Skagablaðið - 13.06.1991, Page 1
Fyrsta stjórn Búseta á Akranesi ásamt Ósk Helgadóttur, endurskoð-
anda Búseta-Landssambands.
Rekstur Hafamarins hf. skilaði 13 millióna króna hagnaði í fyira:
Aukneng framleidsluverd*
mætis 60 mkr. á þessu ári
■ i ■ ■■ ■ ■■ / ■« ■ ■ ■ I ■ l/l ■ r / I li'K . * _ Iff I!
- Fyrirtækinu breytt í opið almenningshlutafélag á nýafstöðnum aðaifundi
Allt bendir til þess yfirstandandi ár verði eitt það besta um árabil
hjá Haferninum hf. Framieiðsiuverðmæti fyrirtækisins nam 150 millj.
kr. fyrstu fimm mánuði ársins, 40% meira en á sama tíma í fyrra.
Þrettán milljóna króna hagnaður varð af rekstri fyrirtækisins á síðasta
ári eftir afskriftir og skatta. Árið 1989 varð 6,5 millj. kr. tap á rekstr-
inum.
W
Aaðalfundi fyrirtækisins þann
S
L 29. maí sl. var samþykkt
samhljóða að afnema allar höml-
Þijátíu manns gengu í
nýstofnað Búsetafélag
Þrjátíu manns gerðust stofn-
félagar í Búsetafélagi hér á Akra-
nesi á stofnfundi, sem fram fór í
Fjölbrautaskóla Vesturlands í
fyrrakvöld.
Alfreð W. Gunnarsson var
kjörinn fyrsti formaður
stjórnar en aðrir í stjórn eru Karl
Jónsson, Ásgeir Magnússon,
Arnar Þór Sigurðsson, gjaldkeri
og Þuríður Óskarsdóttir. Þuríður
fékk jafnframt fyrsta númerið í
kerfi sem raðar umsækjendum
um íbúðir í forgangsröð.
Fyrirkomulag Búseta er þann-
ig að allir geta gerst félagar, án
tillits til tekna eða annarra að-
stæðna. Hver umsækjandi um
íbúð fær númer og þær eru síðan
afgreiddar eftir röð. Þeir sem
hafa áhuga á að ganga til liðs við
Búseta geta haft samband við
einhvern stjórnarmanna.
Búseti á Akranesi er fyrsta fé-
lagið sem stofnað er eftir að lög-
um Húsnæðissamvinnufélög var
breytt í Félagsmálaráðuneytinu.
Sú breyting tók gildi í fyrradag,
aðeins nokkrum klukkustundum
fyrir stofnfundinn hér á Akra-
nesi.
ur á sölu hlutafjár og gera fyrir-
tækið þannig að opnu almenn-
ingshlutafélagi. Stjórn fyrirtækis-
ins hafði áður fengið heimild til
þess að auka hlutafé í allt að 200
millj. kr. Enn eru um 20 millj.
kr. af þeirri upphæð óseldar.
Búist er við því að það hlutafé
verði selt á haustmánuðum.
Guðmundur Pálmason, fram-
kvæmdastjóri Hafarnarins hf.,
sagði í samtali við Skagablaðið í
gær, að afkoman fyrstu fimm
mánuði ársins gæfi tilefni til
nokkurrar bjartsýni. Hann sagði
tilkomu togarans Sæfara hafa
gerbreytt rekstrinum. Mun meiri
afli kæmi nú til vinnslu en áður.
Hráefnisskortur hefði verið
helsta vandamál fyrirtækisins.
Ríkharð Jónsson var kjörinn
stjórnarformaður á aðalfundin-
um í maílok. Andrés Ólafsson
var kjörinn ritari og Guðmundur
meðstjórnandi. Varamenn eru
þau Drífa Ingimundardóttir,
Eiríkur Hervarsson og Valgeir
Guðmundsson. Endurskoðendur
fyrirtækisins eru Óskar Hervars-
son og Jón Þór Hallsson.
Jóhann Ársælsson, alþingis-
maður, gekk úr stjórninni á aðal-
fundinum. Voru honum þökkuð
mjög vel unnin störf á liðnum
árum.
I andsliö íslentlinga «g Svía, skipuö leikmönnuin 21 árs og
yngri, leika vinattulanilsleik í knattspymu hér á Akranesi kl. 15 a
Sv iai hata a að skipa miog ('thistu l.tndsliði i þessum aUlurs-
flokki. I audslið okkai íslendmga helin levndar ekki staðið
síg sem skytdi að undghjfömúiiög gengið illa í 1 vrópukcppninni.
Vonandi er að þeir nái að hrista af sér slenið á sunnudaginn.
Qn milljón meo Akraborg
Það var mikið um dýrðir við Akraborgarbryggju
rétt fyrir kl. 17 á sunnudaginn er milljónasti bíllinn
frá því Hf. Skallagrímur hóf rekstur bílferja árið
1974 renndi að ferjubryggjunni. Það var Rúnar Sig-
urkarlsson og fjölskylda hans úr Kópavogi sem
duttu í lukkupottinn.
jölskyldan var að koma úr helgarútilegu á Snæ-
fellsnesi og rétt náði í tæka tíð áður en Akra-
borg lagði úr höfn kl. 17. Undrunarsvipurinn á fjöl-
skyldunni var ósvikinn er þyrping prúðbúins fólks
vatt sér að bílnum og árnaði Rúnari, konu hans og
þremur börnum til hamingju með daginn.
Akranesbær og Reykjavíkurhöfn færðu fjöl-
skyldunni klukku og barómeter að gjöf, auk þess
sem Hf. Skallagrímur færði fólkinu gjafakort með
skipinu til áramót. Á leiðinni til Reykjavíkur þáði
fjölskyldan veitingar í boði Hf. Skallagríms.
Á stóru myndinni eru f.v.: Helgi Ibsen,
framkv.stj. Hf. Skallagríms, Óskar Ólafsson, skip-
stjóri, Guðbjartur Hannesson, form. stjórnar Hf.
Skallagríms, þá Rúnar og fjölskylda, Hannes Vald-
imarsson, hafnarstjóri í Reykjavík og Ingibjörg
Pálmadóttir, alþingismaður. Minni myndin var tek-
in er fjölskyldan steig út úr bílnum.