Fréttablaðið - 03.07.2019, Side 11
Það er fullkomlega óásætt-
anlegt að ríkisstjórn þurfi
meira en tvö ár til að koma
innleiðingu af þessu tagi í
gegnum þingið. Ekki þurfi
frestinn til að vinna málið
betur heldur til að lægja
innanflokksöldur.Fyrir þremur árum var ég í hópi fólks sem stóð andspænis þeirri þungu ákvörðun að láta leiðir skilja með Sjálfstæðisf lokkn-
um. Ástæðan var fyrst og fremst sú
að okkur fannst að f lokkurinn væri
fastur í ákveðinni rörsýn. Útséð
væri um að hann gæti haft forystu
um að mæta þeim nýju áskorunum
21. aldar sem kalla á meiri þátt-
töku Íslands í fjölþjóðasamvinnu.
Við f undum einfaldlega ek k i
umburðarlyndi gagnvart frjáls-
lyndum skoðunum af því tagi. Það
hvarf laði þó aldrei að mér að eftir
þrjú ár ættum við eftir að horfa á
gamla félaga berast á banaspjót
vegna þeirra mála sem leiddu öðru
fremur til þess að frjálslynt fólk
víða af pólitíska litrófinu stofnaði
Viðreisn. Við blasa ein grimmustu
innanf lokksátök sem sögur fara af
í áratugi. Þeir leiðrétta mig kannski
sem þekkja betur til átakasögu
Alþýðubandalagsins og Sósíalista-
f lokksins á síðustu öld.
Hlutur ritstjóra Morgunblaðsins
Ritstjórar Morgunblaðsins, Davíð
Oddsson og Haraldur Johannessen,
hafa farið fyrir þeirri fylkingu sem
andvíg er innleiðingu þriðja orku-
pakkans. Þeir fullyrða að inn-
leiðingin brjóti gegn stjórnarskrá
og grafi undan fullveldi landsins.
Stærri geta pólitísk ágreinings-
efni varla orðið. Þá staðhæfa
ritstjórarnir að þingmenn sem
styðja málið eigi lítinn sem engan
stuðning í röðum almennra f lokks-
manna og forystufólks í f lokks-
félögum.
Athyglisvert er að ritstjórarnir
hafa kappkostað að lítillækka
r it ara og varafor mann Sjálf-
stæðisf lokksins sem hafa verið
öf lugir talsmenn innleiðingar og
alþjóðasamstarfs. Þær eru sagðar
svo óskýrar í hugsun, ungar og
óreyndar að engum hefði á árum
áður dottið í hug að fela slíku fólki
trúnaðarstörf af þessu tagi.
Þá spotta og hæða ritstjórarnir
formann Sjálfstæðisf lokksins með
því að benda í sífellu á að hann hafi
verið á móti málinu í byrjun en sé
því nú fylgjandi – af óskiljanlegum
ástæðum.
Hlutur Þórdísar Kolbrúnar,
Áslaugar Örnu og Björns
Bjarnasonar
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, varaformaður f lokksins,
og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
ritari hafa verið einarðar og mál-
efnalega mjög sterkar í röksemda-
færslu gegn staðhæfingum ritstjóra
Morgunblaðsins. Þegar nær dró
afgreiðslu málsins nutu þær einn-
ig öf lugs stuðnings Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar utanríkisráðherra.
Ég hef líka fylgst með kjarnyrt-
um málf lutningi Björns Bjarna-
sonar, fyrrum ráðherra. Hann
hefur með málefnalegum rökum
sýnt fram á að ekki stendur steinn
yfir steini í málf lutningi ritstjór-
anna. Innleiðingin stangist ekki
á við stjórnarskrá og ógni ekki
fullveldinu. Spurningar af því tagi
eigi við EES-samninginn í heild og
hafi verið til lykta leiddar þegar
hann var samþykktur fyrir aldar-
fjórðungi, þegar annar tveggja rit-
stjóranna gegndi einmitt embætti
forsætisráðherra.
En þessu málefnalega og þrótt-
mikla fólki hefur á hinn bóginn
ekki tekist að hrekja þær fullyrð-
ingar ritstjóra Morgunblaðsins
að þorri f lokksmanna og forystu-
manna f lokksfélaga standi eins og
klettur gegn þingmönnunum. Að
þingmenn Sjálfstæðisf lokksins
hafi ekki baklandið með sér í orku-
pakkamálinu. En það er einmitt sá
veruleiki sem veldur því að þessi
átök marka þáttaskil í stjórnmála-
sögunni.
