Fréttablaðið - 03.07.2019, Síða 24
Núna sjáum við
mikil tækifæri fyrir
heildverslanir og rótgróin
fyrirtæki sem geta sparað
mikinn kostnað og ein-
faldað reksturinn með því
að nýta sér miðlægan lager
Egill Fannar Halldórs-son er annar af tveimur stof nendu m Gor illa vöruhús sem tekur á móti vörum, hýsir lager, afgreiðir og dreifir pönt-
unum fyrir 30 íslenskar netversl-
anir og heildsölur. Fyrirtækið var
stofnað fyrir tæpu ári en það hóf
nýlega samstarf við TVG Zimsen í
nýju lagerhúsnæði í Vatnagörðum.
Hvernig er morgunrútínan þín?
Morgnarnir hjá mér eru alveg
heilagir. Ég vakna alla morgna
klukkan sex og gef mér um það bil
klukkutíma til þess að lesa og borða
stóran og prótínríkan morgunmat.
Klukkan sjö mæti ég svo í ræktina
þar sem ég æfi í 60-90 mínútur og fer
í heitan og kaldan pott. Það er ekki
hægt að leggja betri grunn að deg-
inum! Eftir æfingu fer ég út að labba
með gömlu konuna mína (hundinn
Bellu) áður en við fáum okkur svo
að borða. Ég mæti síðan niður í
Gorilla vöruhús á milli 10 og 10.30.
Hver eru helstu áhugamálin?
Mér finnst alveg æðislegt að
ferðast um og skoða heiminn
okkar – hvort sem það er hér heima
eða erlendis. Ég kann rosalega vel
við mig á faraldsfæti, svo vel að ef
það væri ekki fyrir hina ástríðuna
mína, sem er að reka fyrirtækin
okkar hérna heima, þá væri ég lík-
legast ekki hér, heldur með bakpoka
á stanslausu ferðalagi um heiminn.
Hverjar hafa verið helstu áskor-
anirnar í rekstrinum síðustu mán-
uði?
Gorilla vöruhús hóf náttúrulega
starfsemi fyrir bara rétt tæpu ári
svo síðustu 11 mánuðir hafa verið
vægast sagt lærdómsríkir. Okkar
helsta verkefni hingað til hefur ein-
faldlega verið að læra inn á þennan
bransa og hvernig má hýsa og
afgreiða vörur á sem bestan hátt.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
á síðustu misserum en meðal ann-
ars höfum við náð að afgreiða pant-
anir til viðskiptavina mun hraðar
og gert þjónustuna ódýrari. En að
byggja upp vöruhús frá grunni sem
hýsir og þjónustar á fjórða tug versl-
ana daglega er ekkert grín – sér-
staklega með það í huga að ég hafði
aldrei stigið fæti inn á lager fyrr en
við opnuðum – en í dag erum við
ótrúlega ánægðir með þann mikla
árangur sem fyrirtækið hefur náð á
þessum stutta tíma.
Hafið þið fundið fyrir vexti í net-
verslun frá því að fyrirtækið var
stofnað?
Alveg pottþétt. Það liggur í
augum uppi að netverslun hér
heima eins og annars staðar er á
blússandi siglingu og allt umhverfi
í kringum verslun almennt er að
breytast. Það eina sem við sjáum
svart á hvítu er að okkar listi af við-
skiptavinum er að stækka hratt og
hjá f lestum er reksturinn á góðri
leið. Við erum bæði að taka á móti
miklu af nýjum verslunum og rót-
grónum fyrirtækjum sem hafa verið
í rekstri í mörg ár.
Okkar aðalverkefni er og hefur
alltaf verið að styðja við bakið á
þessum verslunum og aðstoða þær
við að veita betri þjónustu og vera
samkeppnishæfar við erlenda risa
sem eiga mjög stóran hluta af mark-
aðinum hér heima.
Hvernig sjáið þið fyrir ykkur að
markaðurinn muni þróast á næstu
árum?
Ég held að tíminn einn muni leiða
það í ljós hvernig neyslumynstur
okkar breytist nákvæmlega. En það
er alveg klárt að verslun mun bara
halda áfram að færast yfir á net og
í snjalltæki – og það á við um allt,
alveg sama hvort það eru almennar
neysluvörur eins og fatnaður, mat-
væli, raftæki og þess háttar eða hús-
gögn, bílar og dýrari munir.
Fleiri lausnir og ýmsar uppfærsl-
ur á þjónustu okkar munu líka 100%
líta dagsins ljós en ég held að með
þessari þróun muni mjög margir
færa sig frá þessu gamla, hefð-
bundna módeli sem er að reka dýrt
verslunar- eða lagerrými, starfsfólk
og þess háttar – og nýta sér þess í
stað miðlægan vöruafgreiðslulager
eins og Gorilla, sem er bæði ódýrara
og getur einfaldað reksturinn mjög
mikið.
Hvaða tækifæri eru fram undan
fyrir Gorilla?
Núna sjáum við einmitt rosalega
mikil tækifæri fyrir heildverslanir
og rótgróin fyrirtæki sem ég held
að geti sparað mikinn kostnað og
einfaldað reksturinn hjá sér með
því að nýta sér miðlægan lager
eins og Gorilla vöruhús. Hingað til
höfum við nær eingöngu verið að
einbeita okkur að netverslunum
en nýlega höfum við tekið inn þó
nokkrar heildverslanir með góðum
árangri.
