Skagablaðið - 20.09.1990, Side 6
6
Skagablaðið
Skólamót GoHsambands íslands á Garðavelli:
Sveit Fjöíbrautaskóla
VestuHands sigraði
Sveit Fjölbrautaskóla Vestur-
lands sigraði í Skólamóti Golf-
sambands íslands, sem fram fór
hér á Akranesi um helgina. Þetta
var annað árið í röð sem syeit FV
sigrar. Sveit Verslunarskóla ís-
lands vann sér aftur á móti rétt til
þátttöku á alþjóðlegu móti skóla-
sveita í Englandi á vori kom-
anda.
Heildarskor sveitar FV var
237 högg en í 2. sæti varð
sveit Verslunarskóla íslands á
243 höggum. í 3. sæti varð síðan
sveit Grundaskóla á Akranesi
með 246 högg. Árangur þeirrar
sveitar er mjög eftirtektarverður
því Grundaskóli er grunnskóli,
hinir allir framhaldsskólar.
Fjórða sætið skipaði svo sveit
Verkmenntaskólans á Akureyri
með 256 högg. Fleiri sveitir
mættu ekki til leiks.
Sigursveit Fjölbrautaskóla
Vesturlands skipuðu Hjalti Niel-
sen, Þórður Emil Ólafsson, Ingi
Rúnar Gíslason og Willy Blum-
enstein. Árangur þriggja bestu
gilti.
Bestum árangri einstaklinga
náði Haukur Óskarsson, VÍ,
með 75 högg. Hjalti Nielsen, FV,
lék á 77 höggum.
Aukaverðlaun mótsins en
jafnframt þau eftirsóknarverð-
ustu féllu sveit Vf í skaut. Sam-
kvæmt reglum mótsins vinnur
það lið, sem best leikur og er
skipað leikmönnum sem ekki
hafa náð 18 ára ,aldri, sér þátt-
tökurétt í alþjóðlegu skólamóti á
Sunningdale-golfvellinum í
Englandi í maí 1991. Sveit FV
hefur leikið á þessu móti fyrir ís-
lands hönd sl. tvö ár.
Æfingatafla handboltans
Hjalti Nielsen lék best í liði FV.
Eins og fram kom í síðasta
Skagablaði eru æfingar hafn-
ar af fullum krafti hjá Handknatt-
leiksfélagi Akraness. Hér á eftir
fer tafla yfir æfingatíma hand-
boltans í vetur.
6. flokkur drengja
Miðvikudaga kl. 18.45 - 19.30
Laugardaga kl. 10.00 - 11.00
5. flokkur drengja
Mánudaga kl. 20.30 - 21.30
HALFT í HVORU
Á AKRAHESI!
Hin stórgóða sveit Hálft í hvoru skemmtir á
Bárunni annað kvöld, föstudagskvöld. Gísli
Helgason, Eyjólfur Kristjánsson og félagar í
banastuði!
KOMIÐ 06 5JÁIÐ SVEIT EIHS 06 ÞEIR 6ERAST
BESTARÁ PÖHBUHUM!
Miðvikudaga kl. 20.30 - 21.30
Laugardaga kl. 11.00 - 12.00
5. flokkur stúlkna
Þriðjudaga kl. 17.0 - 17.45
Miðvikudaga kl. 18.00 - 18.45
Laugardaga kl. 14.00 - 15.00
4. flokkur drengja
Mánudaga kl. 21.30 - 22.30
Miðvikudaga kl. 21.30 - 22.30
Laugardaga kl. 12.00 - 13.00
4. flokkur stúlkna
Mánudagur kl. 21.30 - 22.30
Föstudagur kl. 17.30 - 18.30
Laugardagur kl. 13.00 - 14.00
3. flokkur drengja
Mánudagur kl. 17.00 - 18.00
Miðvikudagur kl. 16.00 - 17.00
Laugardagur kl. 15.00 - 16.00
3. flokkur stúlkna
Mánudagur kl. 17.45 - 18.30
Miðvikudagur kl. 17.00 - 18.00
Föstudagur kl. 16.40 - 17.30
2. flokkur drengja
Fimmtudagur kl. 17.00 - 18.30
Laugardagur kl. 16.00 - 17.00
1. flokkur karla
Mánudagur kl. 18.30 - 19.30
Laugardagur kl. 17.00 - 18.00
Þeir tímar sem eru skáletraðir
eru í íþróttahúsinu við Vestur-
götu, hinir eru í húsinu að Jað-
arsbökkum.
