Fréttablaðið - 03.07.2019, Page 10

Fréttablaðið - 03.07.2019, Page 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Draumsýn menntamála­ ráðherra með fjölmiðla­ frumvarpi sínu er sú að eitthvað lagist á ramm­ skökkum fjölmiðla­ markaði. Íslenskt efni í fjölmiðlum, hvort heldur frumsamið, þýtt, textað, táknmáls­ túlkað eða talsett, skiptir höfuðmáli til að viðhalda tungumálinu. Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Upplýstur og ábyrgur Sigmar Margir ráku upp stór augu þegar samfélagsrýnirinn og veitingamaðurinn fyrrverandi Sigmar Vilhjálmsson var ráðinn talsmaður FESK, nýstofnaðs félags svína-, eggja- og kjúkl- ingabænda. Þar á hann að „stuðla að upplýstri og ábyrgri umræðu“ um landbúnað. Sig- mar, sem hefur farið mikinn að undanförnu í gagnrýni sinni á þriðja orkupakkann, var á tíma- bili talinn ætla að snúa aftur í veitingabransann en nú er ljóst að það frestast um ótiltekinn tíma. Er því skrifað í skýin að Sigmar verði ofarlega, ef ekki efstur, á lista Miðf lokksins í næstu kosningum. Almennilegt hægri-vinstri Stjórnmálaáhugamenn fagna nú umræðunni um sykurskattinn. Loksins er komin umræða sem hægt er að setja á gamla, góða hægri-vinstri skalann. Hvort það sé hlutverk ríkisins að stýra neyslu borgaranna. Viðreisnar- og Sjálfstæðismenn efast en vinstrimenn fagna. Munurinn á stöðunni nú og áður er að nú er engin leið að vita hvernig málið endar. Það er þá hægt að lenda því með málamiðlun milli stjórnarf lokkanna eða leyfa þinginu að taka sjálfstæða ákvörðun. Það hverfur ekki því enginn fer að slíta ríkisstjórn til að spara tíkalla á kóki í dós. Nema einhver f lokkanna nenni í málþóf. arib@frettabladid.is RÚV og Google EKKERT BRUDL Gott í ferðalagið RibWorld Grísarif 500 g kr./500 g798kr./255 g398 Pik-Nik Kartöflustrá 255 g FORELDAÐ Aðeins að hita Úrræðaleysi stjórnmálamanna í mál-efnum einkarekinn fjölmiðla er algjört. Á meðan vex Ríkisútvarpið og dafnar með margra milljarða meðgjöf frá almenningi auk þess sem stofnunin er í bullandi samkeppni við einkamiðla um auglýsingatekjur í ójöfnum leik. Nýjasta dæmið um skilningsleysi stjórnmálamann- anna er svar ráðuneyta við fyrirspurn frá Píratanum Birni Leví Gunnarssyni sem spurði um kaup stofnana ríkisins á auglýsingum á erlendum samfélagsmiðlum. Fréttablaðið tók tölurnar saman og í ljós kom að dæmi eru um að útgjöld til slíks hafi ríflega tífaldast á árunum 2015-2018. „Stefnan var að efla íslenska fjölmiðla og þarna er sérstaklega verið að taka ákvörðun um að auglýsa ann- ars staðar. Tekjur flestra fjölmiðla eru í auglýsingasölu og þarna er verið að beina auglýsingatekjum annað,“ sagði Björn Leví. Í fjölmiðlafrumvarpi menntamálaráðherra þar sem gert er ráð fyrir að skipta 350 milljóna framlagi frá ríkinu milli einkamiðla er tækniþróun fjölmiðlamark- aðarins tekin fyrir. Þar segir að Ísland hafi ekki farið varhluta af þeim breytingum á rekstrarumhverfi sem átt hafa sér stað síðustu ár með aukinni tækniþróun og alþjóðavæðingu. Þar er einnig tekið fram að æ stærri hluti auglýsingatekna renni til erlendra samfélags- miðla og leitarvéla sem sé sjálfstætt vandamál. Það skýtur því skökku við að á meðan ráðherrann þykist skilja þann bráðavanda sem að íslenskum fjöl- miðlum steðjar snýr hún sér við og kaupir auglýsingar af þeim sömu og hún segir vera við það að ganga af íslenskum fjölmiðlamarkaði dauðum. Samkeppni íslenskra einkamiðla við erlend fyrir- tæki á borð við Google og Facebook