Í byrjun sumars tókum við svo
höndum saman með TVG Zimsen
sem er dótturfélag Eimskips og
stærsta f lutningsmiðlun landsins.
TVG býr yfir mikilli þekkingu hvað
varðar bæði dreifingu og vöruhýs-
ingu svo það gefur okkur mikinn
byr undir báða vængi. Auk þess
höfum við með þessu samstarfi
getað boðið viðskiptavinum okkar
betri kjör í innflutningi á vörum og
hraðari dreifingu innanlands en
áður hefur verið í boði. Svo tæki-
færin eru stór núna og mjög margt
gott að gerast.
Íslensk netverslun á blússandi siglingu
Egill Fannar Halldórsson er annar af stofnendum Górilla vöruhús en fyrirtækið hóf starfsemi fyrir tæplega einu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Svipmynd
Egill Fannar Halldórsson
Svipmynd:
Menntun: Stúdentspróf frá
Menntaskólanum við Sund
Störf:
Eigandi Gorilla vöruhúss og ferða-
þjónustufyrirtækisins Wake Up
Reykjavík
Fjölskylduhagir:
Trúlofaður Tönju Ýri sem er við-
skiptakona, áhrifavaldur, fegurðar-
drottning og ég veit ekki hvað og
hvað.
Fjárfestingastjóri BlueBay Asset Management, eins stærsta sér-hæfða skuldabréfastýringar-
fyrirtækis Evrópu, telur að af létt-
ing fjármagnshafta og háir vextir
geri Ísland að aðlaðandi fjárfest-
ingarkosti og býst við því að f leiri
erlendir fjárfestar endurnýi kynni
sín af landið.
Í nýlegu bréfi fjárfestingastjór-
ans, Marks Dowdings, til fjárfesta
er sjónum beint að stöðu íslenska
hagkerfisins í kjölfar þess að fjár-
magnshöftin sem innleidd voru á
haustmánuðum ársins 2008 voru
nánast að öllu leyti afnumin.
Dowding bendir í bréfinu á að
með auknu innf læði fjármagns
til landsins og tilheyrandi gengis-
styrkingu gæti verðbólga lækkað
sem ætti að geta leitt til lægri vaxta.
Á móti geti kröfur verkalýðs-
félaga um myndarlegar launahækk-
anir ýtt undir verðbólgu og dregið
úr líkunum á vaxtalækkunum en
fjárfestingastjórinn tekur þó fram
að æ fleiri viðurkenni að stilla þurfi
launakröfum í hóf þannig að þær
verði skynsamlegri.
Eins og greint hefur verið frá í
Markaðinum hafa sjóðir á vegum
BlueBay Asset Management keypt
ríkisskuldabréf í talsverðum mæli
á undanförnum mánuðum. Sjóða-
stýringarfyrirtækið hóf innreið sína
á hérlendan skuldabréfamarkað
árið 2015.
Í bréfi Dowdings til fjárfesta í
mars síðastliðnum sagðist hann,
eins og upplýst var um í Markað-
inum, búast við því að ávöxtunar-
krafa íslenskra ríkisskuldabréfa
lækkaði um eitt hundrað punkta
á næstu tólf mánuðum og að gengi
krónunnar styrktist um tíu prósent
á sama tíma.
Gengi sú spá eftir gæti fjárfesting
í slíkum bréfum mögulega skilað
meira en tuttugu prósenta ávöxtun
á tímabilinu.
Í bréfinu sagðist hann jafnframt
telja að sterkari króna myndi á
endanum þrýsta verðbólgu niður
og gera Seðlabankanum kleift að
lækka vexti á það stig sem tíðkast á
öðrum þróuðum mörkuðum.
Um leið gæti bankinn takmarkað
áhættuna af því að vaxtamunarvið-
skipti leiði til bólumyndunar í hag-
kerfinu.
Í nýjasta bréfi fjárfestingastjór-
ans, dagsettu 1. júlí, segir hann að
afnám haftanna skapi mikil tæki-
færi fyrir fjárfesta, eins og áður var
lýst. Seðlabankinn hafi lækkað
stýrivexti sína að undanförnu
og frekari lækkanir séu líklegar.
Jafnframt geti Ísland notið góðs af
áhuga þeirra fjárfesta sem taka tillit
til svonefndra ESG-þátta – en ESG
stendur fyrir umhverfismál, sam-
félagsmál og stjórnarhætti – við
fjárfestingar sínar. – kij
Afnám hafta og háir vextir geri Ísland að góðum kosti
BlueBay segir Ísland freista erlendra fjárfesta. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Mark Dowding,
fjárfestingastjóri
hjá BlueBay.
Sjóðir í stýringu BlueBay
Asset Management hófu
innreið sína á íslenskan
skuldabréfamarkað á árinu
2015.
3 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN
0
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
5
A
-6
C
4
C
2
3
5
A
-6
B
1
0
2
3
5
A
-6
9
D
4
2
3
5
A
-6
8
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K