Fréttablaðið - 03.07.2019, Side 2

Fréttablaðið - 03.07.2019, Side 2
Riffill og haglabyssa sem lögregla lagði hald á eru talin vera þýfi úr innbroti. Veður Hæg suðvestanátt með smá- skúrum sunnan- og vestanlands síðdegis, en dálítil rigning norðan- og austanlands. Hiti 10 til 18 stig að deginum, hlýjast norðaustanlands síðdegis. SJÁ SÍÐU 16 ALLT fyrir listamanninn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn Góður gestur á leikskólanum LÖGREGLUMÁL Tveir menn voru handteknir í Breiðholti á mánudag og hald lagt á skotvopn og lítilræði af fíkniefnum. Að sögn lögreglu barst tilkynn- ing frá húsráðanda í Breiðholti um skothvell sem virtist koma frá húsi nágranna hans. Við nánari eftir- grennslan kom í ljós að ummerki í jarðvegi fyrir utan umrætt hús gáfu til kynna að þar hefði verið hleypt af skoti og var í kjölfarið fengin heimild til húsleitar. Við framkvæmd leitarinnar var húsráðandi handtekinn auk annars manns sem var gestkomandi í hús- inu. Hald var lagt á smáræði fíkni- efna og þar að auki tvö skotvopn, haglabyssu og riffil, auk skotfæra. Grunur leikur á að skotvopnin séu þýfi úr innbroti. Málið telst upplýst og hefur mönnunum verið sleppt. Maðurinn sem var gestkomandi í húsinu er af erlendum uppruna. Hann var hér í ólöglegri dvöl og hafði verið vísað úr landi. Stoðdeild ríkislögreglustjóra hefur verið gert viðvart um hans mál.  – aá Handtóku tvo eftir skothvelli í Breiðholti Íbúi í Breiðholti tilkynnti málið. REYKJAVÍK „Það þarf að endurmeta ástand og viðhaldsþörf alls skóla- húsnæðis sem er í eigu Reykjavíkur- borgar. Ástandið er óviðunandi allt- of víða. Þetta mun kosta gríðarlega fjármuni og því þarf að endurskoða fimm ára fjárhagsáætlun borgarinn- ar, enda ekki nokkur von til þess að hún muni standast,“ segir Valgerður Sigurðardóttir, fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í skóla- og frístundaráði. Dregið var úr viðhaldi á bygg- ingum í eigu Reykjavíkurborgar á árunum eftir hrun. Í fyrra var fyrsta árið þar sem fjármunir fóru yfir við- miðunarfjárhæð borgarinnar. „Ég hef fengið gögn frá einum af fjármálastjórum borgarinnar sem sýna það svart á hvítu að óunnið en uppsafnað viðhald hjá Reykja- víkurborg var yfir fimm milljarðar árið 2017, þar af voru þrír milljarðar hjá Skóla- og frístundasviði. Þetta þýðir að þrír milljarðar hafa verið teknir af skólunum sem hefðu átt að fara í viðhaldskostnað en skiluðu sér ekki,“ segir Valgerður. „Af framkvæmdu viðhaldi síðustu 10 ár hefur einn þriðji verið eign- færður sem hækkar stofnverð og þar með innri leigu um ókomin ár. Þetta er viðhald sem rétt væri að gjaldfæra en ekki eignfæra. Þetta er einfaldlega bókhaldsbrella til að reyna að fegra ástandið í viðhaldsmálunum.“ Valgerður segir að bætt hafi verið við viðhaldsfé en það hafi ekki komið til af góðu. „Fossvogsskóli er nánast ónýtur. Miklar framkvæmdir standa yfir í Breiðholtsskóla vegna myglu. Selja- skóli er lokaður og þar verður ekki hægt að hefja kennslu í haust. Börn í Dal skóla fá samlokur fram til jóla því þar vantar mötuneyti. Nýjast er að í Gufunesi þarf að fá fleiri gáma- einingar því aðstaðan er óviðunandi. Það þarf að bæta við viðhaldsfé af illri nauðsyn.“ Vill Valgerður að í stað þess að skólastjórnendur þurfi sjálfir að ganga á eftir skoðun verði farið í markvissa úttekt og sýnatöku í skól- um og öðru húsnæði borgarinnar. Valgerður segir að hún hafi misst traust á upplýsingagjöf borgarinnar. „Við borgarfulltrúar lásum það í fréttum að staðan í Fossvogsskóla er mun verri en okkur var sagt. Það var nýbúið að kynna þetta fyrir okkur, þá var okkur sagt að allt væri í góðu og kennsla hæfist í haust. Þetta er í þriðja skiptið sem ég frétti það í fjölmiðlum að staðan er verri en á horfðist.“ Fær það hana til að spyrja sig hvað komi næst upp á yfirborðið. „Við vitum að frístundamiðstöðvar og leikskólar eru mjög víða í slæmu húsnæði. Það kæmi ekki á óvart að þessir fimm milljarðar í uppsöfnuðu viðhaldi séu bara toppurinn á ísjak- anum. Ég vil bara fá að vita hvað vandinn er stór og ráðast í að laga það sem laga þarf, “ segir Valgerður Sigurðardóttir. arib@frettabladid.is Ástand allra skólanna í borginni verði metið Uppsöfnuð viðhaldsþörf í skólum Reykjavíkurborgar nam þremur milljörð- um króna fyrir tveimur árum. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill að nú verði farið í markvissa úttekt og endurskoðun á fjármálaáætlun borgarinnar. Það kæmi ekki á óvart að þessir fimm milljarðar í uppsöfn- uðu viðhaldi séu bara toppurinn á ísjakanum. Valgerður Sigurðardóttir, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Valgerður Sigurðardóttir segir sér hafa komið á óvart að sjá í fjölmiðlum að Fossvogsskóli væri verr farinn en fyrst var talið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Krakkarnir á Laufásborg léku við hvern sinn fingur á sumarhátíð leikskólans í gær. Tónlistarmaðurinn Valgeir Guðjónsson f lutti þeim lög úr Fuglakantötu með ljóðum Jóhannesar úr Kötlum. Féll söngurinn í góðan jarðveg hjá börnunum jafnt sem fullorðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI EVRÓPA Leiðtogaráð ESB hefur til- nefnt Ursulu von der Leyen, þýska varnarmálaráðherrann, í embætti forseta framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins. Leiðtogarnir hafa átt erfitt með að koma sér saman um tilnefningu og gengið fram hjá meðal annars forsetaefni hægrif lokka- bandalagsins EPP, Manfred Weber. Ef þingið samþykkir verður Leyen fyrsta konan til að gegna embættinu. Weber mun í staðinn sækjast eftir því að verða forseti Evrópuþingsins sem þykir ólíklegt að henni takist. Fyrsta umferð atkvæðagreiðslunnar fer fram í dag. Sagði Donald Tusk, forseti leiðtogaráðsins, í gær að leiðtogarnir hefðu ákveðið að jafn- aðarmenn fengju sætið fyrri helming kjörtímabilsins. Sergei Stanishev þykir líklegur valkostur. Þá var einnig tilkynnt um að Christine Lagarde, sem nú stýrir Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, sé til- nefnd í embætti forseta Evrópska seðlabankans. – þea Þjóðverji í gegn um nálaraugað 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 A -3 A E C 2 3 5 A -3 9 B 0 2 3 5 A -3 8 7 4 2 3 5 A -3 7 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.