er staðreynd. Henni væri hægt að taka fagnandi ef stjórnmálamenn löguðu lagaumhverfið að nútímanum, í stað þess að bjóða upp á miðjumoð á borð við það frumvarp sem nú liggur á borðinu. Af mörgu er að taka. Ein hugmynd er að leyfa aug- lýsingar á áfengi í íslenskum miðlum. Rökin fyrir banninu eru löngu fallin um sjálf sig. Áfengisauglýs- ingar er að finna úti um allt. Netið hefur orðið til þess að áfengisauglýsingar sjá allir, þótt þær séu bannaðar í dagblöðum. Þær eru í erlendum tímaritum sem flutt eru til landsins og seld í íslenskum bókabúðum. Þær eru á samfélagsmiðlum sem heyra ekki undir íslenska lögsögu en allir hafa aðgang að og svo í beinum sjón- varpsútsendingum, aðallega frá íþróttaleikjum. Á meðan stjórnmálamenn tala um mikilvægi fjöl- miðla á tyllidögum er beint framlag ríkisins til Ríkisút- varpsins um 4,7 milljarðar á ári. RÚV sækir svo um 2,3 milljarða til viðbótar með auglýsingasölu í samkeppni við einkareknu miðlana. Draumsýn menntamálaráð- herra með fjölmiðlafrumvarpi sínu er sú að eitthvað lagist á rammskökkum fjölmiðlamarkaði með því að ríkið leggi fram til einkamiðlanna það sem nemur um 5 prósentum af árlegri forgjöf Ríkisútvarpsins. Og svo auglýsir hún draumsýnina á Facebook. Í haust mun ég mæla fyrir frumvarpi um breyt-ingu á fjölmiðlalögum. Það frumvarp markar tímamót fyrir einkarekna fjölmiðla hér á landi sem með því geta fengið opinberan fjárstuðning vegna öflunar og miðlunar frétta og fréttatengds efnis. Ljóst er að síðustu ár hafa rekstrarforsendur einkarekinna fjölmiðla hér á landi versnað til muna. Margar ástæður eru fyrir þeirri þróun svo sem örar tæknibreytingar og minnkandi auglýsinga- tekjur fjölmiðla samhliða breyttri neysluhegðun. Fjölmiðlafrumvarpið gerir ráð fyrir tvíþættum stuðningi til þess að mæta þeirri þróun en með frumvarpinu er leitast við að Ísland skipi sér í hóp hinna Norðurlandanna og fleiri ríkja í Evrópu sem þegar styrkja einkarekna fjölmiðla. Fjölmiðlar gegna þýðingarmiklu hlutverki við miðlun upplýsinga og sem vettvangur umræðu og skoðanaskipta. Markmið þessarar aðgerðar er þannig bæði að efla fjölmiðlun hér á landi vegna mikilvægis hennar fyrir þróun lýðræðis í landinu og þróun tungumálsins. Fjölmiðlar eru lykilþátt- takendur í því sameiginlega hagsmunamáli okkar að efla íslenskuna og fá fólk til að fylgjast með sam- félagsumræðu á sínu eigin tungumáli. Íslenskt efni í fjölmiðlum, hvort heldur frumsamið, þýtt, textað, táknmálstúlkað eða talsett, skiptir höfuðmáli til að viðhalda tungumálinu. Við viljum skapa frjóan jarðveg fyrir fjölbreytta flóru fjölmiðla hér á landi. Fjölmiðlafrumvarpið byggir á ítarlegri undirbúningsvinnu og var unnið með aðkomu margra sérfræðinga, fulltrúa hags- munaaðila og annarra flokka. Með nýjum lögum verður til styrkjakerfi sem verður einfalt og fyrir- sjáanlegt. Ávinningur þess verður einnig styrkari ritstjórnir og aukið gagnsæi á fjölmiðlamarkaði. Við lifum á spennandi tímum sem einkennast af örum breytingum. Fjölmiðlar verða að hafa tækifæri til þess að mæta þeim breytingum og þróast með þeim. Nýtt fjölmiðlafrumvarp styður við grundvallar- starfsemi þeirra, öflun og miðlun vandaðra frétta og fréttatengds efnis. Framtíð fjölmiðlunar Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmála- ráðherra 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 A -4 9 B C 2 3 5 A -4 8 8 0 2 3 5 A -4 7 4 4 2 3 5 A -4 6 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.