Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.07.2019, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 03.07.2019, Qupperneq 18
Tímamót eru í rekstri Bláa Lónsins. Að baki eru miklar fjárfestingar á tæpum fimm árum og óhemjumikill vöxtur.Grímur Sæmundsen, stofnandi og forstjóri fyrirtækisins, segir að nú sé verið að breyta um áherslu í rekstrinum. Verið sé að fara úr fjárfestingarfasa í almennan rekstur. Sjónum verði beint að tæki- færum til að hagræða og tryggja að uppbygging síðustu ára verði arðbær til framtíðar. Það vekur athygli að frumkvöðull- inn átti lítinn hlut í Bláa Lóninu við stofnun og keypti megnið af því sem hann á á árunum 2003-2005. Nánar verður fjallað um það á öðrum stað í viðtalinu. Bláa Lónið hefur fjárfest fyrir um 93 milljónir evra, jafnvirði 13 milljarða króna, á árunum 2014 til 2018 í innviðum. Meðal helstu fjár- festinga má nefna uppbyggingu fimm stjörnu hótelsins The Retreat sem opnaði fyrir ári, ásamt Retreat Spa og veitingastaðnum Moss, tvö- földun á stærð núverandi baðlóns auk þvottahúss, geymsluhúsnæðis og fjölbýlishúss fyrir starfsmenn í Grindavík. Þrátt fyrir að fyrirtækið hafi fjár- fest ríkulega á umliðnum árum var eiginfjárhlutfallið 56 prósent við árslok 2018 en hlutafé var ekki aukið til að standa straum af upp- byggingunni. „Reksturinn er einkar arðbær. Hagnaðarhlutfall fyrir fjármagns- liði og afskriftir, nam 33 prósentum í fyrra. Það hefur gert okkur kleift að ráðast í þessa uppbyggingu án þess að safna skuldum. Eftir fjármála- hrunið höfum við lagt áherslu á að vera með mikið eigið fé og sterka lausafjárstöðu,“ segir Grímur. Það er með ólíkindum að uppbygg- ingin sé fjármögnuð að mestu með sjóðstreymi. „Já, það segir meira en mörg orð um arðbærni rekstrarins. Ef við berum t.a.m. rekstur Bláa Lónsins saman við öflug framleiðslufyrir- tæki í útflutningi sem skipa sess í hjarta þjóðarinnar er hagnaðar- hlutfall þeirra fyrir fjármagnsliði og afskriftir um 15-20 prósent. Það kemur mörgum á óvart hve fjölþættur rekstur Bláa Lónsins er. Við rekum til dæmis einn stærsta veitingastað landsins sem velti um fjórum milljörðum króna í fyrra. Ég veit ekki um marga veitingastaði sem eru jafn umsvifamiklir og það á einum og sama staðnum en við rekum okkar veitingastaði alla við Bláa Lónið. Að sama skapi seldum við húð- vörur fyrir 1,5 milljarða króna í fyrra sem eitt og sér myndi teljast nokkuð gott.“ Tekjurnar sjöfölduðust 2010-2018 Velta Bláa lónsins var 123 milljónir evra, jafnvirði 17 milljarða króna, í fyrra. Tekjurnar sjöfölduðust á árunum 2010 til 2018. Fyrirtækið hagnaðist um 26 milljónir evra, jafnvirði 3,7 milljarða króna í fyrra. Hluthafar munu fá 30 milljónir evra eða um 4,3 milljarða króna í arð. Það er næstum því tvöföldun á milli ára en arðgreiðslur námu 16 milljónum evra í fyrra. Skattspor Bláa Lónsins nam rétt um fimm milljörðum króna á síðasta ári. Það hefur vaxið mikið á síðustu árum en það var til dæmis rúmlega einn milljarður króna árið 2014. Félagið er með hæstu greiðendum opinberra gjalda á Íslandi. Er verkefnið fram undan að beisla þennan vöxt? „Það þarf annars vegar að hagræða í rekstri eftir tímabil sem hefur ein- kennst af miklum vexti og hins vegar að tryggja að uppbyggingin sem ráðist var í skili arðbærum rekstri til framtíðar. Eins og ég nefndi var hlutfall hagn- aðar fyrir fjármagnsliði 33 prósent í fyrra en það hefur alla jafna verið 38-40 prósent. Stefnt er að því að koma því í sama horf. Við þurfum því að hagræða í rekstrinum. Um 60 prósent af kostnaði fyrir- tækisins eru launagreiðslur og 40 prósent er annar kostnaður. Það eru tækifæri til hagræðingar á öllum sviðum félagsins enda voru áherslur aðrar á þessu mikla vaxtarskeiði. Starfsmenn voru við lok síðasta árs 874 í 726 stöðugildum frá 42 löndum. Við munum styrkja verk- ferla sem stuðla að aga í rekstrinum. Við höfum sömuleiðis fjárfest ríku- lega í upplýsingatækni og stafrænni þróun. Það mun skila sér í aukinni skilvirkni.