Fréttablaðið - 03.07.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 03.07.2019, Blaðsíða 14
MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Eimskip telur að starfsmaður Samkeppniseftirlitsins sem hefur annast stjórnsýslurann- sókn á hendur félaginu vegna meintra samkeppnisbrota þess hafi farið langt út fyrir hlutverk sitt og tekið sér lögregluvald með ólögmætum hætti með því að bera á sama tíma hitann og þungann af lögreglurannsókn á hendur núverandi og fyrrverandi stjórnendum. Flutningarisinn telur að fyrir hendi séu aðstæður sem séu til þess fallnar að draga óhlutdrægni starfsmanns eftirlitsins með réttu í efa. Þá telur Eimskip að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftir- litsins, sé vanhæfur í málinu enda hafi honum verið kunnugt um það að starfsmaður eftirlitsins hafi í reynd annast sakamálarannsóknina í trássi við lög án þess að aðhafast nokkuð til þess að stöðva hana. Þetta kemur fram í kröfu sem Eimskip lagði fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun vikunnar þar sem þess er farið á leit að rannsókn Samkeppniseftirlitsins á meintum brotum félagsins, sem hefur staðið yfir í tæp tíu ár, verði hætt. Eftirlitið rannsakar hvort Eimskip og Samskip, auk dótturfélaga þeirra, hafi haft með sér ólögmætt samráð frá 2008 til 2013 en það er frummat þess að félögin hafi haft með sér samráð við breytingar á siglinga- kerfum og flutningaleiðum sem hafi falist í að draga úr framboði og skapa þannig skilyrði til þess að viðhalda eða hækka verð til viðskiptavina. Á sama tíma hafa núverandi og fyrrverandi stjórnendur félaganna, þar á meðal Gylfi Sigfússon, fyrr- verandi forstjóri Eimskips, haft rétt- arstöðu sakbornings við rannsókn héraðssaksóknara sem snýr að hluta til að sömu sakarefnum en eftirlitið kærði umrædda stjórnendur til sak- sóknara 2014. Samkvæmt lögum er lögreglu, en ekki eftirlitsstjórnvaldi, falið að rannsaka brot einstaklinga gegn samkeppnislögum. Í kröfu Eimskips segir að málsat- vik sýni að sá starfsmaður eftirlitsins sem hafi haft umsjón með stjórn- sýslurannsókninni hafi samhliða í reynd annast lögreglurannsókn á hendur starfsmönnum Eimskips með sekt þeirra að leiðarljósi. Slíkt leiði til þess að hann sé vanhæfur í málinu og rannsóknin ólögmæt. Þá er byggt á því að yfirheyrsla yfir Gylfa, sem fór fram í maí í fyrra, hafi í raun verið í höndum starfsmanns Samkeppniseftirlitsins og Aldísar Hilmarsdóttur sem hefur starfað fyrir eftirlitið að rannsókn málsins. „Ljóst er að það fer í bága við lög, enda er það starfsmanna héraðssak- sóknara að hafa með höndum slíka rannsóknaraðgerð, en ekki [Sam- keppniseftirlitsins],“ segir í kröfu Eimskips.  – kij Sakaður um að taka sér lögregluvald – MEÐ ÞÉR Í SUMAR ÞÚ GETUR LESIÐ BLAÐ DAGSINS Á FRETTABLADID.IS OG Í FRÉTTABLAÐS APPINU, HVAR SEM ÞÚ ERT Í SUMAR! Ky n n i s fe r ði r h a f a stefnt Isavia vegna þeirrar ákvörðunar ríkisfyrirtækisins að stöðva síðasta sumar tímabundið gjald- töku á ytri rútustæðum við flugstöð Leifs Eiríkssonar. Rúturisinn krefst þess að greiðslur sínar til Isavia verði lækkaðar enda hafi ákvörðun fyrirtækisins, sem var tekin að kröfu Samkeppniseftirlitsins, raskað sam- keppni þeirra rútufyrirtækja sem hafa með höndum