min., 100 m bringusundi a
1:17,44 og í 100 m baksundi á
1:12,21 mín. Þá var hann í sigur-
sveit Skagamanna í 4 X 100 m
fjórsundi. Hlaut því alls sex gull-
verðlaun sem er afar sjaldgæfur
árangur.
Steve Cryer, þjálfari Sundfé-
lags Akraness, sagðist hafa verið
nokkuð ánægður með útkomu
liðsins í mótinu þó svo Ægir
hefði sigrað. Ægir hlaut 369 stig
en Sundfélag Akraness 303 stig.
Þessi tvö félög voru í algerum
sérflokki.
Cryer sagði, að keppendurnir
frá Skaganum hefðu bætt sig í
44,2% tilvika eða í 34 tilvikum
að 77. Slíkt væri ekki afleitur
árangur og vægi að vissu leyti
upp þau vonbrigði að ná ekki á
sigra í stigakeppninni.
Margir keppendur frá Akra-
nesi stóðu sig mjög vel á mótinu
eins og sjá má af því hversu
margir bættu sig. Steve Cryer
sagði það þó óneitanlega há flest-
um keppendum hversu litla
reynslu þeir hefðu af 50 metra
laug. Því væri nauðsynlegt að fá
fleiri met í svo langri laug því er-
lendis væri undantekingalaust
keppt í slíkum laugum.
Vetrarstarf Sundfétags Akraness að hefjasb
Yetrarstarf Sundfélags Akra-
ness er að hefjast af fullum krafti
um þessar mundir. Æfingar eru
þegar hafnar undir stjórn Steve
Cryer, en auk hans þjálfa Sigur-
laug Guðmundsdóttir og Hugi
Skemmtileg nöfn æfingahópa
Sundfélag Akraness hefur tekið upp þá skemmtilegu nýbreytni
að gefa C-hópunum, sem svo hafa verið nefndir í sundinu, hóp-
um byrjenda, sérstök nöfn.
Þannig heita nýliðahóparnir þrír sem nú æfa ísbirnir, Höfrung-
ar og Selir. Þessar nafngiftir hafa fallið í góðan jarðveg enda
þarf þá ekki lengur að notast við nöfnin A, B og C.
Ólafur Sigurðsson — 6 gullverð-
laun.
Nýlidum boðið að slást í hópinn
Harðarson hjá félaginu í vetur.
Næstu átta laugardaga gefst
þeim börnum og unglingum
sem hafa hug á því að stunda
sundæfingar í vetur kostur á að
mæta í Jaðarsbakkalaug kl. 11 til
þess að kynna sér íþróttina og
njóta leiðsagnar þjálfaranna.
Þá hefur verið ákveðið að efna
til innanfélagsmóta mánaðarlega
í vetur. Að kvöldi mótsdaganna
verður síðan efnt til dansleiks
fyrir sundkrakkana.
Steve Ciyer
enduvráðinn
Sundfélag Akraness hefur
ákveðið að endurráða breska
sundþjálfarann Steve Cryer
til eins árs. Aðeins á eftir að
ganga formlega frá samning-
um.
Cryer, sem kom til starfa
á Akranesi, fyrir réttu
ári, hefur náð góðum árangri
með sundfólk á Skaganum og
er almenn ánægja með störf
hans.
Soðið kál og (ónleftahald
Hafí einhver úr Skólahljómsveit Akraness haldið að hann eða hún
væri að fara í frí dagana 7. — 14. júlí á alþjóðlega lúðrasveitamótinu
í Rostock í Austur Þýskalandi reyndist það hinn mesti misskilningur.
Að jafnaði var hópurinn sestur út í rútu ekki seinna en klukkan átta
á morgnana og sjaldnast kominn heim fyrr en tíu eða ellefu á kvöldin.
