Fréttablaðið - 03.07.2019, Síða 11

Fréttablaðið - 03.07.2019, Síða 11
Það er fullkomlega óásætt- anlegt að ríkisstjórn þurfi meira en tvö ár til að koma innleiðingu af þessu tagi í gegnum þingið. Ekki þurfi frestinn til að vinna málið betur heldur til að lægja innanflokksöldur.Fyrir þremur árum var ég í hópi fólks sem stóð andspænis þeirri þungu ákvörðun að láta leiðir skilja með Sjálfstæðisf lokkn- um. Ástæðan var fyrst og fremst sú að okkur fannst að f lokkurinn væri fastur í ákveðinni rörsýn. Útséð væri um að hann gæti haft forystu um að mæta þeim nýju áskorunum 21. aldar sem kalla á meiri þátt- töku Íslands í fjölþjóðasamvinnu. Við f undum einfaldlega ek k i umburðarlyndi gagnvart frjáls- lyndum skoðunum af því tagi. Það hvarf laði þó aldrei að mér að eftir þrjú ár ættum við eftir að horfa á gamla félaga berast á banaspjót vegna þeirra mála sem leiddu öðru fremur til þess að frjálslynt fólk víða af pólitíska litrófinu stofnaði Viðreisn. Við blasa ein grimmustu innanf lokksátök sem sögur fara af í áratugi. Þeir leiðrétta mig kannski sem þekkja betur til átakasögu Alþýðubandalagsins og Sósíalista- f lokksins á síðustu öld. Hlutur ritstjóra Morgunblaðsins Ritstjórar Morgunblaðsins, Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen, hafa farið fyrir þeirri fylkingu sem andvíg er innleiðingu þriðja orku- pakkans. Þeir fullyrða að inn- leiðingin brjóti gegn stjórnarskrá og grafi undan fullveldi landsins. Stærri geta pólitísk ágreinings- efni varla orðið. Þá staðhæfa ritstjórarnir að þingmenn sem styðja málið eigi lítinn sem engan stuðning í röðum almennra f lokks- manna og forystufólks í f lokks- félögum. Athyglisvert er að ritstjórarnir hafa kappkostað að lítillækka r it ara og varafor mann Sjálf- stæðisf lokksins sem hafa verið öf lugir talsmenn innleiðingar og alþjóðasamstarfs. Þær eru sagðar svo óskýrar í hugsun, ungar og óreyndar að engum hefði á árum áður dottið í hug að fela slíku fólki trúnaðarstörf af þessu tagi. Þá spotta og hæða ritstjórarnir formann Sjálfstæðisf lokksins með því að benda í sífellu á að hann hafi verið á móti málinu í byrjun en sé því nú fylgjandi – af óskiljanlegum ástæðum. Hlutur Þórdísar Kolbrúnar, Áslaugar Örnu og Björns Bjarnasonar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir, varaformaður f lokksins, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ritari hafa verið einarðar og mál- efnalega mjög sterkar í röksemda- færslu gegn staðhæfingum ritstjóra Morgunblaðsins. Þegar nær dró afgreiðslu málsins nutu þær einn- ig öf lugs stuðnings Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra. Ég hef líka fylgst með kjarnyrt- um málf lutningi Björns Bjarna- sonar, fyrrum ráðherra. Hann hefur með málefnalegum rökum sýnt fram á að ekki stendur steinn yfir steini í málf lutningi ritstjór- anna. Innleiðingin stangist ekki á við stjórnarskrá og ógni ekki fullveldinu. Spurningar af því tagi eigi við EES-samninginn í heild og hafi verið til lykta leiddar þegar hann var samþykktur fyrir aldar- fjórðungi, þegar annar tveggja rit- stjóranna gegndi einmitt embætti forsætisráðherra. En þessu málefnalega og þrótt- mikla fólki hefur á hinn bóginn ekki tekist að hrekja þær fullyrð- ingar ritstjóra Morgunblaðsins að þorri f lokksmanna og forystu- manna f lokksfélaga standi eins og klettur gegn þingmönnunum. Að þingmenn Sjálfstæðisf lokksins hafi