“ Grímur segist líta á Bláa Lónið sem 27 ára gamalt frumkvöðlafyrirtæki (e. startup). „Við erum alltaf að þróa reksturinn og skoða nýjar hugmynd- ir,“ segir hann. National Geographic útnefndi Bláa Lónið eitt af 25 undrum ver- aldar vegna einstakrar virkni jarð- sjávarins en hann er ríkur af kísli, þörungum og steinefnum. Hann fellur til við vinnslu jarðvarma- orkuvers HS Orku í Svartsengi. Með þessari nýtingu breytir Bláa Lónið því sem áður var skilgreint sem hrakstraumur í verðmætan auð- lindastraum. „Þegar reksturinn fór að ganga vel mátti heyra á fólki að hver sem er hefði getað náð góðum árangri í rekstri á baðstað í þessu umhverfi. Það er mikil einföldun. Það tók okkur langan tíma að átta okkur á þessari einstöku upplifun og virkni jarðsjávarins sem ætti sér engan líka á heimsvísu. Það var þá sem við hófum meðal annars að verðleggja upplifunina miðað við einstök gæði hennar. Eftir hrun lögðum við aukna áherslu á ferðaþjónustuþátt starf- seminnar. Fyrir hrun höfðum við gert tilraunir til að fara í útrás með húðvörurnar en urðum að leggja þær áætlanir til hliðar til að geta tekist á við þær aðstæður sem þá sköpuðust. Í því samhengi er rétt að vekja athygli á því að engin fjár- málastofnun tapaði krónu á okkur í hruninu. Áherslan á lækningastarfsemina fór minnkandi en við drógum ekkert af okkur hvað varðar vísindarann- sóknir. Margir átta sig ekki á hve mikil vísindastarfsemi er stunduð í Bláa Lóninu en fyrirtækið ver að meðaltali um 20 prósentum af veltu húðvara í rannsóknir og þróun ár hvert. Það er til að auka þekkingu okkar á lífríki jarðsjávarins og til að skapa nýja möguleika hvað varðar þróun húðvaranna okkar.“ Vekja sofandi risa Þú hefur kallað húðvörurnar sof- andi risa. „Já. Núna er miklu uppbyggingar- tímabili lokið. Bláa Lónið hefur ávallt haft öf lugum starfsmanna- hópi á að skipa og þessi hópur undir forystu öf lugra stjórnenda sinnir nú daglegum rekstri fyrirtækisins. Þetta gerir mér kleift að beina kröft- um mínum í að skoða þau tækifæri sem felast í að vekja þennan risa. Við munum til að mynda funda með erlendum ráðgjöfum í dag [mánu- dag] sem eru að greina með hvaða hætti best sé að haga þeirri vinnu. Tíminn hefur unnið með okkur. Nú er vörumerkið margfalt þekkt- ara og sterkara en nokkru sinni fyrr. Auk þess stöndum við mjög vel að vígi fjárhagslega til að hefja sóknina.“ Hvað fékk ykkur til að trúa á tæki- færið að þjónusta fágætisferðamenn í ljósi þess að þið hafið fjárfest í Skipt um gír eftir hraða uppbyggingu Bláa Lónið fjárfesti fyrir 13 milljarða króna á fimm árum í innviðum án þess að safna skuldum eða auka hlutafé. Grímur Sæmund- sen forstjóri segir að nú verði áhersla lögð á almennan rekstur. Horft er til þess að hefja umfangsmikinn útflutning á húðvörum. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, er bjartsýnn á ferðaþjónustu á Íslandi en hefur engu að síður áhyggjur af framboði á flugsætum til landsins til skemmri tíma litið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Psoriasissjúklingar fá frítt í lækningalind Bláa Lónið starfrækir lækninga- lind fyrir psoriasissjúklinga þeim að kostnaðarlausu og án opinberra niðurgreiðslna. „Við vorum með samning við Sjúkratryggingar á sínum tíma. Framan af fengum við greiddar um 50 milljónir króna á ári fyrir að veita meðferðarþjónustu sem var langt undir kostnaðar- verði. Eins og svo oft hefur verið þurfti að skera niður kostnað til heilbrigðisþjónustu og lækka átti greiðsluna til okkar um helming. Við fengum greiddar 25 milljónir króna í eitt eða tvö ár en þá gekk ég á fund Kristjáns Júlíussonar, þáverandi heilbrigðisráðherra, og bauð honum að félagið myndi sinna þessari þjónustu endur- gjaldslaust og þannig leggja sitt af mörkum til samfélagsins sem hann tók fagnandi. Við höfum sinnt þessari meðferðarþjónustu endurgjaldslaust síðan,“ segir Grímur. Í fyrra komu 175 sjúklingar í 2.492 skipti. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN 0 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 A -6 7 5 C 2 3 5 A -6 6 2 0 2 3 5 A -6 4 E 4 2 3 5 A -6 3 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.