farþegaflutninga til og frá flugvellinum. „Við töldum eðlilegt að í ljósi þess að Isavia hóf ekki gjaldtöku á fjar- stæðunum fyrr en í nóvember í fyrra að það ætti að taka mið af því í okkar greiðslum til Isavia,“ segir Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, í samtali við Markað- inn. Ríkisfyrirtækið hafi hins vegar ekki viljað ljá máls á því. Málið verður tekið fyrir í héraðs- dómi í byrjun septembermánaðar. Sem kunnugt er tók Samkeppnis- eftirlitið bráðabirgðaákvörðun í júlí í fyrra þar sem Isavia var gert að stöðva tímabundið gjaldtöku á fjar- stæðum við flugstöðina. Umrædd gjaldtaka hafði hafist í mars fyrr um árið í framhaldi af útboði um nýtingu á stæðum við bygginguna, svonefndum nærstæðum, en Kynn- isferðir og Hópbílar áttu besta boðið. Ákvörðun Samkeppniseftirlits- ins var tekin í kjölfar kvörtunar keppinautarins Gray Line, sem tók jafnframt þátt í útboðinu, en rútu- fyrirtækið taldi að gjaldtaka Isavia á fjarstæðunum hefði falið í sér óheimila skattheimtu. Á seinni stigum málsins lýsti Samkeppniseftirlitið því þó yfir að Isavia væri skylt að halda gjald- tökunni áfram með breyttu verðlagi og tók áfrýjunarnefnd samkeppnis- mála undir það sjónarmið í úrskurði sínum síðasta haust. Í byrjun nóv- ember kynnti Isavia svo nýja gjald- skrá fyrir fjarstæðin sem gildir þar til deilan hefur endanlega verið leidd til lykta af hálfu eftirlitsins. Björn segir að í forsendum áður- nefnds útboðs frá 2017 hafi komið fram að gjaldtaka myndi hefjast á fjarstæðunum á sama tíma og nýir samningar vegna nærstæðanna tækju gildi. „Gray Line kærði gjald- tökuna til Samkeppniseftirlitsins sem tók svo bráðabirgðaákvörðun í júlí árið 2018 en Isavia túlkaði niður- stöðu eftirlitsins þannig að fyrirtæk- inu væri gjaldtakan óheimil. Isavia hætti því gjaldtökunni á fjarstæð- unum í júlí og alveg fram í nóvem- ber. Við höfum síðan upplýsingar um að fyrirtækið hafi ekki gengið á eftir því að fá greiðslur frá því í mars eða alveg frá því að nýja gjaldskráin tók gildi,“ nefnir Björn. Stjórnendur Kynnisferða hafi því talið eðlilegt að tekið yrði tillit til þessara atvika í samningum sínum við Isavia og greiðslur til ríkisfyrir- tækisins yrðu lækkaðar. Forsvarsmenn rúturisans hafa bent á að ákvörðun Isavia um að stöðva gjaldtökuna hafi leitt til mis- mununar og röskunar á samkeppni gagnvart þeim rútufyrirtækjum sem unnu útboðið 2017 og fengu þannig aðgang að nærstæðunum. Ákvörð- unin hafi gert það að verkum að þau fyrirtæki sem stundi fólksflutninga til og frá Keflavíkurflugvelli og nýti eingöngu fjarstæðin hafi ekki þurft að greiða gjald á meðan bráða- birgðaákvörðunin hafi verið í gildi en á sama tíma hafi þau fyrirtæki sem nýti nærstæðin, Kynnisferðir og Hópbílar, þurft að greiða Isavia í samræmi við útboðsskilmálana. „Við teljum að við hefðum átt að fá einhverja umbun eins og önnur fyrirtæki sem voru klárlega í sam- keppni við okkur um þessi fjar- stæði,“ segir Björn. „Isavia hefur ekki viljað taka tillit til þess og fara í viðræður við okkur um lækkun á greiðslunum fyrir þetta tímabil og því brugðum við á það ráð að stefna fyrirtækinu og láta þá dómstóla skera úr um það.