ekki baklandið með sér í orku- pakkamálinu. En það er einmitt sá veruleiki sem veldur því að þessi átök marka þáttaskil í stjórnmála- sögunni. Málalyktir í þessari lotu Forystukonur Sjálfstæðisf lokksins hafa sýnt að málefnalega standa þær feti framar en margir þeir karlar sem lengst hafa gegnt æðstu forystuhlutverkum í f lokknum. Ástæðuna fyrir skoðanaf lökti formannsins sýnist mér leiða af stöðu hans í þverklofnum f lokki. Í byrjun umræðunnar vissi hann að það var ekki stuðningur í bak- landinu. Eftir framgöngu varafor- manns, ritara og utanríkisráðherra hefur hann talið að nægjanlegur stuðningur væri kominn þannig að honum væri óhætt að tala eins og hjarta hans slær. Það virðist ekki hafa verið rétt stöðumat. Eins og Björn Bjarnason hefur ítrekað bent á snúast spurningarn- ar um stjórnarskrá og fullveldi um EES-samninginn sjálfan en ekki þetta afmarkaða orkupakkamál. Þeir sem eru í forystu fyrir and- stöðunni vita það mætavel. Þetta mál er notað eða réttara sagt mis- notað markvisst til að ná lengra. Einmitt þess vegna eru átökin svona hatrömm. Þingmenn Sjálfstæðisf lokksins munu samþykkja innleiðinguna í ágústlok. En eftir stendur f lokkur sem er klofinn í afstöðu til stærsta og þýðingarmesta fjölþjóðasamn- ings sem Ísland á aðild að. Þau átök munu standa um mörg ókomin ár. Ný tilefni verða fundin til að við- halda átökunum um EES með til- heyrandi þrýstingi. Ólíklegt er að þingmenn Sjálfstæðisf lokksins standist aftur slíkan þrýsting. Mynda þarf nýja kjölfestu í utanríkismálum Á síðustu öld var Sjálfstæðis- f lokkurinn óumdeilanlega kjöl- festan þegar kom að utanríkispól- itík landsins. Þetta eru því einhver mestu málefnalegu hamskipti sem orðið hafa í einum stjórn- málaf lokki. Kjarni málsins er sá að þingmenn Sjálfstæðisf lokksins hafa ekki og munu ekki á næstu árum hafa nægjanlegan stuðning í baklandinu til þess að geta borið ábyrgð í ríkisstjórn á framkvæmd EES-samningsins. Það sjá allir. Hvaða mál verður tekið í gíslingu næst? Það er fullkomlega óásættanlegt að ríkisstjórn þurfi meira en tvö ár til að koma innleiðingu af þessu tagi í gegnum þingið. Ekki þurfi frestinn til að vinna málið betur heldur til að lægja innanf lokksöld- ur. Hvorki þjóðin né atvinnulífið getur búið við slíkt fimbulfamb og óvissu. Til þess eru almannahags- munir of miklir. Markmiðið má heldur ek k i einskorðast við það að verja það sem við höfum. Hitt er ekki síður mikilvægt að vera reiðubúin að takast á við nýjar áskoranir í fjöl- þjóðasamvinnu. Rétt eins og Sjálf- stæðisf lokkurinn hafði burði til á síðustu öld. Formaðurinn er í vandræðum. Afturhaldsöf lin í Sjálfstæðis- f lokknum eru harður andstæðing- ur. Nú, líkt og fyrir þremur árum og allar götur síðan, standa þeir frjáls- lyndu í f lokknum frammi fyrir því að þurfa að kyngja pólitísku erindi sínu til þess að friða baklandið í þverklofnum f lokki – eða leita ein- faldlega á önnur mið. Næstu kosn- ingar þurfa að snúast um nauðsyn þess að á Alþingi myndist meiri- hluti sem getur tryggt nýja kjöl- festu í utanríkismálum. Viðreisn mun leggja sitt af mörkum til að svo megi verða. Ræður Sjálfstæðisflokkurinn ekki við EES? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 0 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 5 A -3 F D C 2 3 5 A -3 E A 0 2 3 5 A -3 D 6 4 2 3 5 A -3 C 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.