Lúðrasveitamót af þessu tagi
eiga sér langa hefð í Rostock
og hefur íslensk hljómsveit tekið
þátt hverju sinni en aldrei tvisvar
sú sama. Þannig var Skólahljóm-
sveit Akraness fulltrúi Islands að
þessu sinni. Þarna voru mættar
til leiks 11 þjóðir með hljóm-
sveitir sínar og sumar með tvær
eins og Danir, Tékkar og Ung-
verjar. Borgin iðaði af tónlist og
hvarvetna mátti heyra í lúðra-
sveitum á götum úti. Okkar
menn spiluðu daglega á opnum
svæðum víðsvegar um borgina.
Pöllum og hátölurum var komið
fyrir á torgum úti, bekkjum rað-
að hér og hvar og svo dunaði tón-
listin tímunum saman. Menn
sátu og hlustuðu, drukku bjór,
kaffi eða bara hvíldu lúin bein á
leið sinni um borgina.
Lagavalið brást aldrei
íslendingarnir buðu upp á það
besta sem þeir áttu og lagaval
hljómsveitarinnar brást aldrei.
Margar hljómsveitanna spiluðu
tónlist sem sumir vilja kenna við
ekta lúðrasveitartónlist og segja
að menn verði að vera komnir
yfir fimmtugt til að hafa gaman
af! En okkar krakkar tóku Bítla-
lög, létta klassík og popp.
Áheyrendur voru bersýnilega
ánægðir og var stöðugt verið að
biðja Andrés um nótur af ís-
lenska prógraminu. Nótur af
þessu tagi hafa verið illfáanlegar
í austantjaldslöndunum til þessa.
Inn á milli laga skaut umdirrituð
upplýsingum um land og þjóð.
Þótti mörgum forvitnilegt að
heyra að allt ísland hefði sömu
íbúatölu og Rostockborg en væri
að flatarmáli jafn stórt Austur
Þýskalandi, svo og að hljóm-
sveitin kæmi frá fimm þúsund
manna bæ en spilaði samt svona
vel!
Allan tímann sem við dvöldum
í Rostock höfðum við sama bíl-
stjórann, Dieter, sem ók okkur
um í harmonikustrætisvagni.
Hann var afburða snúningalipur,
geðgóður og mikill vinur okkar. í
hvert sinn sem íslenska hljóm-
sveitin hafði spilað lyngdi hann
aftur augunum brosti og sagði:
„Og enn spiluðu þau guðdóm-
lega.“
Framandi réttir
Spölkorn frá íbúðum okkar
var matstaðurinn „Kombuese.“
Þar borðuðum við alla dagana. í
byrjun var uppi fótur og fit er inn
sigldu kúfaðir diskar af hinum og
þessum réttum sem menn full-
yrtu að þá hefði ekki dreymt um
að borða heima á íslandi. Má þar
nefna soðið kál, sveppi, ófitu-
sprengda mjólk, dísætt te og
fleira. Kastaði liðið sér yfir gos
og íssalann Búm Búm og hugðist
nú bæta sér upp matarleysið með
stórveislu við hann. Búm Búm
hafði aldrei í annað eins komið
og heldur áræðanlega enn að
peningar vaxi í vösum íslenskra
barna og unglinga.
Troðningurinn umhverfis hann
komu Tékkar og gáfu Pólverjum
lítið eftir. Okkar menn skiluðu
sínu en voru glaðir er yfir lauk.
varð ógurlegur en fararstjórar
sátu og horfðu í gaupnir sér. Síð-
an var fundað og málin rædd og
auðvitað voru allir á einu máli er
upp var staðið. Það var dóna-
skapur að borða ekki þann mat
sem var okkur að kostnaðarlausu
og allir lofuðu að gera sitt besta.
