Fréttablaðið - 03.07.2019, Side 8
Harmleikur í Mumbai
Að minnsta kosti fimmtán fórust í gær þegar veggur hrundi vegna þess mikla monsúnregns sem fallið hefur á indversku borgina Mumbai.
Borgarlífið hefur verið í lamasessi undanfarna tvo daga vegna rigningarinnar. Hér má sjá björgunarstarfsfólk og björgunarstarfshund leita að
líkamsleifum sem og hverjum þeim sem gæti hafa lifað slysið af. Mikil f lóð hrella íbúa svæðisins einnig þessa dagana. NORDICPHOTOS/AFP
KÍNA Sérstök skrifstofa Kommún-
istaf lokks Kína í höfuðborginni
Peking um málefni Hong Kong og
Macau fordæmdi í gær áhlaup sem
mótmælendur í Hong Kong gerðu
á þinghús sjálfstjórnarhéraðsins á
mánudag. Fjöldi mótmælenda kom
sér þá inn í þinghúsið og vann spell-
virki á málverkum, húsgögnum og
öðru. Þá var kallað eftir því að yfir-
völd í borginni stilltu til friðar hið
fyrsta.
Mótmælaalda hefur riðið yfir
Hong Kong frá því í maí. Á áttunda
tug hafa særst í aðgerðum lögreglu
og rúmlega þrjátíu verið handtekin.
Mótmælin kviknuðu vegna frum-
varps um að leyfa skyldi framsal til
meginlands Kína en eftir að frum-
varpinu var stungið ofan í skúffu
hafa mótmælendur einkum beint
spjótum sínum að Carrie Lam,
æðsta stjórnanda Hong Kong, og
krafist afsagnar hennar.
Geng Shuang, upplýsingafulltrúi
hjá kínverska utanríkisráðuneyt-
inu, sagði áhlaupið á þinghúsið
hafa verið gróft lögbrot. Hann kall-
aði eftir því að Bandaríkin og ESB
fordæmdu það og bætti við að það
væri mikil hræsni fólgin í því að for-
dæma ekki gjörðir mótmælenda.
„Það er tvískinnungur að segjast
einungis styðja réttinn til frið-
samlegra mótmæla. Við vitum öll
hvernig lögreglan í Bandaríkjunum
og Evrópu tekur á of beldi og fram-
fylgir lögum,“ bætti Geng við. – þea
Vilja stilla til
friðar í Hong
Kong sem fyrst
Lögregla hefur beitt táragasi gegn
mótmælendum. NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN Skrifstofur Facebook í
hinum svokallaða Kísildal Banda-
ríkjanna voru rýmdar sem og
fjögur önnur nærliggjandi hús eftir
að sjálfvirkir skynjarar í póstrými
fyrirtækisins sýndu að snefilmagn
af saríngasi væru utan á sendingu
sem barst fyrirtækinu. Saríngas er
öf lugt taugaeitur sem hefur verið
notað í efnavopnaárásum.
Áhyggjurnar reyndust óþarfar að
lokum og sagði slökkviliðsstjórinn
Jon Johnston við Reuters að ítar-
legar prufur á svæðinu hafi leitt
í ljós að ekkert sarín væri þar að
finna. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti
sem ástand sem þetta myndast, en
sama skrifstofuhúsnæði var rýmt í
desember vegna sprengjuhótunar.
„Til þess að gæta fyllstu varúðar
rýmdum við næstu fjórar byggingar
og hófum ítarlega rannsókn í sam-
starfi við yfirvöld á svæðinu. Yfir-
völd hafa staðfest neikvæðar niður-
stöður og hafa húsin verið opnuð á
ný. Verklagsreglur okkar reyndust
góðar til þess að takmarka hættu
og tryggja öryggi starfsfólks,“ sagði
upplýsingafulltrúi hjá samfélags-
miðlarisanum. – þea
Óttuðust
sarínárás á
Facebook
Ekkert sarín. NORDICPHOTOS/AFP FRAKKLAND Breskir útgöngusinnar
og Evrópusinnar sem og katalónskir
sjálfstæðissinnar létu duglega í sér
heyra á fyrsta degi nýs Evrópuþings
þegar þingmenn komu saman í
Strassborg, Frakklandi, í gær í fyrsta
sinn frá því þeir náðu kjöri í lok maí.
