Skagablaðið - 30.05.1991, Side 1
20. TBL. 8. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1991
VERÐ KR. 150,-
Skólahljómsveitin leikur á mótinu undir stjórn Andrésar Helgasonar.
Toricemlegur fundur
Torkennilegur hlutur fannst á Langsandi fyrir stuttu. í fyrst var
talið að þarna væri um að ræða stýri af gömlum báti en við nánari
athugun reyndist svo ekki vera.
Að sögn Gunnlaugs Haraldssonar, safnvarðar á Byggðasafninu
að Görðum, var gripið til þess ráðs að fá bæjarstarfsmenn til
þess að grafa dýpra í sandinn til þess að kanna málið.
Þegar betur var skoðað kom í ljós að þarna var um að ræða
stóran ferhyrndan tréhlut með kengjum á. Sagðist Gunnlaugur
helst hallast að því að þetta væri hluti af bóli eða bryggju.
Gunnlaugur vill beina því til eldri bæjarbúa og þá einkum sjó-
manna að þeir kanni hlutinn á Langsandinum og reyni að komast
að því hvað nákvæmlega þetta er og hvaðan það kann að vera
komið. Þeír sem telja sig hafa einhverja vitneskju um þennan hlut
eru beðnir að hafa samband við Byggðasafnið að Görðum.
Kartöflustríð í gangí?
Svo virðist sem kartöflustríð standi nú yflr í garðlöndum bæjarins á
Elínarhöfða. Stríðið lýsir sér í skemmdarverkum, sem framin hafa
verið á a.m.k. einum garðanna. Málið hefur verið kært til lögreglu að
sögn handhafa skikans, sem varð fyrir skemmdum. Þá lenti annar
bæjarbúi, sem einnig fékk leigðan skika, i því að búið var að setja
niður í helming svæðis hans þegar að var komið.
Eeins og auglýst var í Skaga- við. Einhver hafði þá gert sér lít-
blaðinu fyrir nokkru átti fólk ið fyrir og farið með hrífu um
garðinn og rótað hann allan upp.
Var útsæðið á víð og dreif um
svæðið.
„Það er alveg augljóst að
þarna hafa engin börn verið á
ferð,“ sagði handhafi skikans í
samtali við Skagablaðið. „Þarna
hafa einhverjir fullorðnir átt hlut
að máli og gengið skipulega fram
■blaðinu fyrir nokkru átti fólk
að sækja um garða fyrir tilskilinn
tíma. Handhafi skikans, sem um
ræðir, gerði svo og fékk úthlutað
svæði til kartöfluræktar.
Eins og lög gera ráð fyrir var
útsæðið sett niður um miðjan
mánuðinn. Viku síðar var allt í
stakasta lagi. Nokkrum dögum
seinna blasti annað og ófagurra
í að eyðileggja sem mest. Ég skil
ekki þær hvatir sem þarna liggja
að baki.“
Samkvæmt heimildum Skaga-
blaðsins beinist grunur m.a. að
fyrrum handhafa sama skika,
sem brást ókvæða við er öðrum
var leigður hann. Erfitt kann
hins vegar að reynast að sanna
nokkuð í þessu máli.
Nýtt merki nýs fyrirtœkis hefur verið málað á vesturgafl bœkistöðva
þess.
Heimaskagi, SFA og HB & Co formlega sameinuð á laugardag:
Afhenda öflum fastráonum
starfsmonnum hlutabréf
Stjórn Haraldar Böðvarssonar
hf. hefur í tilefni formlegrar sam-
einingar Heimaskaga, SFA og
HB & Co ákveðið að færa öllum
fastráðnum starfsmönnum tvö
þúsund króna hlutabréf ■ nýja
fyrirtækinu. Þetta kemur fram í
fyrsta fréttabréfl HB hf. sem
kom út í gær.
Það verður væntanlega mikið
um dýrðir á laugardaginn, 1.
júní, þegar fyrirtækin þrjú sam-
einast formlega í eitt, Harald
Böðvarsson hf. Frá og með þeim
degi fara allir starfsmenn fyrir-
tækjanna þriggja á launaskrá hjá
nýja fyrirtækinu.
Þá hefur verið ákveðið að öll
húsakynni fyrirtækisins verði al-
menningi til sýnis eftir hádegi á
laugardag. Þar er margt að sjá
eins og nærri má geta.
Ekki er þar aðeins að finna
glæsilega vinnslusali, heldur
einnig nýtísku tækjabúnað og
safn mynda frá fyrri tíð. Boðið
verður upp á kaffi í fundarsal
fyrirtækisins og Skólahljómsveit
Akraness leikur fyrir gesti frá kl.
14 - 16 á laugardag.
SkólaMjómsveilin gerði það gott í Stykkishólmi um helgina:
Hlutu prúðmennskuverðlaun
Skólahljómsveit Akraness stóð sig frábærlega á staklegavel. Skipulagning öll svo og aðbúnaður var
landsmóti skólahljómsveita sem fram fór í Stykkis- mjög góður.
hólmi um helgina. Til þess að kóróna ferðina hlaut Auk þátttöku í mótinu æfði 12 manna úrvalssveit
þau sérstakan bikar fyrir prúðmennsku. Bikar þessi hljóðfæraleikara héðan af Akranesi fyrir vestan frá
var á sínum tíma gefinn af Rotaryklúbbi Akraness því á fimmtudag með úrvalssveitum annarra.
og nefnist „Akranesbikarinn.“ Ekki var þó allan tímann leikið á hljóðfæri því
Alls voru í Hólminum um helgina 7 - 800 hljóm- boðið var bæði upp á göngu á Helgafell svo og sigl-
sveitarmeðlimir víðs vegar að af landinu. Mót- ingu um Breiðafjörðinn. Kunnu þátttakendur vel
ið heppnaðist að sögn fararstjóra krakkanna sér- að meta þetta.
Með vindinn í fangið í Breiðafjarðarsiglingu. F. v.: Lára, Arnheiður,
Álfhildur og Helena Ósk.