Málalyktir í þessari lotu
Forystukonur Sjálfstæðisf lokksins
hafa sýnt að málefnalega standa
þær feti framar en margir þeir
karlar sem lengst hafa gegnt æðstu
forystuhlutverkum í f lokknum.
Ástæðuna fyrir skoðanaf lökti
formannsins sýnist mér leiða af
stöðu hans í þverklofnum f lokki.
Í byrjun umræðunnar vissi hann
að það var ekki stuðningur í bak-
landinu. Eftir framgöngu varafor-
manns, ritara og utanríkisráðherra
hefur hann talið að nægjanlegur
stuðningur væri kominn þannig
að honum væri óhætt að tala eins
og hjarta hans slær. Það virðist ekki
hafa verið rétt stöðumat.
Eins og Björn Bjarnason hefur
ítrekað bent á snúast spurningarn-
ar um stjórnarskrá og fullveldi um
EES-samninginn sjálfan en ekki
þetta afmarkaða orkupakkamál.
Þeir sem eru í forystu fyrir and-
stöðunni vita það mætavel. Þetta
mál er notað eða réttara sagt mis-
notað markvisst til að ná lengra.
Einmitt þess vegna eru átökin
svona hatrömm.
Þingmenn Sjálfstæðisf lokksins
munu samþykkja innleiðinguna í
ágústlok. En eftir stendur f lokkur
sem er klofinn í afstöðu til stærsta
og þýðingarmesta fjölþjóðasamn-
ings sem Ísland á aðild að. Þau átök
munu standa um mörg ókomin ár.
Ný tilefni verða fundin til að við-
halda átökunum um EES með til-
heyrandi þrýstingi. Ólíklegt er að
þingmenn Sjálfstæðisf lokksins
standist aftur slíkan þrýsting.
Mynda þarf nýja kjölfestu
í utanríkismálum
Á síðustu öld var Sjálfstæðis-
f lokkurinn óumdeilanlega kjöl-
festan þegar kom að utanríkispól-
itík landsins. Þetta eru því einhver
mestu málefnalegu hamskipti
sem orðið hafa í einum stjórn-
málaf lokki. Kjarni málsins er sá
að þingmenn Sjálfstæðisf lokksins
hafa ekki og munu ekki á næstu
árum hafa nægjanlegan stuðning
í baklandinu til þess að geta borið
ábyrgð í ríkisstjórn á framkvæmd
EES-samningsins. Það sjá allir.
Hvaða mál verður tekið í gíslingu
næst?
Það er fullkomlega óásættanlegt
að ríkisstjórn þurfi meira en tvö ár
til að koma innleiðingu af þessu
tagi í gegnum þingið. Ekki þurfi
frestinn til að vinna málið betur
heldur til að lægja innanf lokksöld-
ur. Hvorki þjóðin né atvinnulífið
getur búið við slíkt fimbulfamb og
óvissu. Til þess eru almannahags-
munir of miklir.
Markmiðið má heldur ek k i
einskorðast við það að verja það
sem við höfum. Hitt er ekki síður
mikilvægt að vera reiðubúin að
takast á við nýjar áskoranir í fjöl-
þjóðasamvinnu. Rétt eins og Sjálf-
stæðisf lokkurinn hafði burði til á
síðustu öld.
Formaðurinn er í vandræðum.
Afturhaldsöf lin í Sjálfstæðis-
f lokknum eru harður andstæðing-
ur. Nú, líkt og fyrir þremur árum og
allar götur síðan, standa þeir frjáls-
lyndu í f lokknum frammi fyrir því
að þurfa að kyngja pólitísku erindi
sínu til þess að friða baklandið í
þverklofnum f lokki – eða leita ein-
faldlega á önnur mið. Næstu kosn-
ingar þurfa að snúast um nauðsyn
þess að á Alþingi myndist meiri-
hluti sem getur tryggt nýja kjöl-
festu í utanríkismálum. Viðreisn
mun leggja sitt af mörkum til að
svo megi verða.
Ræður Sjálfstæðisflokkurinn ekki við EES?
Þorgerður
Katrín
Gunnarsdóttir
formaður
Viðreisnar
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 3 . J Ú L Í 2 0 1 9
0
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
5
A
-3
F
D
C
2
3
5
A
-3
E
A
0
2
3
5
A
-3
D
6
4
2
3
5
A
-3
C
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K