Skagablaðið - 27.06.1991, Side 3
Skagablaðið
3
Rælt við Gunnar Gunnarsson, forniaim Húsfnðunamefndan
„Meðal helstu verkefna nefn-
darinnar er umfjöllun um hús,
sem stendur til að rífa og mat
okkar á því hvort þau ætti heldur
að vernda, og koma áliti okkar til
byggingarnefndar. Einnig að
gera skrá yfir þau hús sem ætti að
varðveita í bænum. Þá leggur
húsfriðunarnefnd til að hús verði
ekki fjarlægð eða þá að þau verði
flutt á nýja staði. þar sem þau
gætu t.d. myndað nýja heild eldri
húsa,“ sagði Gunnar Gunnars-
son, formaður Húsfriðunarnefnd-
ar í samtali við Skagablaðið.
úsfriðunarnefnd er skipuð
til fjögurra ára og hefur nú-
verandi nefnd starfað í eitt ár.
Auk Gunnars eru í henni Brynja
Einarsdóttir, Stefán Lárus
Pálsson, Ólafur Tr. Elíasson og
Jón Runólfsson.
Skrá yfir öll hús
„Helstu starfsreglur nefndar-
innar eru að hún fer með stjórn
húsfriðunarmála í umboði bæjar-
stjórnar, að svo miklu leyti sem
hún lætur þau til sín taka,“ sagði
Gunnar. „Pá hefur Húsfriðunar-
nefnd það hlutverk að vera
bæjarstjórn til ráðuneytis varð-
andi friðun húsa, verndun þeirra
og uppbyggingu með hliðsjón af
lögum um Þjóðminjasafn íslands
frá 1989. Einnig hefur hún sam-
vinnu við þá sem um slík mál
fjalla. Húsfriðunarnefnd skal
hafa handbærar sem gleggstar
upplýsingar um ástand og sögu
þeirra húsa, sem falla undir
starfssvið hennar. Þá heldur
ncfndin skrá yfir öll hús sem rifin
eru og ritar ágrip af sögu þeirra.“
Gunnar sagði að nefndin hefði
upp á síðkastið beitt sér fyrir því
að stofnaður yrði svokallaður
Húsfriðunarsjóður. Hann gæti
stuðlað að varðveiðslu eldri húsa
með framlögum eða lánum til
eigenda þeirra til viðhalds og
cndurbyggingar. Hefði nefndin
nú þegar sent bréf til bæjaryfir-
valda varðandi þetta mál.
„Húsfriðunarnefnd fundar um
það bil einu sinni í mánuði og
tekur fyrir þau mál sem liggja
fyrir hverju sinni,“ sagði
Gunnar. „Þau geta verið af ýms-
um toga, eins og t.d. hús sem á
að fara að rífa. Við ályktum um
það og leggjum til við byggingar-
nefnd, hvort við teljum að húsið
eigi að fá að standa eða ekki, þó
við getum ekki ákvarðað örlög
þess alfarið. Þá skoðum við skipu
lagsuppdrætti, sem eru til um-
fjöllunar hverju sinni hjá bæjar-
yfirvöldum, og ályktum um þá."
Gunnar sagði að í gegnum tíð-
ina hefðu mörg hús verið rifin,
sem svo sannarlega hefðu átt að
standa. Ekki verið hugsað nægi-
lega um varðveislu þeirra, þótt
þau ættu sér langa og merkilega
sögu. Hann sagðist t.d. geta
nefnt dæmi um húsnæðið sem
Haraldarbúð var í á sínum tíma.
Sem betur fer hefði þó tekist að
bjarga mörgum sögufrægum
húsum.
Kirkjuhvoli bjargað
„Ánægjulegt dæmi um það er
Kirkjuhvoll, sem miklar deilur
voru um á sínum tíma. Húsfrið-
unarnefnd barðist fyrir því að
það fengi að standa og árangur-
irtn skilar sér í fallegu húsi, sem á
sér langa sögu. Af nýlegri málum
má nefna að bæjarstjórn hefur
ákveðið í kjölfar ályktunar
nefndarinnar að veita tvö hundr-
uð þúsund króna styrk til við-
gerðar á gamla vitanum með það
í huga að skapa þar aðstöðu til
útsýnis- og fuglaskoðunar. Þá
hafa komið inn á borð til okkar
ýmis mál, sem geta verið tilfinn-
ingalegs eðlis, eins og það að
hafa hús Haraldar Böðvarssonar
hf áfram í rauða litnum þar sem
hann hefur sett ákveðinn svip á
húsin í gegnum tíðina,“ sagði
Gunnar.
hle\ (>11 lot'ti i lungu <>g tn;
heilsuhtHarpansia meö liund.
Heiisubótargnnga meö 1
Inessir og kcetir lund.
Aö lint ia á Iiísins lystisemdii .
á heilsubotargéingu meö hund.
Nei. jcg veit ekkert yndislegra
en heilsubótargöngu meö hund.
og liliö verður fegra og l'egra
á lieilsubótargóngu meö huncl.
Jeg nota liverja stuncl
;i lieiIsubc>tai'gcingu mec) huncl.
Þaö hleypir loiti f lungu og
heilsubótarganga með
Uiií.: 'l'heodór Kinnrssan
Yfirfóstra er ekki það
samaogforetöðumaður
Guðlaug Sverissdóttir hefur undanfarna daga mátt hafa sig alla við
að taka á móti árnaðaróskum eftir að hún var ráðin yfirfóstra nýja
leikskólans við Lerkigrund.
Hún er að vonum ánægð með hversu margir hafa árnað henni
heilla í nýju starfi. Hitt er e.t.v. verra að margir halda að hún sé
þar með forstöðumaður leikskólans. Sú er gegnir því embætti heitir
Brynja Helgadóttir eins og Skagablaðið skýrði frá er hún var ráðin.
Dráttarvextir
Rafveita Akraness vekur athygli raf-
orkukaupenda á því að dráttarvextir
reiknast á alla vangoldna reikninga 5.
hvers mánaðar.
Greiðið tímanlega til þess að forðast
dráttarvexti.
Rafveita Akraness
Kirkjuhvoll hefur á ný fengið reisulegt yfirbragð og eigendur hússins flytja íþað á nœstu dögum eða vikum.
Lögmauusstofa Lögífæðiþjónusta — Málflutningur Innheimta — Samningsgerð — Búskipti Jósef H. Popgcirsson 1.4 VlUl Tl£ Stillliohi 14 S 18183 - I'ax 13182 TRÉSMÍÐI Qetum bætt við okkur verkefnum. Smíðum m.a. sólstofur, glugga og hurðir. Tilboð eða tímavinna. Trésm. Höldur sf. Upplýsingasímar 11024 og 13232
Í7\ Innréttingar — Málning Gólfefni — Búsáhöld^^ byggingahúsið] SMIÐJUVÖLLUM 7 - AKRANESI - SÍMI 93-13044
KRÓKATÚNI 8 - SÍMI 11454
Öll almenn liósmyndun Opið virka daga frá kl. 14,00 til 17,00 og eftir samkomulagi. Símar 12892 & 12129 (símsvari). UÓSMYNDASTOFA ÁKRANESS YESTURGÖTU 35 (FRÓN) Spónaplötur, allar þykktir ■ Krossviður, þakjárn og stál ■ Margskonar byggingavörur ■ Alhliða byggingaþjónusta TRÉSMIÐJA SIGURJÓNS & ÞORBERGS ÞJÓÐBRAUT 13 — SÍMI 11722