“ kristinningi@frettabladid.is Stefna Isavia og vilja lægri greiðslur  Kynnisferðir vilja að greiðslur þeirra til Isavia verði lækkaðar vegna ákvörð- unar ríkisfyrirtækisins um að stöðva tímabundið gjaldtöku á fjarstæðum við Keflavíkurflugvöll. Hafi leitt til mismununar og röskunar á samkeppni.  Mikið hefur verið deilt um gjaldtöku Isavia á bílastæðum við flugstöð Leifs Eiríkssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Björn Ragnars- son, fram- kvæmdastjóri Kynnisferða. Bandaríski vogunarsjóðurinn Taconic Capital, sem fer núna með sextán prósenta hlut í Arion banka, mun kaupa tæplega helminginn af tuttugu prósenta hlut Kaupþings í bankanum en eignar- haldsfélagið er nú að ganga frá sölu á öllum bréfum sínum í Arion banka, líklega strax í þessari viku. Eftir kaupin verður Taconic, sem á jafn- framt um 48 prósenta hlut í Kaup- þingi, stærsti eigandi Arion banka með í kringum fjórðungshlut. Aðrir helstu kaupendur að hlut Kaupþings í Arion banka, samkvæmt heimildum Markaðarins, eru fjárfest- ingafélagið Stoðir, sem á fyrir tæplega fimm prósenta hlut, og Lífeyrissjóður verslunarmanna (LV) en sjóðurinn átti í árslok 2018 aðeins um 0,4 pró- senta hlut í bankanum. Samkvæmt fyrirliggjandi sam- komulagi munu viðskiptin, en það eru Fossar markaðir sem eru söluráð- gjafar Kaupþings, fara fram á geng- inu 75,5 krónur á hlut en við lokun markaða í gær stóð hlutabréfaverðið í 75,9 krónum. Auk Taconic, Stoða og LV munu einnig aðrir lífeyrissjóðir ásamt innlendum sjóðastýringar- félögum, sem eru nú fyrir í hluthafahópi Arion, kaupa bréf Kaupþings. Kaupverðið á tuttugu prósenta hlut Kaupþings mun því nema samtals um 27,4 milljörðum. Stór hluti þeirrar fjárhæðar fellur í skaut ríkissjóðs á grundvelli afkomuskipta- samnings sem var á meðal þeirra stöðugleikaskilyrða sem Kaupþing þurfti að u n d i r g a n g a s t við samþykkt n auð a s a m n- inga í árslok 2015. Beðið er nú eftir því, samkvæmt heimildum Markaðarins, að stað- festing fáist frá fjármálaráðuneyt- inu um að ríkið ætli ekki að stíga inn í viðskiptin og nýta sér forkaupsrétt sinn. Sem kunnugt er hafa stjórnvöld forkaupsrétt á öllum hlutabréfum Kaupþings ef til stendur að selja þau á genginu 0,8 eða lægra miðað við eigið fé Arion banka. Salan á tutt- ugu prósenta hlut Kaupþings mun nú fara fram á gengi sem jafngildir 0,73 miðað við eigið fé bankans í lok fyrsta ársfjórðungs. Samkvæmt heimildum Mark- aðarins var búið að ganga frá sam- komulagi við fjárfesta um kaup á fimmtán prósenta hlut Kaupþings í Arion banka undir lok síðasta mán- aðar. Ekki tókst hins vegar þá að ljúka sölunni en regluvörður Arion banka, að sögn kunnugra, gerði þá athugasemdir við að Kaup- þing, sem er með fulltrúa í stjórn bankans, ætti við- skipti með bréf í félaginu á sama tíma og ráðning á nýjum bankastjóra Arion væri á lokametr- unum. Í kjölfarið ákvað Kaupþing síðan að bjóða allan hlut sinn í bankanum til sölu. – hae Taconic að auka hlut sinn í Arion um helming  27,4 milljarðar er kaupverðið á 20 prósenta hlut Kaupþings. Keith Magliana stýrir fjárfest- ingum Taconic á Íslandi. 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN 0 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 A -5 8 8 C 2 3 5 A -5 7 5 0 2 3 5 A -5 6 1 4 2 3 5 A -5 4 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.