Og þar við sat. Umgengnin batn-
aði með hverjum deginum sem
leið. Eldhúsliðið var beðið að
skammta minna á diskana,
appelsínusafi kom í stað ófitu-
sprengdrar mjólkur og þá voru
allir glaðir og ánægðir. Starfs-
fólkið í eldhúsinu átti hinsvegar í
erfiðleikum með að skilja hve lít-
ið íslensk börn borða en vildu
allt fyrir okkur gera. Það var síð-
ur en svo að Búm Búm væri van-
ræktur en biðröðin styttist og var
öll hin menningarlegasta. Dag-
inn sem við fórum spilaði kvint-
ettinn í borðsalnum í hádeginu
og hópurinn gaf starfsliðinu gjaf-
ir frá íslandi til minningar.
Eldskírn
Kvöldið sem mótið var sett
áttu allar hljómsveitirnar að
marséra inn á Ernst Thelmann-
platz sem er ráðhústorgið. Það
var mikil eldskírn fyrir hópinn og
mátti kannski segja að þau hefðu
getað verið heppnari með upp-
röðun því á undan fóru Pólverjar
sem gengu eins og þeir væru
fæddir í marstakti og á eftir
Við undirstrikuðum við stjórn-
endur að ísland hefði ekki her og
ætlaði ekki að hafa. þess vegna
kynnum við ekki að ganga í
takti. Og á tímum sameinaðrar
Evrópu þegar múrarnir falla var
þetta eins og talað út úr hjarta
stjórnendanna og íslendingar
voru þar með lausir við allar
marséringar vegna sérstöðu
sinnar!
Heilan dag var æft fyrir
Evróputónleikana. Það pró-
gramm hafði verið æft hér heima
í vetur en nú mátti skólahljóm-
sveitin ekki sitja saman og var
raðað eftir hljóðfærum en ekki
þjóðerni. Þá þýddi lítið að horfa
biðjandi á Andrés, nú var bara
að standa sig. Um kvöldið voru
tónleikarnir undir berum himni í
góðu veðri. Var það áttahundruð
manna hljómsveit, sannkallaðir
Evróputónleikar.
Allar sveitir í próf
Allar hljómsveitirnar gengust
undir próf og fóru tveir heilir
dagar í þau. ísland spilaði seinni
daginn. Fyrri daginn fór hópur-
inn til að hlusta á hina. Við lædd-
umst inn í kaldan salinn og sett-
umst niður eins og mýs. Á
svölunum sátu dómnefndarmenn
af ýmsu þjóðerni, misfeitir og
sköllóttir. Pólverjar voru að
spila. Það var allt í senn fáguð
tónlist, ærandi hávaði og melo-
TIL SOLO MAN 15/216
Bíllinn, 5em er árgerð 1972, er með hliðarsturtu og HIAB
550 Krana að aftan, þannig kemst hann vel að aftaníkerru,
hafnarvinnu og öðrum verkum. Verð kr. 680 þúsund.
Bíllinn verður á bílasölu okkar næstu daga.
BÍLÁS
Þjóðbraut 1 — SÍMI 12622 & 11836
dískur jazz. Okkar fólk seig nið-
ur í sætunum, snéri sér síðan við
og horfði í uppgjöf á Andrés og
Petu. Þegar Belgarnir létu Carm-
en eftir Bizet hljóma um salinn í
öllum litbrigðum eftir að hafa
flogið í gegnum ómstríðan
Korsakof hækkaði heldur ekki
risið á okkar mönnum. Við lædd-
umst út í rútu til Diters, þung-
lyndið var um það bil að ná tök-
um á hópnum . . .
Menn sváfu misvel um nóttina
en næsta dag stóð hópurinn á
sviðinu klukkan ellefu. Eftir að
hafa horft á svarta, gráa og brúna
hermannabúninga hinna þjóð-
anna var regluleg upplyfting fyrir
salinn að sjá litaglaða jogging-
galla ísiendinganna svo ekki sé
minnst á hárprúðan stjórnand-
ann en flestir kollegar hans hefðu
sjálfsagt þegið að fá nokkur að
láni!