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA —Málflutningur, innheimtur, skjalagerð, búskipti •r-f-r Lögmannsstofan Kirkjubraut 11 o <L Tryggt/i Bjarnason, hdl. JL.. Símar 12770 og 12990 Viðtalstímar frá kl. 14.30 - 16.00 eða eftir nánara samkomulagi. Bílaleiga - bílaverkstæði Allar almennar vidgerðir. ^attin9ar °9 sprautun. j wma V/SA 1 ■■■■i EUOOCABD BRAUTIN HF. Dalbraut 16 S 12157
láhð plyiv FAGMENN rJIÍTr VINNA PRENTVERK VERKIÐ AKRANESS HF. TÆKJALEIGA Nýleg og öflug tæki. Opið alla dagafrá kl. 13-22. TÆKJALEIGAN AKRANESI Kirkjubraut 11 S 12950
Jaðarsbakkalaug Jaðdrsbakkalaug er opin alla uirka daga frá kl. 7 til 21, laugar- og sunnudaga frá kl. 9 til 16. VÉLAVINNA Leigjum út flestar gerðir vinnu- SJCÍIFI AN' v^a' ®nnumst jarðvegsskipti ,'U| \Jv ogútvegummöl sandog mold. s^Soo9 Fljót 09 örug9 Þiónusta’
Erling Pálsson Valdís Valgarðsdóttir
Guðbjörn Tryggvason reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni
við Valdísi Valgarðsdóttur í getraunaleiknum um helgina. Valdís
sigraði léttilega, 7 : 3, og mætir um næstu helgi Erling Pálssyni,
Ella á Lindási, en Guðbjörn útnefndi hann arftaka sinn.
Skagablaðið sá ástæðu til þess að geta þess í síðasta blaði að
Sæmundur Víglundsson, eiginmaður Valdísar, kæmi hvergi
nærri tippinu hennar. Þessar upplýsingar urðu einum lesanda til-
efni til þess að setja saman vísu, sem blaðinu barst í vikunni. Hún
er svohljóðandi:
Ef vinningur konunnar verður nú stœrri,
víst er að jafnrétti stundað þó var,
því tippinu hennar hvergi kom nœrri
karlinn hinn getspaki Valdísar.
Frammistaða Valdísar fyrstu tvær vikurnar í getraunaleiknum
hefur vakið tippara til umhugsunar um hvort konur séu almennt
skæðari tipparar en karlar. Staðreyndin er nefnilega sú að konur
hafa náð bestum árangri í getraunaleik Skagablaðsins á liðnum
árum.
Hvort Valdís heldur áfram á sömu braut vitum við ekki enn en
upphafið lofar góðu. Það styrkir líka trú okkar á góðum árangri
hennar að mótherjinn tippar ekki einu sinni á sína menn, West
Ham. En kíkjum á leikina:
Erling Valdís
Aston Villa —OPR 1 1
Chelsea — Manchester City 1 1
Everton — Liverpool 2 2
Luton — Coventry X X
Manch. Utd. —Southampton 1 1
Norwich — Derby 1 1
Nottm. Forest — Arsenal 2 2
Tottenham — Crystal Palace 1 1
Wimbledon — Sunderland 1 1
Leicester — Sheffield Wed. 2 X
Middlesbrough — Oldham 2 X
Newcastle — West Ham 1 1
Aðalfindur Körfuknattleiksféiags Akraness:
Ragnar var endur-
kjörínn formadur
Ragnar Sigurðsson var kjörinn
formaður Körfuknattleiksfélags
Akraness á aðalfundi félagsins í
síðustu viku. Ragnar er öllum
hnútum kunnugur innan körfu-
knattleiksins en að öðru leyti er
stjórn félagsins skipuð nýjum
mönnum.
araformaður stjórnarinnar
er Kristján Ólafsson, gjald-
keri Egill Ragnarsson, ritari Jó-
hannes Helgason og spjaldskrár-
ritari Hörður Harðarson.
Eins og fram hefur komið í
Skagablaðinu hafa þjálfarar ver-
ið ráðnir fyrir alla flokka. Fram-
undan er mikið átak í þá veru að
lyfta körfuknattleiknum úr þeirri
lægð sem hann hefur verið í
undanfarin ár. Auk stjórnarinnar
verður starfandi bakvarðasveit í
vetur. Ragnar sagðist í samtali við
Skagablaðið vænta mikils af sam-
starfinu við þann flokk.
Ragnar vildi að endingu koma
því á framfæri til körfuknatt-
leiksáhugamanna á Akranesi að
þeir styddu vel við bak íþróttar-
innar í vetur, m.a. með því að
sækja vel leiki Skagamanna í 2.
deildinni. Bryddað verður upp á
ýmsum nýjungum fyrir áhorfend-
ur á leikjunum í vetur.
í s: i
12261