Mótmæli hinna katalónsku sner-
ust um þá þrjá þingmenn sem ekki
hafa getað tekið sæti. Carles Puigde-
mont, fyrrverandi forseti héraðs-
stjórnarinnar, og Toni Comin,
fyrrverandi heilbrigðisráðherra
héraðsins, hafa ekki getað tekið
sæti þar sem þeir eru í sjálfskipaðri
útlegð í Brussel vegna ásakana um
uppreisn á Spáni.
Til þess að taka sæti þyrftu
Puigdemont og Comin að ferðast til
Madrídar og sverja spænsku stjórn-
arskránni hollustueið en hafa ekki
gert það vegna hættu á handtöku.
Jafnvel þótt þeir gætu farið beint til
Frakklands gætu þeir verið hand-
teknir. Spænska lögreglan hefði
heimild til þess á grundvelli sam-
komulags við Frakka sem gert var
árið 2002 samkvæmt katalónska
héraðsmiðlinum ACN.
Sá þriðji, fyrrverandi varafor-
setinn Oriol Junqueras, er aftur
á móti í gæsluvarðhaldi á meðan
hæstaréttardómarar ráða ráðum
sínum og reyna að komast að niður-
stöðu um hvort hann og ellefu aðrir
Katalónar hafi gerst sekir um sömu
glæpi, meðal annars uppreisn og
uppreisnaráróður, og þeir Comin
og Puigdemont.
Katalónskir sjálfstæðissinnar í
þingsalnum stilltu upp ljósmynd-
um af fjarverandi félögum sínum á
borð sín í þingsalnum í mótmæla-
skyni, en þeir álíta ásakanirnar pól-
itískar og Junqueras þar með pólit-
ískan fanga. Fyrir utan mótmæltu
hundruð Katalóna sem höfðu lagt
leið sína yfir Pýreneafjöllin. Matt
Carthy, írskur Evrópuþingmaður
fyrir hönd Sinn Féin, studdi við
bakið á Katalónunum og hafði BBC
eftir honum að grafið væri undan-
trúverðugleika þingsins með því að
ekki væri staðinn vörður um rétt-
indi katalónskra kjósenda.
Bresku útgöngusinnarnir í Brexit-
flokknum vöktu svo reiði Antonios
Tajani, fráfarandi forseta þingsins,
með mótmælum í þingsal.
Er Óður Beethovens til gleðinnar,
einkennislag Evrópusambandsins,
var spilað í þingsal stóðu Brexit-
f lokksmenn upp en sneru baki í
salinn. Nigel Farage, leiðtogi flokks-
ins, hafði fyrr lofað „skemmtilegri
ögrun“.
„Að rísa á fætur er spurning um
virðingu. Það þýðir ekki að þú sért
endilega sammála sjónarmiðum
Evrópusambandsins. Jafnvel þegar
þú hlýðir á þjóðsöng annars ríkis
áttu að rísa á fætur,“ sagði Tajani.
Og svo voru það Frjálslyndir
demókratar, breski f lokkurinn
sem hefur talað einna hæst gegn
útgöngunni. Flokksmenn klædd-
ust skærgulum bolum sem ýmist
stóð á „Stop Brexit“ eða „Bollocks
to Brexit“. thorgnyr@frettabladid.is
Mótmælt af krafti á fyrsta degi
Katalónskir sjálfstæðissinnar mótmæltu af krafti í hinni frönsku Strassborg í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Nýkjörnir Frjálslyndir demókratar. NORDICPHOTOS/AFP
Evrópuþingið kom
saman í fyrsta sinn frá
kosningum. Þrjá kata-
lónska þingmenn vant-
aði og lögðu hundruð
Katalóna leið sína til
Strassborgar að mót-
mæla meðferð á þeim.
Bretar buðu upp á sín
eigin mótmæli.
3 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
A
-5
D
7
C
2
3
5
A
-5
C
4
0
2
3
5
A
-5
B
0
4
2
3
5
A
-5
9
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K