„Spiluðu guðdómlega“
Og eins og Dieter sagði „Og
enn spiluðu þau guðdómlega!“
og það í orðsins fyllstu merk-
ingu. Þarna tóku allir á því sem
þeir áttu, enginn leyfði sér að
sofa eða gera ekki sitt ítrasta.
Lófaklappið var dynjandi, menn
svifu ofan af pallinum. Andrés
var ekki fyrr búinn að sleppa
sprotanum en stjórnendur ung-
versku og búlgörsku hljómsveit-
anna voru mættir með heimboð
íslensku hljómsveitinni til handa
og Belgar áttu eftir að bætast í
hópinn.
Þetta kvöld var haldið úti-
diskótek. Er ekki að orðlengja
að íslendingarnir skemmtu sér
vel enda höfðu þeir unnið til þess
um morguninn. Diskótekið var á
hringsviði umkringdu bekkjum
sem tóku átta þúsund manns í
sæti. Þarna skemmtu ýmsir utan-
aðkomandi listamenn en auk
þess sáu hljómsveitirnar um
margvíslegar uppákomur.
Annars virtist greinilega
minna borið í þetta lúðrasveitar-
mót en mörg hinna fyrri. Sást
það best ef borin var saman
dagskrá þessa árs og undangeng-
inna ára. Það er um að kenna
pólitísku ástandi í landinu og
kvörtuðu menn sáran yfir pen-
ingaleysi og óáran. Eftir að vest-
ur þýska markið var tekið upp í
Austur Þýskalandi 1. júlí virðist
allt hafa hækkað nema kaupið.
Rúnstykki sem áður kostuðu 5
Pfenninga kosta nú 35 Pfenninga
og annað þar fram eftir götun-
um. Krökkunum var ekki gefinn
kostur á nema þessu eina
diskóteki á hinn bóginn fengu
yfirmenn og stjórnendur töluvert
af veislum!
Það er kannski til íhugunar
fyrir okkur foreldrana að ís-
lensku börnin höfðu 200 mörk í
vasapeninga í Þýskalandsferð-
inni þar sem fæði og uppihald var
ókeypis á meðan Ungverjarnir
höfðu 36 mörk!
Sem dæmi um samdrátt í mót-
haldinu var árviss viðburður, ó-
keypis Berlínarferð, skorin
niður. Við létum það ekki á okk-
ur fá, leigðum rútu og héldum til
Berlínar. Segir af þeirri ferð
seinna.
Kvöldið sem mótinu lauk var
íslenska hljómsveitin beðin um
að „hita upp“ því hún var með
lagavali sínu og skemmtilegheit-
um talin sú langákjósanlegasta.
Sú upphitun stóð í klukkutíma.
Viðurkenningu hlaut hún síðan
fyrir afburðaárangur yngstu
hljómsveitarinnar á mótinu. Ing-
unn Gunnarsdóttir og Stefnir
Sigmarsson fóru á verðlaunapall
og sóttu viðurkenninguna fyrir
hönd hljómsveitarinnar.
Akraneskirkia
Laugardagur 22. september **
Kirkjuskóli yngstu bamanna í umsjá Axels Gústafssonar í safn-
aðarheimilinu Vinaminni kl. 13.00.
Sunnudagur 23. september
Barnaguösþjónusta kl. 11.00. Nýstofnaður bamakór syngur.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.00. Vænst er þátttöku fermingarbarna og
foreldra þeirra.
Messa á Höfða kl. 15.30.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Fimmtudagur 27. september
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 18.30. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
VIÐTALSTÍMAR
Viðtalstími sóknarprests er í safnaðarheimilinu Vinaminni
þriðjudaga til föstudaga frá kl. 18.00 til 19.00 eða eftir sam-
komulagi.
Sóknarprestur
Kyuumgarfimdiu*
Vl im VI I.KOMI.V.V: Stjóm tfC—Akraness